Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983
33
SÍS-menn hyggjast beita
fyllsta aðhaldi í rekstri
— Afleiðing röskunar í fjármálakerfi
þjóðarinnar, segir í Sambandsfréttum
„SAMBAND islcnzkra samvinnulélaga og kaupfélögin innan vébanda þess hafa
ákveðið að grípa til aðhaldsaðgerða í rekstri sínum vegna þeirra efnahagserfið-
leika, sem nú steðja að þjóðarbúinu," segir í nýjast hefti „Sambandsfrétta",
fréttabréfi SÍS í Reykjavík.
„Meðal annars verða hafnar víð-
tækar aðgerðir til sparnaðar og hag-
ræðingar í samvinnurekstrinum,
tekin verður upp útlánastefna sem
beinist að því að minnka fjárbind-
ingu í útlánum, leitast verður við
eftir megni að minnka fjárbindingu í
vörubirgðum, og dregið verður eins
og frekast er unnt úr fjárfestingum,"
segir ennfremur í Sambandsfréttum.
I fréttabréfinu segir að þessi
ákvörðun eigi sér nokkurn aðdrag-
anda, en þegar líða tók á árið 1982
hafi orðið ljóst að efnahagsþróunin
væri farin að raska verulega fjár-
málakerfi þjóðarinnar. „Flestir
viðskiptabankarnir höfðu lent í
miklum skuldum við við Seðlabank-
ann, gjaldeyrisstaðan fór hríðversn-
andi, og frjáls viðskipti við útlönd
voru brúuð með auknum lántökum
erlendis. Lausafjárstaða margra
fyrirtækja fór versnandi og var orð-
in þannig að augljóslega gat verið
stutt í greiðsluþrót ef þessi þróun
héldi óheft áfram,“ segir ennfremur.
Þær aðgerðir, sem fyrirhugaðar
eru á næstunni innan samvinnu-
hreyfingarinnar, felast í meginatrið-
um í eftirfarandi sex þáttum:
4. Unnar verða leiðbeiningar til að
leitast við eins og mögulegt er að
auka veltuhraða vörubirgða. Einnig
verði fylgzt reglulega með fjárbind-
ingu í birgðum.
5. Ekki verður efnt til fjárfestinga á
árinu 1983 nema í algjörum undan-
tekningartilvikum, og að undan-
gengnu ströngu arðsemismati, jafn-
framt því að fjármögnun sé tryggð.
Fjárfestingar, sem þegar eru hafnar
framkvæmdir við, verða teknar til
gagngerðrar endurskoðunar og
kannað hvort hagkvæmara sé að
stöðva þær eða halda áfram fram-
kvæmdum. Ef framkvæmdum verð-
ur haldið áfram þá munu þær miðast
við hagkvæmustu áfangaskiptingu.
Myndaður verður sérstakur vinnu-
hópur sem hefur það hlutverk að
heimsækja kaupfélögin, aðstoða við
þessar aðgerðir og fylgjast með
framkvæmdinni.
1. Hafnar verða víðtækar aðgerðir
til sparnaðar og hagræðingar I öllum
samvinnurekstrinum. Þessar að-
gerðir munu fyrst og fremst beinast
að því að lækka fjármagnskostnað
og að koma við sparnaði og hagræð-
inu hvarvetna þar sem kostur er. Þá
verða kannaðar sérstaklega rekstr-
areiningar sem skila tapi og ef
rekstrargrundvöllur er lítill eða
vafasamur og áhrif þeirra á rekstur-
inn óverulegur, verði starfsemi
þeirra hætt.
2. Lögð verður áherzla á tekjuauk-
andi aðgerðir og á aukin viðskipti
innbyrðis innan hreyfingarinnar.
3. Að mörkuð verði útlánastefna,
sem beinist að því markmiði að
minnka fjárbindingu í útlánum og
þar með fjármagnskostnað.
Ford í Bretlandi fækkar starfsmönnum verulega:
Nauðsynlegt til að
vera samkeppnisfærir
— segir talsmaður fyrirtækisins
TALSMAÐUR Ford Motor Co. í
Bretlandi tilkynnti í liðinni viku, að
fyrirtækið hefði ákveðið að fækka
starfsmönnum um 3.000 fram til
ársloka 1985 í aðalverksmiðju fyrir-
tækisins í Dagenham I Austur-
London. Ástæðurnar fyrir fækkun
starfsmanna eru aðailega tvær, til-
raun fyrirtækisins til að minnka
kostnað og síðan til að auka fram-
leiðni, sem hefur verið í lágmarki.
