Morgunblaðið - 07.07.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.07.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1983 Varað við lampaolíu — börn hafa lent í lífshættu hennar vegna „OKKUR BÁRUST aðvaranir frá læknum vegna þess að dæmi voru fyrir því að börn hefðu drukkið lampaolíu, sem er þeim annmörkum háð að hún gefur frá sér sérstakan ilm, sem laðar að sér börnin. Það eru dæmi þess að börn hafí drukkið slíka olíu og veikst alvarlega, jafnvel komist í lífshættu,“ sagði Kolbrún Haraldsdóttir hjá Hollustuvernd ríkisins í viðtali við Mbl., en Hollustuvernd ríkisins hefur sent viðvörunarbréf til heilbrigðisnefnda og starfandi heilbrigðisfulltrúa í landinu vegna þessa máls. Hollustuverndin vekur einnig athygli á vörum sem eru til sölu á bensínafgreiðslustöðvum og í verslunum sem versla með olíu- vörur og svokallaðar „grillvörur". Þess er óskað í framhaldi af því, að heilbrigðiseftirlit og heilbrigð- isnefndir fylgist sérstaklega með því að umræddar vörutegundir og aðrar vörur í þessu sambandi séu ekki á boðstólum nema merktar í samræmi við lög og reglur. Biskup vísiter- ar vesturhluta Skaftafells- prófastsdæmis BISKUP íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, vísiterar vesturhluta Skafta- fellsprófastsdæmis í næstu viku. Vísitasían hefst 10. júlí kl. 14.00 í Vík í Mýrdal en lýkur með hátíðarguðsþjónustu í Prestsbakkakirkju á Síðu 17. júlí. ms vJf Ný brú byggð á Sigurpál Vf v V i* -• ... — Ljósmynd Mbl. Steingrímur. „VIÐ reiknum með að skipið verði tilbúið í ágústmánuði og fari þá á veiðar," sagði ómar Hauksson, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins ísafoldar í Siglufirði, í samtali við Mbl., er hann var inntur eftir gangi mála með nýyfirbyggingu á Sigurpáli, sem fyrirtækið keypti á dögunum úr Sandgerði. Byggð verður ný brú á skipið, sem er 35 metrar að lengd og er um 203 tonn. Því hefur enn ekki verið gefið nýtt nafn. Bráðabirgðakennslustofur reistar á lóð Melaskólans í ferðinni skoðar biskup kirkjur, bænahús og kapellur og heldur fundi með safnaðarfólki, sóknar- nefndum og sóknarprestum. í för með biskupi verða Sólveig Ás- geirsdóttir, biskupsfrú, sr. Fjalar Sigurjónsson, prófastur og sr. Magnús Guðjónsson, biskupsrit- ari. Dagskrá vísitasiunnar verður sem hér segir: Sunnudagur 10. júlí: kl. 14.00 Víkurkirkja í Mýrdal, kl. 20.30 Reyniskirkja í Mýrdal. Mánudagur 11. júlí: kl. 14.00 Sólheimakapella í Mýrdal, kl. 20.30 Skeiðflatarkirkja í Mýrdal. Þriðjudagur 12. júlí: kl. 14.00 Þykkvabæjarklausturkirkja í Álftaveri, kl. 17.00 Grafarkirkja í Skaftártungu. Miðvikudagur 13. júlí: kl. 14.00 Langholtskirkja í Meðallandi. Fimmtudagur 14. júlí: kl. 14.00 Kálfafellskirkja í Fljótshverfi, kl. 17.00 bænahúsið að Núpstað í Fljótshverfi. Föstudagur 15. júlí: Kirkjuskoð- un fer fram þann dag í Prests- bakkakirkju á Síðu, bænahúsinu að Þykkvabæ, sem enn hefur ekki verið vígt, og minningarkapellu Jóns Steingrímssonar, en þar stendur yfir sýning þessa dagana. Sunnudagur 17. júlí: kl. 14.00 Prestsbakkakirkja á Síðu. Verður minnst um leið 200 ára afmælis Eldmessu sr. Jóns Steingrímsson- ar. ( HAUST verður reist ciningahús á lóð Melaskólans, sem í verða tvær kennslustofur. Að sögn Markúsar Arnar Antonssonar, formanns fræðsluráðs, var þetta fyrirkomulag samþykkt á fræðsluráðsfundi fyrir nokkru og síðan nýlega staðfest í borgarráði, en þetta er gert vegna fjölgunar nemenda í skólaumdæmi Melaskólans, sérstaklega á Granda- svæðinu. Markús Örn sagði að þessi ráðstöfun væri gerð til bráða- birgða því fyrri áætlanir um bygg- ingu sérstaks skóla eða skólaúti- bús á Grandasvæðinu fyrir yngri börnin væru enn í fullu gildi, en ekki væru eins og er skilyrði til að byggja þann skóla. Hann sagði að keypt yrði tilbúið einingahús, sem kostaði um 1.200 þúsund kfonur og ætti að taka það í notkun í haust. Sagði hann að jafnframt yrði at- hugað með að taka upp sérstakan skólaakstur á milli Eiðsgranda- hverfisins og Melaskólans, eða að laga leiðakerfi Strætisvagna Reykjavíkur betur að þörfum íbú- anna þarna, með tilliti til stað- setningar skólans. 