Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 48
^V^skriftar-
síminn er 830 33
j^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983
Kjördæmamálið:
Staðan
óbreytt
STAÐAN í kjördæmamálinu á Al-
þingi var óbreytt í gærkvöldi.
Formannafundur verður haldinn
í dag á ný, en ekki er að vænta
nýrra tíðinda, að sögn þeirra
formanna sem Mbl. ræddi við í
gær, fyrr en eftir miðstjórnarfund
Framsóknarflokksins á sunnu-
dag, en framsóknarmenn hafa
beðið um frest fram yfir fundinn
til að gefa svör um afstöðu sína.
Miðstjórnarfundur hefur
einnig verið boðaður hjá Al-
þýðubandalaginu um helgina,
og má vænta þess að málið
verði þar einnig til umfjöllun-
ar, en eins og komið hefur fram
í Mbl. lýsti fjármálaráðherra,
Ragnar Arnalds, sig andvígan
hugmyndum stjórnmálaflokk-
anna í ríkisstjórn í fyrradag.
Mbl. birtir í miðopnu blað-
sins í dag tillögurnar í kjör-
dæmamálinu, eins og þær
liggja nú fyrir í þingflokkun-
um.
Fyrri Vínarkonsert Sinfóniuhljómsveitar islands undir stjórn hins heimsfræga stjornanda Willi Boskovsky er í haskolabioi i kvöld. Uppselt varo a
skömmum tíma. Aðrir tónleikar verða á sunnudag. Boskovsky gerir meira en að stjórna, hann grípur einnig til fíðlunnar, eins og sjá má á myndinni,
sem tekin var á æfíngu í gær. Morgunbiaðið/ Emilia
530 aðilar
á biðlista
eftir síma
í borginni
Um 530 manns eru nú á biðlista
eftir síma í Reykjavík. f Ilafnarfirði
bíða um 80 manns eftir því að fá
síma og sömuleiðis er biðlisti í
Mosfellssveit. Hvað Reykjavík
áhrærir bætast um 200 númer við í
vor, en það leysir ekki allan
vandann.
Hafsteinn Þorsteinsson, sím-
stöðvarstjóri í Reykjavík, sagði í
gær, að engin númer væru til í
Miðbæjarstöð og þá 530, sem
væru á biðlista, vantaði númer frá
þeirri stöð. Hún þjónar svæðinu
frá Laugarnesvegi vestur á Sel-
tjarnarnes. Breiðholtsstöð, Múla-
stöð og Kópavogsstöð anna hins
vegar sínum svæðum. f lok apríl
verður sett upp tæki, sem flytur
um 200 númer frá Breiðholtsstöð í
Miðbæinn.
f Hafnarfirði bíða um 80 manns
eftir því að fá síma og biðlisti er í
Mosfellssveit. Hafsteinn sagði að
þó Varmárstöð hefði tvívegis ver-
ið stækkuð á síðustu árum dygði
það ekki lengur til, enda hefði
byggst mjög mikið í Mosfellsveit á
fáum árum.
Loks gat Hafsteinn þess, að
ekki hefði tekist að endurnýja
jarðsímakerfi sem skyldi vegna
fjármagnsskorts. Víða í gamla
bænum þyrfti að e'ndurnýja kerfið
og fjölga línum, en það hefði
reynzt erfitt af þessum sökum.
Hins vegar hefði enn tekist að
leggja jarðstrengi í ný hverfi.
Bráöabirgðalögin:
Frestun fram á föstudag?
Flugleiðir:
Um 20 milljóna króna
tap á innanlandsflugi
Bráðabirgðalög ríkis.s(jórnarinnar
komu til framhaldsumræðu í neðri
deild Alþingis klukkan sex síðdegis í
gær. Lmræðan stóð til klukkan sjö en
lauk ekki og vóru margir þingmenn á
mælendaskrá er forseti frestaði henni.
Mikil spenna var í þinghúsinu í gær
vegna óvissu um, hvort skellt yrði á
kvöldfundi og þess freistað að knýja
fram atkvæðagreiðslu.
Framsóknarmenn lögðu á það
ofurkapp, en ýmsir þingmenn aðrir
kjósa að fá fram lyktir í kjördæma-
málinu áður en gengið verður til at-
kvæða um bráðabirgðalögin. Fram-
sóknarmenn hafa tekið sér frest í því
máli fram yfir miðstjórnarfund
flokksins, er haldinn verður um nk.
helgi.
