Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.05.1983, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI 111. tbl. 70. árg. FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Bretland: Uppgrip hjá veð- möng- urunum Lundúnum, 18. maí. AP. VEÐMANGARAR í Bretlandi hafa ærinn starfa þessa dagana. Veðmil eru vin.sæl þar í landi og nú kemur einkum tvennt til; rigning upp á hvern einasta dag og þingkosn- ingarnar, sem efnt verður til 9. júní. Rigning var í London í dag, 32. daginn í röð. Þótt talað sé um rigningu í Lundúnum er ekki endilega átt við linnulaust úr- helli. Hins vegar hefur ekki kom- ið rigningarlaus dagur frá því 16. apríl. Veðstofur bjóða nú fólki mjög hagstætt vinningshlutfall vilji menn veðja á tvo rign- ingarlausa daga í röð. Mikið fjör er einnig í veðmál- um í tengslum við væntanlegar kosningar. Veðmangarar eru greinilega vissir um sigur Ihaldsflokksins því veðmálin standa yfirleitt %. Kaupsýslu- maður einn hefur lagt inn 90.000 pund á væntanlegan sigur Ihaldsflokksins. Þótt hann vinni veðmál sitt fær hann aðeins lftið brot til baka, eða 20.000 pund, auk veðupphæðar sinnar. Konungsfjölskyldan er heldur ekki ósnortin af veðmálum. Karl Bretaprins hefur veðjað einni freyðivinsflösku við Michael Foot, að enginn einn flokkur fái hreinan meirihluta i þingkosn- ingunum. Að sögn talsmanns hallarinnar var veðmál þetta ákveðið fyrir 17 mánuðum og þá aðeins í gamansömum tóni. Hafði Foot sagt prinsinum, að Verkamannaflokkurinn ynni og fengi hreinan meirihluta í næstu þingkosningum. Stympingar í þinghúsinu! Þingmenn v-þýska þingsins horfðu í allar áttir f von um aðstoð, er hépur unglinga réðst inn í þinghúsið til þess að hengja þar upp mótmælaborða í gær. Þeim tókst ekki ætlunarverk sitt, en atburður þessi raskaði óneitanlega hefðbundnum degi í þinghúsinu. Sím»mynd-Al’ Atlotin stöðvuð — í réttarsalnum ^ Tórínó, ÍUlíu, 18. maf. AP. ÁSTARLEIKIR tveggja sakborninga úr hópi Rauðu herdeildanna innan rimla sérstaks búrs, sem þeir eru hafð- ir f á meðan réttarhöldum stendur, þóttu í gær ganga út yfir allt velsæmi og varð að gera hlé á yfirheyrslum á meðan parið var aðskilið. Brást það hið versta við og hrópaði vígorð að dómar- anum og öðrum í réttarsalnum. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem ástin verður sektarkenndinni yfir- sterkari hjá meðlimum Rauðu her- deildanna. Tvívegis hefur það komið fyrir, að konur úr samtökunum hafa orðið óléttar innan rimlanna. í ann- að sinnið er Ijóst, að getnaðurinn átti sér stað innan sambærilegs búrs og að framan er getið í réttarsal. Hugmyndir hafa komið upp um að aðskilja karla og konur samtakanna á meðan réttarhöldunum stendur til þess að koma í veg fyrir frekari atlot innan rimlanna. Þessar athafnir meðlima Rauðu herdeildanna hafa verið helsta leið þeirra til að sýna andúð sína á kerfinu innan veggja dómssalanna. Áhrifamikil nefnd Bandaríkjaþings samþykkti frekari fjárveitingu: Enn einni hindrun rutt úr vegi MX-Hauganna Washington, 18 maí. AP. ÁHRIFAMIKIL nefnd innan Banda- ríkjaþings samþykkti í nótt með 30 atkvæðum gegn 26, að samþykkja bciðni Reagans forseta og leggja til fjármagn til þróunar og rannsókna á MX-flaugunum umtöluðu. Reagan sagði fréttamönnum að atkvæða- greiðslunni lokinni, að hann væri bjartsýnn á endanlegt samþykki þingsins fyrir framleiðslu flauganna. „Eg gleðst yfir úrslitum þessarar atkvæðagreiðslu," sagði forsetinn. Sýrlendingar neita að ræða nokkuð við Habib Beirút, 18. maí. AP. PHILIP C. Habib, sérlegur sendi- fulltrúi Bandarfkjastjórnar í Miðaust- urlöndum, var í dag væntanlegur aftui til Beirút frá Róm til viðræðna við líb anska ráðamenn um leiðir til þess að fá Sýrlendinga til þess að samþykkja samkomulag ísraela og Lfbana um brottflutning erlends herliðs. Habib hafði í hyggju að fara til Damaskus i Sýrlandi á morgun, en sú ferð verður líkast til ekki farin, þar sem