Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983 23 Endurgreiði menntun sína til að komast frá Rúmeníu Búkarest, 9. janúar. AF. SÉRSTAKUR bankareikningur hefur veriö stofnaður fyrir þá Rúmena, sem vilja fara úr landi og mun þetta vera gert til þess að fylgja því fast eftir, að allir þeir, sem einhverja menntun hafa hlot- ið en hyggjast fara burt, endur- greiði þann kostnað, sem hið opinbera á aö hafa tekið á sig vegna menntunar- þeirra. Þeir, sem lokið hafa menntaskólanámi, þurfa að greiða eigi lægri fjárhæð en 3.700 dollara og þeir, sem lok- ið hafa háskólanámi, verða að greiða til viðbótar 3.000—4.000 dollara fyrir hvert háskólaár, sem þeir hafa lokið. Verður að leggja þetta fé inn á reikning nr. 0402 í utanríkisverzlunarbanka Rúm- eníu og það í vestrænum gjald- miðlum. Tilskipun, sem gefin var út 1. nóvember sl. og undirrituð af sjálfum Nicolas Ceausescu for- 'vjí í A sólarströnd við Svartahaf. Ferðamannaiðnaðurinn er Rúmenum mikil tekjulind. seta, gerði það að skilyrði fyrir leyfi til þess að flytjast til út- landa, að menn endurgreiddu fyrst þann menntunarkostnað, sem talið var, að ríkið hefði haft af menntun þeirra. Þessar reglur hafa verið mjög gagnrýndar á Vesturlöndum og sagt, að með þeim væru lagðar strangar hömlur á allt ferðafrelsi í land- inu. Um 15.000—20.000 manns hafa yfirgefið Rúmeníu árlega undanfarin ár. Hafa flestir þeirra verið af þýzkum uppruna og því farið til Vestur-Þýzka- lands. En síðan framangreind tilskipun var kunngerð, hefur umsóknum þeirra, sem vilja fara úr landi, fækkað mjög. Tilskipunin bitnar harðast á menntamönnum eins og læknum og tæknimenntuðum mönnum, sem eins og nær allir aðrir Rúm- enar eru menntaðir á kostnað ríkisins. Þannig verður læknir, sem lokið hefur sex ára háskóla- námi, að greiða um 28.000 doll- ara í vestrænum gjaldmiðli til þess að fá að fara burt. Meðal- tekjur í Rúmeníu eru hins vegar 2.250 lei eða um 180 dollarar. Stærsta peningarán Bandaríkjanna?: ^Poki fullur ^fjár fundinn Við drepum ekki kópa — sagði Jonathan Motzfeldt á fundi í dag llaag, 9. febrúar. AP. FORMAÐUR grænlensku lands- stjórnarinnar varaði í dag við því að óvinveittur alþjóðlegur málflutningur um kópaveiðar gæti ógnað lífsviður- væri cskimóa á Grænlandi, jafnvel þeirra, sem ekki stunda veiðarnar sjálflr. „Við gerum okkur grein fyrir því að mörgum Evrópubúum þykir rangt að drepa kópa“, sagði Jóna- tan Motzfeldt á fundi með frétta- mönnum í dag, en hann hefur verið á ferð um Evrópu undanfarnar tvær vikur. „En við drepum ekki kópa við Grænland“, sagði hann. „Því miður hafa selveiðimenn okkar orðið fórnarlömb evrópskra viðhorfa gegn selveiðum án þess að geta nokkuð að gert. Þessi útbreiddi misskilningur gagnvart selveiðum hefur haft skaðvænlegar afleið- ingar fyrir grænlenska veiðimenn", sagði hann. New Vork, 9. febrúar. AP. STARFSMENN bandarísku alríkis- lögreglunnar hófu í dag að telja 27 