Forseti þingdeildarinnar, Sverrir
Hermannsson, sagði við fréttamann
Morgunblaðsins, að til athugunar
væri að halda umræðunni áfram nk.
föstudag, en það væri þó ekki afráð-
ið. Sú málsmeðferð yrði rædd við
þingflokkaformenn í dag, fimmtu-
dag.
Stuttur fundur verður í efri deild
Alþingis klukkan eitt miðdegis í dag
en fundur hefst síðan í Sameinuðu
þingi klukkan tvö.
Sjá nánar um þinghaldið í gær á
þingsíðu Mbl.
TAP Flugleiða af rekstri innanlands-
fíugs félagsins á síðasta ári var lið-
lega 20 milljónir króna, að sögn
Björns Theódórssonar, fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs Flug-
leiða.
SIGURÐUR Þórarinsson, jarð-
fræðingur, er látinn í Reykjavík, 73
ára að aldri, en hann var fæddur á
Hofi í Vopnafirði 8. janúar 1912.
Sigurður Þórarinsson lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri 1931 og hélt þá utan til
náms. Hann stundaði nám við
Kaupmannahafnarháskóla og hélt
þá til Stokkhólmsháskóla, þar sem
hann lagði stund á jarðfræði,
landafræði og grasafræði. Sigurður
lauk doktorsprófi árið 1944.
„Við höfum komið þessum
bráðabirgðatölum til verðlagsyf-
irvalda með ósk um leiðréttingu,
en til þess að dæmið hefði gengið
upp, hefðu fargjöldin þurft að
vera um 15% hærri að meðaltali,"
Sigurður réðst sem kennari við
Menntaskólann í Reykjavík
1944—1945, en árið 1946 var hann
ráðinn sem sérfræðingur við at-
vinnudeild HÍ. Sigurður var síðan
ráðinn forstöðumaður landafræði-
og jarðfræðideildar Náttúrugripa-
safns íslands árið 1947. Þá var Sig-
urður settur prófessor við landa-
fræði- og jarðfræðideild Stokk-
hólmsháskóla um nokkurra ára
skeið.
Sigurður varð seinna kennari og
síðar prófessor við raunvísindadeild
Háskóla íslands, auk þess að gegna
ýmsum hliðarverkefnum. Hann var
m.a. jarðfræðilegur ráðunautur við
margar virkjanir.
Sigurður sat í stjórnum fjöl-
margra félaga og félagasamtaka í
gegnum tíðina. Þá var Sigurður
kjörinn heiðursfélagi í fjölmörgum
félögum hér heima og erlendis.
Sigurður skrifaði ótölulegan
fjölda greina í blöð og tímarit í
gegnum tíðina, auk þess að skrifa
nokkrar bækur. Þá var Sigurður
Þórarinsson sérstaklega þekktur
sem sérfræðingur í Heklueldum.
Eftirlifandi kona hans er Inga
Þórarinsson.
sagði Björn Theódórsson ennfrem-
ur.
„í þessu sambandi er athyglis-
vert að bera saman þetta tap af
rekstri innanlandsflugsins, sem
við erum í raun neyddir út í, og
síðan þá upphæð sem við höfum
fengið í eftirgjöf gjalda til ríkisins
vegna Atlantshafsflugsins. Þar
kemur í ljós, að sú upphæð er
mjög svipuð," sagði Björn Theó-
dórsson.
„Við vildum í raun mun heldur
reka alla okkar starfsemi á réttum
grundvelli, fá eðlilegar hækkanir
á innanlandsfargjöldum og sjá
síðan um það tap sem hugsanlega
verður á Atlantshafsfluginu,"
sagði Björn Theódórsson.
Djúpivogur:
Tilkoma þríburanna
á við þrjá fjórðu
af ársfjölguninni
ÍBÚUM Djúpavogs fjölgaði að-
eins um fjóra á síðasta ári, en 1.
desember 1981 voru þeir 391, en
samkvæmt bráðabirgðatölum 1.
dcsember 1982 voru þeir 395.
Fjölgunin milli ára er því liðlega
1%.
Það má því segja, að tilkoma
þríburanna, sem fæddust í
Reykjavík í vikunni, sé á við
75% af ársfjölgun íbúa staðar-
ins, en fjölgun íbúanna með
tilkomu þríburanna er liðlega
0,76%.
Sigurður Þórarinsson
jarðfrœðingur látinn