Sýrlendingar hafa neitað að taka á móti honum á þeim forsend- um, „að þeir eigi ekkert vantalað við hann“. Yfirlýsing þessi þykir undirstrika reiði Sýrlendinga í garð Líbana fyrir að skrifa undir samkomulagið við ísraela. Sýrlendingar segja sam- komulagið stofna öryggi þeirra i hættu og fela i sér átroðning á líb- önsku yfirráðasvæði. Sýrlendingar lýstu því á hinn bóg- inn yfir, að þeir hygðust taka upp viðræður við Líbana um brottflutn- ing 35.000 manna herliðs þeirra og 10.000 manna liðs PLO frá norðaust- urhéruðum landsins. Talið er að við- ræður þeirra við Sýrlendinga hefjist í næstu viku. Gemayel, forseti Líbanon, hefur skýrt frá því, að hann vonist til þess að fá megi Sýrlendinga ofan af ein- arðlegri afstöðu þeirra. Stólar hann einkum á málamiðlun af hálfu full- trúa Bandaríkjamanna, svo og Sov- étmanna, auk stuðnings frá Saudi- Aröbum. Khaddafy Libýuleiðtogi hefur hvatt Arababandalagið til þess að sniðganga Líbani i öllum samskipt- um, en talið er ólíklegt, að gripið verði til svipaðra aðgerða og 1979 þegar Egyptar voru sniðgengnir í kjölfar undirritunar friðarsáttmál- ans við tsraela. Sagði hann ennfremur að nú hyllti loks undir samkomulag beggja flokkanna um afstöðu til vopna- takmörkunar. „Ég vonast nú til þess að málið hljóti samþykki beggja þingdeilda," sagði forsetinn. Reagan hefur barist ötullega fyrir þessum flaugum og sagt þær nauð- synlegan mótleik gegn nýjum vopn- um Sovétmanna. Sagði hann við fréttamenn í gær, að honum hefðu borist fregnir um að Sovétmenn hefðu þegar brotið ákvæði SALT- Il-samningsins. Þó lægju engar áþreifanlegar sannanir fyrir. Skýrt var frá þvi í Washington í dag, að sjóherinn myndi á næsta ári leggja fram beiðni um fjármagn til smíði kafbáta, sem gætu farið undir fastaís f Norður-Ishafi og barist við sovéska kafbáta. Talsmenn sjóhers- ins segja Sovétmenn nú þegar eiga mjög fullkomna kafbáta, búna flugskeytum, sem geta athafnað sig langt undir ísnum. Væri þegar vitað til umfangsmikilla tilrauna þeirra i Norður-tshafi. Segja talsmenn sjóhersins, að ein- ungis örfáir kafbátar úr bandaríska flotanum séu þannig úr garði gerðir, að þeir geti þolað þær aðstæður sem eru í tshafinu. Vegna umsvifa Sov- étmanna á þessum slóðum megi það ekki dragast lengur að framleiða kafbáta fyrir heimskautaaðstæður. Bandaríkin: Walesa heiðraður Varajá og Vatikaninu, 18. maí. AP. LECH WALESA og fleiri verkalýðs- leiðtogar voru í dag harölega gagn- rýndir af pólska dagblaðinu „Lýð- veldið". Var Walesa þar sakaður um undirróðursstarfsemi I tengslum við þá leiðtoga Samstöðu, sem fara huldu höfði. Var hugmyndum Walesa um óháð verkalýðsfélög alfarið vísað ábug. Walesa var í dag, að honum fjar- stöddum, sæmdur æðstu viður- kenningu á ársþingi samtaka starfsmanna í bandariska bifreiða- iðnaðinum. Risu fundarmenn úr sætum og klöppuðu honum lof i lófa. Formaður samtakanna sagði, að barátta Samstöðu væri heiðar- leg barátta fyrir viðurkenningu meðlima samtakanna sem mann- legra vera. Á sama tíma og verið var að út- húða Walesa i dagblöðum mót- mæltu leiðtogar Samstöðu, sem fara huldu höfði, dauða unglings- pilts, sem lét lífið eftir barsmiðar lögreglu. Samtökin útbýttu dreifi- riti, þar sem sagt var að dauði hans bæri öll merki fyrirfram ákveðins glæps. Einn leiðtoga Samstöðu í bæn- um Radom, suður af Varsjá, var að sögn málgangs samtakanna hand- tekinn þar eftir mótmæli, sem brutust út 3. maí sl. Kom þetta fram í fréttabréfi Samstöðu, sem vestrænum fréttamönnum var af- hent í dag. Lögregluyfirvöld stað- festu í dag, að Andrzej Sobiera hefði verið handtekinn, en neituðu frekari upplýsingum um málið. Afmælisdagur páfa Jóhannes Páll páfl II átti 63 ára af- mæli í gær. Dagurinn var í engu frábrugðinn öðrum dögum hjá hon- um hvað vinnu snertir, en þessi mynd sýnir hvar tvö lítil börn færa honum blómvönd í tilefni dagsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.