Morgunblaðið - 07.07.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.07.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1983 45 w VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS /í^ UJrW’lJ Ir í umferðinni: Þrjú atriði til íhugunar Siguröur H. Ólafsson skrifar: „Velvakandi góður. Eg er líklega engin fyrirmynd í umferðinni og ætti því e.t.v. lítið að segja. Samt langar mig, í þetta skipti, að vekja athygli á þrem at- riðum með ósk um að þau verði tekin til athugunar. 1. Að aðvörunarmerki um að gangbraut sé framundan verði málað eða steypt í veginn í hæfi- legri fjarlægð frá gangbrautum. Ástæða: Mér virðist sem alltof margir ökumenn horfi það lágt að nauðsyn beri til að aðvörunum sé komið fyrir í sjálfum veginum. 2. Að breiða „strikið" við vega- mót og gangbrautir verði fært lengra frá þessum stöðum. Eða að minnsta kosti að bílstjórum sé gert að stöðva (þegar við á) öku- tækið þannig að þeir sjái „hvíta strikið" allt fyrir framan ökutæk- ið. Ástæða: Gefur örlítið meira svigrúm til að stöðva farartækið, þ.e. sjónhornið eykst. Þá væri það einnig öðrum vegfarendum i hag af sömu ástæðu. 3. Að lögregluþjónar krefji gangandi vegfarendur um að fá að sjá ökuskírteini okkar eða nafn- skírteini, ef okkur verður á að ganga yfir akbraut á rauðu ljósi. Ástæða: Við eigum að sjálf- sögðu að fara eftir ljósmerkjum hvort heldur við erum akandi eða gangandi vegfarendur." Hver heldur áfram bænavaktinni? María Eiríksdóttir skrifar. „Velvakandi. Enn á ég bágt með að trúa því, að nunnurnar í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði skuli vera farnar. Hver heldur nú áfram bænavakt- inni? Víst veit ég, að þær halda áfram að biðja fyrir okkur og verður það aldrei fullþakkað. Gætum við ekki sameinast í bæn að morgni hvers dags, áður en gengið er til vinnu. Á veturna stendur yfir bænavika ár hvert og þar koma menn saman frá ólíkum kirkjudeildum, en allir tilbiðja Drottin sinn, Jesúm Krist. Nú ríður á, að við biðjum fyrir friði í heiminum. Við þurfum að leggja hvern aðsteðjandi vanda fram fyrir Guð. Höfum við 10 mínútur aflögu til að fara inn í helgidóminn og biðja fyrir náung- anum? Þá þyrfti að opna kirkjurnar eins og tíðkast víða erlendis, svo að fólk geti átt þar kyrrláta stund. Ekki er víst að stór hópur sæi sér fært að mæta á tilteknum tima og stað til slíkrar þjónustu. En Guð heyrir bænir, þó að þær stígi upp frá verksmiðjum, strætisvögnum eða sjúkrabeðum, svo að ekkert má aftra okkur frá því að taka þátt í þessari stórkostlegu bæna- vakt, sem fram fer um allan heim.“ Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur les- endur til að skrifa þætt- inum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrit- uð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Best af öllu M J. frá Búrfelli sendir okkur þessa vísu: Best af öllu borða rétt, brúka einfalt fæði; af því þá er lífið létt, lán og heilsugæði. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Hann kemur ekki, allavega ekki í dag. Rétt væri:... að minnsta kosti ekki í dag. Eða:... alltjent ekki í dag. (Ath.: alla vega merkir: á allan hátt, með ýmsu móti.) S\GGA V/öGA £ ^iLVERAU CORDin Framhjóladrlf - Supershlft (sparnaðargír) - Otispeglar beggja megin - Quarts klukka - Litaö gler í rúðum - Rúliubeiti - upphituö afturrúða - Þurrka og vatnssprauta á afturrúðu • o.m.fi. Verð fró kr. 313.000 (Gangi 31.5. ’83) HEKIAHF [ Laugervegi 170-172 S(mi 21240 I ■ ABU Cardinal frá er spinnhjólið sem allir veiðimenn vilja helst. Sænsk gæðavara, sem fer nú sigurför um allan heim. 10 mismunandi gerðir og verðflokkar. ABU ER ALLTAF FREMST HVERSKONflR HRN6S ER PETTR ElélNLEGfl 06 HHLDIÐÞIO KflNNSKI HÐ ÞETTfl SÉ EITTHVERT !*#*=©!! HVÍLDHRHÆLI FYRIR EINHVERJfl*óc!»k!f LETIHflUGfl..

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.