Ennfremur tilkynnti talsmaður-
inn, að ákveðið hefði verið að
segja upp 1.300 starfsmönnum i
verksmiðjum fyrirtækisins í Liv-
erpool í aprílmánuði nk. af sömu
ástæðum og að framan er getið.
í byrjun þessa árs voru starfs-
menn Ford í Bretlandi 48.485 tals-
ins, en til samanburðar voru þeir
59.143 á árinu 1979. Þeim hefur
því fækkað um liðlega 18% og ef
hinar nýju uppsagnir eru teknar
inn í dæmið kemur í ljós fækkun
upp á liðlega 25%.
„Staðan er einfaldlega orðin sú,
að við verðum að líta raunhæft á
málin og koma okkur á samkeppn-
ishæfan grundvöll. Annað leiðir
einfaldlega til glötunar,“ sagði
talsmaður Ford ennfremur.
í verksmiðjum Dagenham er
hinn nýi Ford Sierra-bíll fram-
leiddur, en hann kom á markaðinn
á síðasta ári og á að taka við af
Cortina og Taunus, sem hafa verið
í framleiðslu um langt árabil.
Framleiðslan á Sierra hefur ekki
gengið eins vel og fyrirtækið hefði
óskað, en í dag eru framleiddir um
800 bílar á dag, en framleiðsluget-
an er liðlega 1.130 bílar á dag.
Markaðshlutdeild Ford í Bret-
landi er um 34% og mest seldi bíll-
inn í Bretlandi í dag er Ford Es-
cort. Hins vegar benda menn á, að
þrátt fyrir metsölu nýrra bíla í
janúarmánuði sl., þegar samtals
voru seldir 165.437 bílar, þá
minnkar sífellt hlutur brezku
framleiðendanna. Markaðs-
hlutdeild innflutningsins í janúar
var t.d. um 57%. Hins vegar var
markaðshlutdeild innflutnings að-
eins 22,8% fyrir 10 áraum síðan.
Þá má geta þess, að liðlega helm-
ingur af þeim Ford-bílum, sem
seldir voru á síðasta ári í Bret-
landi voru framleiddir í verk-
smiðjum fyrirtækisins annars
staðar í Evrópu.
VIÐTALSTÍMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar SjálfataeAiaflokkaina veröa til
viötals f Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl. 14.00 til
16.00. Er þar tekiö á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum og er öllum borgarbúum boöið aó notfssra sér
viötalstfma þessa.
Laugardaginn
12. febrúar veröa
til viðtals þau
Markús örn Antonsson
og
Jóna Gróa Sigurðardóttir.
Jþ
Bladburdarfólk
óskast!
Úthverfi
Hjallavegur
Plorjsmin
bum
ERLENT NÁMSKEIÐ
u---------------------------------
n Konur í stjórnunarstörfum
Á liönum áratug hafa konur í vaxandi mæli ráöiö sig til
starfa í stööur stjórnenda innan fyrirtækja og stofnana.
Vegna heföbundinna viöhorfa í þjóöfélaginu ná konur oft
— ekki aö skipa þann sess innan fyrirtækisins sem stjórnun-
arstaða þeirra gefur tilefni til.
Á námskeiöinu verður m.a. fjallaö um
eftirfarandi atriöi:
— Hfutverk stjórnandans.
— Eöli stjórnunarstarfa og forysta.
— Mannleg samskipti.
— Konan sem stjórnandi.
— Viðurkenndar stjórnunaraöferöir.
— Þróun eigin stjórnunarhæfileika. Leila Wendelken
Námskeið þetta er ætlað konum sem
hafa meö höndum stjórnunarstörf inn-
an fyrirtækja eða stofnana.
Leiöbeinandi á námskeiöinu er Leila' Wendelken, en hún
starfar sem framkvæmdastjóri eigin ráögjafarfyrirtækis í
Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í
síma 82930.
STJÓRNUNARFÉLAG
ISLANDS SÍÐUMÚLA 23 SÍMI 82930
Staður og tími:
Hótel Esja, 2.
hæö, 23.-25.
febrúar kl.
09.00—17.00.