Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983 23 íslandsmeistaratitillinn að Hæðargarði f jórða árið í röð Ólafur Jónsson: „Sætasti titillinn sem ég hef unniö“ „ÞETTA er sætasti íslandsmeist- aratitill sem ég hef nokkurn tíma unniö og eru þeir nú orönir nokkrir. Nú ætla ég aö spila þrjá leiki í viöbót — ég ætla aö leika til úrslita í bikarkeppninni, og svo er ég hættur,“ sagöi Ólafur Jónsson, eftir sigur Víkings é Stjörnunni é sunnudagskvöldiö. „Viö sönnuöum það í þessu móti aö ákveöin uppbygging og taktísk- ur handbolti er þaö sterkasta sem til er. Viö fórum rólega af staö og vorum svo sterkastlr nú í sex siö- ustu leikjunum. íslandsmótið i vetur hefur veriö mjög skemmtilegt, og þessi breyt- ing sem gerö var, aö koma þessari úrslitakeppni á, er þaö besta sem viö gátum fengiö. Nú eru komin fjögur jöfn og góö liö og þaö breyt- ir handboltanum hér mikiö. Ég held að þaö yröi enn betra aö koma hér á sex liöa úrvalsdeild, en þetta er vissulega breyting til batn- aðar,“ sagöi Ólafur. Hann vildi aö lokum þakka frá- bærum þjálfara, Bogdan Kowalc- zyk, fyrir þaö sem hann hefur gert fyrir Víking. „Við munum eflaust aldrei kynnast öörum eins manni." — SH. Lfótm. Krittján Einartton. • .Sigri fagnaö. Víkingar faðmast eftir leikinn við Stjörnuna og að- dáendur þeirra þyrpast inn á gólfið til að óska þeim til hamingju. Porbergur Aðalsteinsson: „Tökum stefnuna á bikarinn" „ÞAÐ er stórkostlegt að geta yfir- gefið Víking eftir aö hafa náð svona árangri," sagöi Þorbergur Aðalsteinsson á eftir, en sem kunnugt er hefur hann ákveðið aö flytja til Vestmannaeyja og þjálfa Þór næsta vetur. Þorbergur sagöi aö mótiö í vet- ur heföi verið mjög skemmtilegt. „Þessi úrslitakeppni hefur verið mjög til góöa, en ég held aö þetta sé of mikiö. Leikirnir eru of margir. Þaö væri betra ef leikiö væri bara heima og heiman. Sex leikir á hvert liö í staö 12 leikja. Aftur á móti held ég aö sex liða úrvalsdeild yröi skref aftur á bak fyrir íslenskan handbolta. Þá yröu sex góö liö, sem yröi auövitaö gott, en ég er hræddur um aö önn- ur liö yröu þá slök.“ Tobbi sagöi aö nú tækju Vík- ingar stefnuna á bikarinn, og fyrir honum yrði barist af hörku. „Nú tökum viö hvern leik fyrir sig og berjumst upp á líf og dauöa. Og helst vildi ég mæta KR-ingum í úr- slitaleiknum," sagöi hann aö lok- um. — SH. • Eftir sigurleikinn á Stjörnunni — er íslandsmeistaratitillinn var í höfn — tóku Víkingar hinn frábæra þjálfara sinn, Bogdan Kowalzcyk, og tolleruðu hann. Á þessari frábæru mynd Kristjáns Einarssonar svífur Bogdan í lausu lofti, yfir sig ánægðir Víkingar standa í hóp fyrir neöan, reiðubúnir að taka á móti honum er hann kemur til baka. „Nú eru jólin hjá mér“ - sagði Bogdan, þjálfari Víkings, eftir að hafa leitt liðið til sigurs í Islandsmótinu fjórða árið í röð „NÚ ERU jólin hjá mér,“ sagði Bogdan Kowalczyk, þjálfari Vík- inga, í samtali viö Mbl. eftir leik- inn við Stjörnuna á sunnu- dagskvöldiö. Víkingar höföu þar með tryggt sér íslandsmeistara- titilinn í handknattleik fjórða