Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983
7
Hjónaball
Dansleikur veröur í félagsheimilinu laugardaginn 12.
þ.m. Skuggar leika fyrir dansi. Miöasala í félagsheim-
ilinu á föstudag kl. 16—18. Húsið opnaö kl. 21.30.
Mætum vel og stundvíslega.
Skemmtinefndin.
Skákkeppni stofnana
og fyrirtækja 1983
hefst í A-riðli, mánudag 14. febrúar kl. 20.00 og í
B-riöli, miövikudag 16. febrúar kl. 20.00. Teflt
verður í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur aö
Grensásvegi 44—46. Keppt er í fjögurra manna
sveitum og er öllum fyrirtækjum og stofnunum
heimil þátttaka í mótinu. Nýjar keppnissveitir hefja
þátttöku í B-riðli. Þátttöku í keppnina má tilkynna
í síma Taflfélagsins á kvöldin kl. 20—22. Loka-
skráning í A-riöil verður sunnudag 13. febrúar kl.
14—17, en í B-riðil þriöjudag 15. febrúar kl.
20—22.
Taflfélag Reykjavíkur,
Grensásvegi 44—46, Rvík.
Símar 83540 og 81690.
Félagsheimili -
Veitingahús
Viö getum boöiö til afgreiðslu meö stuttum
fyrirvara billiardborö, ætluö til útleigu, nota sér-
staka mvnt.
Skermaspil, notar
einnig sérstaka spila-
mynt. Hægt er aö
skipta um leiki í tækinu
á auöveldan hátt.
Bjóöum einnig kúluspil,
fótboltaspil, plötuspil-
ara (jukebox), o.fl., o.fl.
Gísli Jónsson & Co hf.,
Sundaborg 41. Sími 86644.
LisU- og Apmmtideiid sjónrarpe i fjáfhagssvf jti?
Gert ráð fyrir 70% minna
ráðstöfimarfé milli ára
_ iiarið * lilraunum ^nv.rps ,i. að vem dW- " ”Í4Í"'
Vandræöi Rikisutvarpsins
í Staksteinum í dag er drepið á mál er varöa starfsmanna-
hald hjá Ríkisútvarpinu, fjársvelti Lista- og skemmtideildar
sjónvarpsins og hugmyndir um rás 2 þar sem ætlunin er að
létt tónlist sitji í fyrirrúmi.
Útvarpsráð
í deilum
Sættir hafa nú tekist
milli útvarpsráðs og um-
sjónarmanna sjónvarps-
þáttarins Á hraðbergi. l'pp-
haf þessarar deilu sýnist
hafa verið það, að umsjón-
armennirnir töldu að út-
varpsráð ætlaði að fara
gefa þeim of ströng fyrir-
mæli um viðmælendur í
þættinum. Annað bjó líka
að baki, því að það vakti
reiði margra hvernig Vil-
mundur Gylfason var
spurður í þessum þætti á
dögunum. Varla hefur þó
Vilmundur getað tekið því
illa þótt spyrlar gengju
nærri honum — fáir kom-
ast í spor Vilmundar að því
leyti, hætti hann þó ekki að
vera í sjónvarpsljósinu af
þeim sökum heldur valdi
þann vettvang sem þykir
jafnvel áhrifameiri en
spyrjendastóll í sjónvarps-
sal sem sé ræðustólinn á
alþingi.
Hvorki Halldór Hall-
dórsson né Ingvi Hrafn
Jónsson lýstu því yfir að
þeir ætluðu bcint á þing úr
því útvarpsráð beitti þá
ofríki. En það fylgdi með
hjá Ingva llrafni að hann
sagði af sér sem þingfrétta-
ritari sjónvarps. Astæðu-
laust er fyrir hann að láta
af því starfi. Hann hefur
sýnt góð tilþrif á þeim
vettvangi og það er svo
sannarlega ekki á færi
annarra en þrautþjálfaðra
blaðamanna með næma til-
finningu fyrir því hvernig á
að gera flókna hluti skilj-
anlega öllum almenningi
að annast millgöngu rnilli
þingmanna og sjónvarps-
áhorfenda.
iH'ssi síðasta rimma út-
varpsráðs við starfsmenn
Kíkisútvarpsins lýkur
þannig með sátL Var svo
sannarlcga skynsamlegt af
ráðinu að taka málið föst-
um tökum en láta það ekki
reka á reiðanum eins og
endurteknar aðfinnslur hér
í blaðinu yfir því hvernig
lestri úr forystugreinum
dagblaðanna er háttað. I*ar
koma að vísu saman af-
staða ráðsins og hagsmunir
Fréttastofu hljóðvarpsins,
en starfsmenn hennar hafa
af því góðar aukatekjur að
skera lciðarana við trog án
þess þó að unnt sé að lesa
útdrátt úr Morgunblaðinu
samdægurs vegna starfs-
reglna sem útvarpsráð hef-
ur setL Allt bendir til þess
að ríkisfjölmiðladeild
Framsóknarflokksins í
útvarpsráði og meðal
starfsmanna Rikisútvarps-
ins ætli að sjá til þess að
óbreytt skipan á leiðara-
lestri haldist fram yfir
kosningar.