0 Sykurneyzla dróst saman um 9,2% 1982 INNLENT ÍSLENDINGAR neyttu samtals um 10.265.000 kg af sykri á síðasta ári og hafði neyzlan minnkað um liðlega 9,2% milli ára, því hún var samtals um 11.130.200 kg á árinu 1981. „Þetta er búið að vekja heimsathygli“ — segir Kristján Jóhannsson um upp- færslu Ken Russells á Madame Butterfly, en Kristján fær mjög góða dóma „ÞETTA er búið að vekja heimsathygli og mér hefur geng- ið geysivel, röddin í toppformi. Ég þarf að gera mjög erfiða hluti, til dæmis syng ég mestallan ástardúettinn í fyrsta þætti liggjandi á dýnu á gólfinu að sið Japana og enda hann með því að syngja háa c-ið með sópransöngkonuna í fanginu, en hún er um sextíu kíló. Þetta hefur vakið mikla athygli,“ sagði Kristján Jóhannsson óperusöngvari er Mbl. ræddi við hann símleiðis í Spoleto á Italíu á þriðjudags- kvöld í lok sjöundu sýningar á uppfærslu Ken Russells á Madame Butterfly. Kristján hefur fengið mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína og atvinnutilboð streyma til hans víðs vegar að úr veröldinni og sagðist hann vera með tilboð og beiönir ailt til ársins 1986. Uppfærsla Russels var m.a. send út í heild í Eurovision-sjónvarpskerfinu. Kristján sagði að listafólkið fengi allt mjög góða dóma, en hið sama væri ekki að segja um uppfærslu Ken Russells. „Krítik- in á uppfærslunni er hrikalega neikvæð. ftölum finnst hún hrein móðgun við Puccini og Lib- erotto, þessu væri alltof mikið breytt. Kristján lýsti uppfærslu Russells á eftirfarandi hátt: „Hann þeytir þessu fram um hundrað ár, alveg til síðari heimsstyrjaldarinnar. Upp- færslan er mjög nútímaleg, menn jóðla tyggjó og drekka coca-cola og bjór. Við erum reykjandi og undir áhrifum eit- urlyfja og við erum meira og minna svífandi um á sviðinu all- an tímann. Kórinn er til dæmis svo til allan tímann á sviðinu, þó hann sé ekki að syngja. Kórfólk- ið dansar þá um sviðið og á að vera í eiturlyfjavímu. Þetta er meira eins og gleðileikur þó okkur sé gefið fullt svigrúm til að syngja." Aðspurður um hvernig væri að vinna með Ken Russell sagði Kristján: „Ég var hálfskjálfandi og hræddur í byrjun því ég hafði heyrt svo svakalegar sögur af honum. Svo er þetta herramaður alveg fram í fingurgóma, mjög elskulegur og gott að vinna með honum." Kristján sagði að meðal frum- sýningargesta hefðu verið Fan- fani forsætisráðherra og Spadol- ini fyrrverandi forsætisráð- herra. Fanfani hefði gert sér ferð til Kristjáns í búningsher- bergi hans í lok sýningarinnar til að óska honum til hamingju. Uppselt er á allar tíu sýningarn- ar og sagði Kristján að slegist hefði verið um hvern miða. Kristján var í lokin spurður hvað tæki við hjá honum eftir síðustu sýninguna á uppfærslu Ken Russells í Spoleto sem verð- ur á sunnudag. „Þá fer ég og hvíli mig í svona tvær vikur og fer síðan beint að vinna að plöt- unni íslensku í London. Siðan fer ég til Belgíu og syng Rigólettó, síðan byrjar söngtímabilið á fullu. Ég kem heim í nóvember í tilefni af útkomu plötunnar og held þá tónleika í Háskólabíói." Kristján sagði í lokin, að hann vonaði að íslenska sjónvarpið fengi til sýningar uppfærslu Ken Russells frá Eurovision. Ef litið er á sykurneyzluna á hvert mannsbarn á síðasta ári kemur í ljós, að hún var um 43,9 kg, borið saman við 48,2 kg á árinu 1981. Á árabilinu 1956—1960 var meðalársneyzla landsmanna á sykri um 53,7 kg. Frá þeim tíma hefur sykurneyzla því minnkað um 18,25%. ítalirnir ennþá hér á landi ÍTALSKA flugsveitin, sem kom hingað til lands í fyrradag, er hér enn, þar sem veður hafa verið óhag- stæð á Grænlandi, en haldið verður af stað, þegar veður leyfir. Um kvöldmatarleytið í gær héldu flugkapparnir sýningu, sem vakti athygli áhorfenda. Innbrots- þjófur á ferð í Kópavogi SAMKVÆMT upplýsingum lögregl- unnar í Kópavogi hefur maður nokk- ur verið á ferðinni undanfarið og far- ið inn í hús til að stela. Hann fór inn í sex hús í gærdag. Lögreglan vildi beina þeim til- mælum til fólks í bænum, að það hugi að því, að geymslur og her- bergi séu lokuð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.