áriö í röð undir stjórn þessa frábæra þjálfara, og hann hafði svo sann- arlega ástæðu til aö vera ánægö- ur. Nú voru jólin hjá honum — hann ætlaði aö fagna sigri — og sagðist ekki vilja svara á þessari stundu hvort hann yrði áfram hér á landi. „Ég sagöi í ágúst aö þetta yröi mitt síöasta tímabil hjá Víkingi og það breytist ekkert.” Bogdan sagöi aö í leiknum gegn FH á laugardaginn heföi alla ein- beitingu vantaö í leikmenn sína. Þeir heföu leikiö mjög vel gegn KR kvöldið áöur og fyrir leikinn gegn FH haldiö aö mótiö væri búiö. „I kvöld aftur á móti einbeittu þeir sér aö leiknum og því unnum viö.“ Óhætt er aö segja aö Víkingur hafi veriö á toppnum nú seinni hluta úrslitakeppninnar, og þannig átti þaö auövitaö aö vera eftir und- irbúning Bogdans. Tveir toppar áttu aö vera hjá liðinu í vetur — sá fyrri í Evrópukeppninni — og sá síðari nú. Sá fyrri náöist reyndar ekki og kom þar margt til. „Viö vorum óheppnir í sambandi viö Evrópukeppnina," sagöi Bogdan. Frábær árangur Bogdans BOGDAN Kowalczyk hefur náð frábærum árangri meö Víkings- liðið. Þetta er fimmta áriö sem hann þjálfar liðið. Nú hafa Vík- ingar unnið íslandsmótiö fjögur ár í röö, aðeins fyrsta árið náöu þeir ekki titlinum. Áöur en Bogdan kom hingaö til lands þjálfaöi hann Slask Wroclaw í heimalandi sínu. Liöiö varö meist- ari sex ár í röö undir hans stjórn, og árin áöur en hann hóf aö þjálfa liöiö var hann meistari meö því sem leikmaöur fjögur ár i röö. — 8H. „Þá voru margir af mínum mönnum á æfingum með landsliö- inu. Viö höföum lítinn tíma til und- irbúnings meö öllum leikmönnurn fyrir leikinn í Prag og einnig höföu meiösli sín áhrif.” Víkingar hafa aldrei náö aö vinna bikarkeppnina sama ár og þeir hafa sigraö í islandsmótinu. Bogdan sagöi þá hafa stefnt aö því að ná tveimur bikurum af þremur. „Þetta er spurning um einbeitingu, sagöi hann, en við munum berjast af krafti í bikarkeppninni. Óskalið í úrslitunum? „Ja, ef viö komumst í úrslit væri gott aö leika gegn Val.“ Ég spuröi Bogdan hvort hann heföi áhuga á aö þjálfa íslenska landsliöiö nú. „Mér hefur ekki veriö gert tilboö um aö þjálfa liöið — hvorki fyrr né nú — þannig aö ég hef ekki hugs- aö um það. Ef mér yrði gert tilboö myndi ég hugsa um það.“ Þess má geta aö Bogdan hefur fengiö tvö tilboö frá vestur-þýsk- um liöum, en greinilega er óliklegt aö hann fari þangað til starfa. „Ég hef engan áhuga á aö starfa í Þýskalandi — ekki nokkurn," sagöi hann. - SH. Viggó Sigurðsson: „Dásamleg tilfinning“ „ÞETTA er dásamleg tilfinning," sagði Viggó Sigurösson, hetja Víkings í leiknum, á eftir. „Það er líka gaman að eiga toppleik á toppstundu. En leikmenn Stjörn- unnar eiga heiður skilinn fyrir þá geysilegu baráttu sem þeir sýndu, og leikurinn var mjög erf- iður. Þá er eitt sem ekki má gleymast. Þaö er þáttur Bogdans. Þaö hefur veriö stórkostlegt aö vera undir hans stjórn — hann er algjör snill- ingur," sagði Viggó Sigurösson. — SH. • íslandsmeistarar Víkings ásamt forráðamönnum liðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.