LSD í svelti
Úr deilum vegna ein-
stakra þátta á að vera auð-
velt að leysa ef menn ræða
saman eins og nú hefur
gerst í máli þeirra hrað-
bergsmanna og einnig ætti
útvarpsráði að vera í lófa
lagið að gera þær breyt-
ingar á tilhögun leiðara-
lestursins að viðunandi séu
— til da-mis mætti spara
við það fé að lesa forystu-
greinarnar i heild. En öll
vandamál Ríkisútvarpsins
eru ekki jafn auðveld úr-
lausnar og þessi þótt vilj-
inn sé fyrir hendi. Má þar
sérstaklega nefna Lista- og
skemmtideild (LSD) sjón-
varpsins, en samkvæml
fjárhagsáætlun fyrir árið
1983 sem kynnt var í út-
varpsráði fostudaginn 4.
febrúar er ekki gert ráð
fvrir neinu fjármagni til
þess að gera innlenda
skemmtiþætti, leikrit eða
áramótaskaup á vegum
deildarinnar. l*á verður
ekki fé til að gera þætti
eins og Stiklur eða kaupa
innlent efni.
Ih-ssí vanmáttuga áætl-
un þar sem ráðstöfunarfé
LSD til innlendrar dag-
skrárgerðar lækkar um
70°i miðað við 1982 er gerð
af fjármáladeild Ríkisút-
varpsins. Er furðulegt að
deildin skuli gera tillögur
sem þessar, því að i þeim
er með öllu gengið fram
hjá því hlutverki sem sjón-
varpið á að gegna sem mið-
ill íslenskrar menningar og
ILsta. Hinrik Bjarnason,
dagskrárstjóri DSD, varaði
einmitt við þessum áform-
um fjármálayfirvalda
Ríkisútvarpsins strax á
þeim fundi útvarpsráðs,
þar sem þau voru kynnt. I
bókun sem Hinrik lagði
fram segir réttilega: „Af-
leiðingarnar eru ófyrirsjá-
anlegar og snerta bæði
listgreinar, listamenn og
ekki síst allt annað fólk í
landinu. En abarlegastar
verða þær fyrir Ríkisút-
varpið sjálft."
Ný útvarpsrás
Ekkert fréttist af fnim-
varpinu um afnám ríkisein-
okunar á útvarpsrekstri
eftir að það lenti á borðinu
hjá Ingvari Gíslasyni,
menntamálaráöherra.
Vinnur hann líklega að því
núna að sætla sjónarmiðin
innan ríkisfjölmiöladeildar
Framsóknarflokksins.
Hins vegar hefur verið frá
því skýrt, að nú ætli Ríkis-
útvarpiö að hefja sendingar
á rás 2 og eigi sú starfsemi
aö standa undir sér með
því sem kallað er „unnar
auglýsingar" og líkjast
helst sjónvarpsauglýsing-
um. Tekjur sjónvarpsins af
auglýsingum eru miklar. Á
sama tíma og skrúfað er
fyrir gerð íslenskra menn-
ingarþátta í sjónvarpi af
fjármáladeild Kíkisút-
varpsins samþykkir þessi
sama deild að efna til
menningarstarfsemi á rás
2 með tekjum af auglýsing-
um sem keppa við einn
helsta tekjustofn sjón-
varpsins — eða gera ráða-
menn útvarps því skóna að
ná auglýsingum frá dag-
blööunum? Er ekki ástæða
til að gera opinberlega
grein fyrir kostnaði og fjár-
mögnun rásar 2? Hefur
orðið samkomulag um það
í ríkisfjölmiðladeild Frant-
sóknarflokksins. að frum-
varpið um afnám ríkisein-
okunar skuli ekki flutt fyrr
en forskot einokunarinnar
er tryggt með rás 2?
ÚTSALA
áöur kr. nú kr.
Háskólabolir, mynstraöir 160.- 60,-
Skíöahúfur, tvöfaldar 60.- 20.-
Danskarkápur 1.150.- 750.-
Danskir jakkar 890.- 495.-
Indverskir kjólar, margar geröir 880.- 440.-
Barna- og fulloröinssokkar 3 pör 90,- 50,-
Herrasloppar 960.- 560.-
Háskólabolir 187.- 87,-
Gallabuxur, barna 230,- 130,-
Barnaskyrtur 158,- 58.-
Danskir kuldaskór úr leöri, st. 35 —47 1.030.- 530.-
Kanadísk cowboystígvél st. 39— 45 990.- 590.-
Kvenkuldastígvél, rússkinn,
grá og vínrauö st. 30—39 680,- 395.-
Kveninniskór 150.- 50.-
Gúmmístígvél barna, blá, st. 28— -32 247.- 147.-
Vandaöir leöurgötuskór
m. hrágúmmísólum 520.- 320,-
Leöurkuldastígvél, ítölsk, st. 35— -40 580.- 380,-
ítalskar leöurmokkasíur herra 660.- 340.-
Karlmannaspariskór úr leöri 760.- 290.-
Karlmannainniskór úr leöri 250,- 170,-
Kventöflur úr leöri 195,- 130,-
DOMUS