kiló af peningaseölum sem fundust í sorppoka við heimili tengdafóður eins þeirra sem grunaður er um aö hafa átt hlutdeild í ellefu milljón dollara ráni í fyrirtæki sem flytur fjármuni á milli í brynvörðum bif- reiðum. Ef þessir peningar reynast vera hluti þýfisins, er það fyrsta vísbend- ingin í þessu stærsta peningaráni í sögu Bandaríkjanna. Seðlarnir fundust á mánudag við heimili Thomas Skiadas, sem er tengdafaðir Demetrios Papadakos, en hann er einn fjögurra manna sem situr inni og er ákærður fyrir að hafa átt hlut að ráninu sem var framið 12. desember síðastliðinn. Talsmaður alríkislögreglunnar, Joe Valiquette, sagði í dag að ekki hefði enn verið ákvarðað hvort seðl- arnir sem fundust á mánudag séu hluti þýfisins. Veður Akureyrí Amsterdam Aþena Barcelona Berlín BrUssel Chicago Dublín Feneyjar Frankfurt Færeyjar Genf Helsinki Hong Kong Jerúsalem Jóhannesarborg Kaupmannahöfn Kairó Las Palmas Lissabon London Los Angeles Madrid Mallorca Malaga Mexíkóborg Miami Moskva Nýja Delhí New York Ósló París Peking Perth Reykjavik Rio de Janeiro Rómaborg San Francisco Stokkhólmur Sydney Tel Aviv Tókýó Vancouver Vinarborg 5 alskýjaó 2 snjókoma 18 heiðskirt 6 þokumóða -2 skýjað 2 snjókoma 1 skýjað 5 skýjað 5 skýjað 1 snjókoma 6 skýjaö 2 skýjað -10 heiðskírt 15 skýjað 15 heiöskírt 27 heiðskírt *2 snjókoma 21 heiðskírt 18 skýjað 10 rigning 2 skýjað 20 heiðskírt 7 heiðskirt 9 hálfskýjaö 12 hálfkýjað 23 heiöskírt 21 skýjað -8 snjókoma 21 heiðskírt 2 heiðskírt -5 heiöskirt 2 skýjaö 3 heiöskírt 23 heiðskirt r-1 skýjaö 32 skýjað 13 rigning 12 skýjað -8 skýjaö 28 skýjað 18 heiöskírt 13 heiöskírt 6 skýjað 2 snjókoma Ziyang fer til Bandaríkjanna WaNhinglon, 9. febrúar. AP. TILKYNNT var í Hvíta húsinu í dag, að Zhao Ziyang, forsætisráð- herra Kínverja, færi í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna í boði Reagans forseta síðar á þessu ári. Gert er ráð fyrir, að Ziyang komi til Bandaríkjanna í júní eða sept- ember. Talið er ólíklegt, að Reag- an sæki Kínverja heim á yfir- standandi kjörtímabili. Síöustu dagar stórútsölunnar Kápur frá 199,00 Frottegallar frá 39,95 Pottahlífar frá 19,95 Súkkulaöi 2AÓ5 20,90 Sloppar frá 19,95 Barnaúlpur frá 299,00 Herraskyrtur frá 79,95 Kremkex 1A9Ö 9,70 Sokkabuxur frá 9,95 Skíöalúffur frá 69,95 Herrapeysur frá 99,95 Sítrónubelgir y*€0 8,90 Pils frá 159,00 Eldhúshandklæði frá 9,95 Dúkkur frá 49,95 Jif hreingern- Barnanærbuxur frá 6,95 Pottaleppar frá 2,95 Dömustrigaskór frá 1,95 ingalögur 13r!f5 10,40 Barnarúmteppi frá 159,00 Töskur frá 99,95 IKEA-stóll 993Í00 699,00 Handþeytarar frá 59,95 Hljómplötur frá 19,95 Saunaborö 498760 299,00 Lampaskermar frá 39,95 Einnig útlitsgölluð húsgögn á lágu verði. Bráðfallegar IKEA vörur SÍMI PÓSTVERSLUNAR ER 30980 geysihagstæðu verði. Opið i Skeifunni til kl. 20 íkvöld II A/11r ATip Reykjavík nAuíiAU 1 Akureyri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.