Morgunblaðið - 03.07.1983, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR
Ólafur Noregskonungur
Konungur
Noregs
áttræður
<'>sló, 2. júlí. AP.
ÓLAFUK Noregskonungur hélt
upp á áttræðisafmæli sitt í dag.
Mikil hátíðahöld voru á götum
úti í Ósló og fylktu tugir þús-
unda manna liði um aðalgötur
og söfnuðust saman fyrir fram-
an norsku konungshöllina.
Konungurinn gaf engin við-
töl af tilefninu, en Haraldur
krónprins, fjörutíu og sex ára
og væntanlegur erfingi krún-
unnar, sagði að afmælið hefði
átt að vera fjölskylduhátíð
fyrst og fremst. Hann sagði að
mikil opinber hátiðarhöld
hefðu átt sér stað í fyrra er
konungur hélt aldarfjórðungs
setu sína á konungsstóli há-
tíðlega og hefði því ekki þótt
ástæða til hátíðahalda nú.
Skarar manna, sem söfnuðust
saman í tilefni afmælisins,
bera þess þó vitni að konung-
ur er ástsæll með þjóð sinni og
stendur hún reiðubúin að
fagna honum hvenær sem
færi gefst.
Áfangasigur í
stríði við krabba
London, 2. júlí. AP.
FRÁ ÞVÍ var skýrt í London í gær, að þýðingarmikil vitneskja væri fengin
um orsakir á vexti krabbameinsfruma. Svo undarlegt sem það kann að
virðast, þá er þar að verki eggjahvítuefni í blóðinu, sem að öllu jöfnu sinnir
því hlutverki að græöa sár. Það er 10 manna hópur vísindamanna frá
Bretlandi, Bandaríkjunum og Svíþjóð, sem vinnur að þessum rannsóknum.
„Ég vil ekki halda því fram, að
við höfum gert neina uppgötvun
varðandi orsök krabbameins," var
haft eftir dr. Mike Waterfield á
fundi með fréttamönnum í gær, en
hann stjórnar þessum rannsókn-
um. „Ég tel hins vegar, að hér sé
um mikla framför að ræða í rann-
sóknum á krabbameini. Nú má
gera sér vonir um, að stórir áfang-
ar náist varðandi þekkingu manna
á þessu sviði á næstu mánuðum og
árurn."
Waterfield sagði, að þessi upp-
götvun næði til krabbameins í
stoð- og tengivefjum líkamans, t.d.
beinum, sinum og bandvefjum og
gæti náð til hvítblæðis. Þessi upp-
götvun gæti leitt til þróunar og
framleiðslu á nýjum lyfjum gegn
krabbameini og til bættra aðferða
við greiningu á sjúkdómnum.
Waterfield skýrði ennfremur
frá því, að þetta eggjahvítuefni í
blóðinu, sem nefnist PDGF, bær-
ist venjulega með blóðinu að sári
eða meiðslum og ætti þátt í því að
stöðva þar blæðinguna og að láta
sárið síðan gróa. En í sumum teg-
undum af æxlum framleiddu
krabbameinsgen allt of mikið
magn af PDGF og þetta leiddi svo
til nýs og enn hraðari æxlisvaxtar.
í þessu felst mikil þversögn og við
vitum ekki, hvað kemur þessari
þróun af stað,“ sagði Waterfield.
Shultz í
Pakistan
Ljósm. Ólifur K. Magnússon.
Pinochet og her
eiga í útistöðum
Santiago, Chile, 2. júlí. AP.
Óánægja í hernum með stjórnarstefnu Pinochets forseta varð í dag til þess
að forsetinn rak úr embætti yfirmann hersins í höfuöborginni Santiago.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum í höfuðborginni hefur yfir-
maðurinn, Hector Orozco majór,
verið rekinn eftir að hann
neitaði að verða við beiðni Enr-
ique Montero dómsmálaráðherra
og hershöfðingja í flughernum,
um að senda hersveitir út á götu í
viðvörunarskyni við hugsanlega
mótmælendur. Sagt er að Orozco
og aðrir foringjar hersins hafi
ekki viljað að þeim væri flækt í
þvingurnaraðgerðir stjórnarinnar
gagnvart verkamönnum, bændum,
kaupmönnum, stúdentum og öðr-
um óánægjuhópum.
1 opinberri tilkynningu frá
stjórninni segir að Orozco majór
hafi sagt starfi sínu lausu til að
hafa meiri tima til að ferðast um
landið og sinna öðru starfi sínu
sem éftirlitsmaður hersins. Eftir-
maður hans verður Osvaldo Hern-
andez Pedreros majór. Tvær vikur
eru nú liðnar frá því er þúsundir
Chile-búa efndu til víðtækustu
mótmælaaðgerða sem stjórnin
hefur orðið vitni að í um það bil
áratug.
Nýju-Delhí, 2. júlí. AP.
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
George P. Shultz, kom í dag til Pak-
istan, en það er síðasta landið sem
utanríkisráðherrann heimsækir f
Asíuferö sinni að þessu sinni. Hann
mun m.a. eiga viðræður við Zia ul-
Haq, hershöfðingja, um styrjöldina í
Afganistan.
Aður en hann fór frá Nýju-
Delhí í Indlandi sagði Shultz að
heimsóknin þangað hefði bætt
sambúð tveggja stærstu lýðræð-
isríkja heims, Bandaríkjanna og
Indlands.
Shultz skýrði frá því i gær að
hann hefði skrifað Andrei Grom-
yko bréf til að fullvissa hann um
að Bandaríkin stefndu að því að
ná samkomulagi um Afganistamál
í anda friðarsamþykktar Samein-
uðu þjóðanna.
Samskipti Bandaríkjanna og
Pakistans versnuðu á tímabili
Carters Bandaríkjaforseta, þegar
forsetinn svipti Pakistana efna-
hagsaðstoð til að reyna að koma í
veg fyrir að þeir framleiddu
kjarnorkuvopn. Telja margir að
hefðu Sovétmenn ekki ráðist inn i
Afganistan kynni samúð landanna
enn að vera með stirðara móti.
Fuller látinn
Buckminster Fuller
Uppfyndingamaðurinn og heim-
spekingurinn Richard Buckminst-
er Fuller, sem kom fram með ýms-
ar afar sérstæðar og frumlegar
hugmyndir í byggingarlist og hélt
því fram, að tæknin ætti eftir að
bjarga mannkyninu, lézt í gær í
Los Angeles. Hann var 87 ára að
aldri.
Fuller ritaði 25 bækur, þeirra
á meðal „Níu hlekkir til tungls-
ins“ og „Handbók fyrir geim-
skipið Jörð“. En þekktastur er
hann fyrir kúlulaga byggingar
sem hann hannaði og settar eru
saman úr þríhyrndum málm-
flötum.
Fuller heimsótti Island á sín-
um tíma og hreifst hér mjög af
gömlum bárujárnshúsum.