Morgunblaðið - 09.07.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.07.1983, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK 153. tbl. 70. árg. LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Herlögum senn aflétt í Póllandi? Varsjí, Pólland í. 8. júlí. AP. PÓLSKA þingið mun líklega af- greiða sem lög í næstu viku reglu- gerð, sem leitt gæti til þess að her- lögum verði innan tíðar aflétt í Pól- landi. Talið er að gert verði að lög- um ýmislegt sem herstjórnin stóð Til mikils að vinna Rarnes Green, Englandi, 8. júlí. AP. MAÐUR nokkur, Graham Rob- erts, hefur gert eiginkonu sinni tilboð sem er vart hafnandi. Frú- in var 92 kg að þyngd og sagði Roberts henni, að tækist henni að grenna sig niður 60 kg myndi hann umsvifalaust færa henni nýja Mercedes Benz-bifreið, pels af dýrustu tegund, auk fatnaðar að verðmæti 23.000 dollara. Mið- ar Roberts þyngdina við gift- ingardag þeirra hjóna fyrir 14 ár- um, er frú Roberts var tággrönn og 60 kg. Frúin hóf þegar í stað svelti og í gær var hún búin að ná af sér 9 kg. Tjáði hún blaða- mönnum, sem með henni hafa fylgst, að hún hefði fullan hug á því að vera búin að koma verðlaunum sínum í höfn fyrir næstu jól. „Ég hef aldrei fengið nægilegt aðhald til að grenna mig fyrr, nú get ég ekki kvart- að og Graham skal fá að borga í botn,“ sagði frú Roberts og nartað í ávöxt, hún snæðir lítið annað um þessar mundir. Eiginmaðurinn, Graham Ro- berts, hefur ekki síður vakið athygli fyrir tiltækið en eigin- kona hans. Hann sagði við fréttamenn í gær: „Víst á þetta eftir að kosta mig digran sjóð, en mér finnst til þess vinnandi. Ef Virginia stendur sig, og ég veit hún gerir það, þá verður þetta hverrar krónu virði." fyrir er herlögin voru sett í gildi á sínum tíma. Þingið hefur þegar afgreitt hin frjálsu verkalýðsfélög sem ólög- leg, auk þess sem þung viðurlög eru gegn ofneyslu áfengis, vinnu- leti o.fl. Ónefndur talsmaður þingsins vildi ekki tjá sig ná- kvæmlega um það hvenær þingið myndi afgreiða reglugerðina, en þó þingið gangi frá málinu fyrir sitt leyti, verður það ekki lög í raun fyrr en herstjórnin hefur lagt blessun sína yfir það. Herstjórnin létti nokkuð á her- lögunum í desember síðastliðnum, en að ýmsu leyti ríkja herlög enn. Það er mál margra vestrænna diplómata, að ráðamönnum í Pól- landi þyki tímabært að aflétta herlögum og því sé verið að ganga frá ýmsum ströngum reglugerðum nú. Er það skoðun diplómatanna að ráðamenn Póllands séu ánægð- ir með ástand mála í landinu í kjölfar komu Páls páfa á dögun- um, heimsókn hans hafi hleypt mikilli spennu úr ástandinu. Yasser Arafat: Olga í Hebron Ófriður er í Hebron í vesturbakka Jórdanárinnar, eftir að ungur gyðingur var myrtur af nokkrum Aröbum. Varnarmálaráðherra ísrael, Moshe Arens, situr f aftursæti bflsins, í hvítri skyrtu, en hann var þarna á leið til Hebron-útimarkaðarins þar sem ódæðið var framið. Þeir sem veitast að bflnum er gyðingar búsettir á vesturbakkanum. Þeim hefur löngum fundist að stjórnvöld geri ekki nóg til að tryggja öryggi þeirra og morðið gekk fram af þeim. Þeir hrópuðu „morðingi, morðingi" að Arens. Sjá nánar frétt um ófrið í Hebron á blaðsíðu 18. sinumjnd-AP. Reiðubúinn að kalla menn sína M Líbanon Túnis, 8. júlí. AP. YASSER Arafat, leiðtogi PLO, lýsti yfir í Túnis í gær, að hann væri reiðubúinn að kalla alla þá hernænn PLO frá Austurhluta Líbanon sem væru sér hliðhollir, til þess að koma í veg fyrir frekari átök sinna manna í PLO annars vegar og Sýrlendinga og uppreisn- Ræðir Stone við skæruliðana? San Kalvador, El Salvador, 8. júlí. AP. RICHARD Stone, sérlegur sendi- fulltrúi Ronalds Reagans Banda- ríkjaforseta í Mið-Ameríku, fundaði í gær með ýmsum ráðamönnum El Salvador. Upphaflega var áætlað að hann yrði í landinu til dagsins í dag, en breyting varð þar á og hann hélt heimleiðis þess í stað í gærkvöldi. Kom það nokkuð á óvart, því að tal- ið var að hann myndi eiga viðræður við vinstrisinnaða skæruliðaforingja, sem höfðu lýst sig reiðubúna til að hitta hann að máli ef erfið skilyrði yrðu ekki sett. „Við erum reiðubúnir og áhuga- samir að heyra hvað talsmaður Bandaríkjastjórnar hefur að segja," var haft eftir háttsettum yfirmönnum hinna vinstrisinnuðu skæruliða. Óljóst var í gær hvert Stone myndi halda, sennilega þó til Mexíkó, Panama eða Costa Rica og er alls ekki talið útilokað að hann eigi fundi sína með skæru- liðaforingjunum á þeim slóðum. Diplómatar í E1 Salvador sögðu að Stone hefði hitt forseta lands- ins, Alvaro Magana, að máli í gær og fullvissað hann um að stuðn- ingur Bandaríkjanna við stjórn hans væri samur og fyrr. armanna innan PLO hins vegar. Þá stakk hann upp á því að skipuð yrði nefnd hlutlausra aðila til þess að sjá til þess að vopnahlé yrði virt. Þessu hafa uppreisnarmenn- irnir hafnað með öllu. Arafat ræddi við fréttamenn í aðalstöðvum sínum í Túnis og þar sagði hann að eitthvað yrði að gera, því óeiningin innan PLO, svo og skærurnar gegn Sýrlendingum, hefðu veikt PLO gagnvart fsrael, sem væri í raun hinn eini og sanni óvinur. „Hernaður okkar gegn ísraelum hefur liðið fyrir ólguna sem ver- ið hefur, hún hefur einungis þjónað hagsmunum ísraela. Tökum sem dæmi, að síðustu 15 dagana hafa menn okkar aðeins þrívegis sótt að ísraelskum her- mönnum. Áður veittumst við að þeim tvisvar til þrisvar dag hvern. Þetta gengur ekki til lengdar og ég er tilbúinn til að koma vel til móts við uppreisn- armennina og Sýrlendinga til þess að við getum sameinaðir beint kröftum okkar að hinum sanna óvini," sagði Arafat. Þessi yfirlýsing hans hefur ekki fallið í góðan jarðveg alls staðar, PLO-menn hliðhollir honum benda til dæmis á, að verði hinir 3.000 skæruliðar PLO, hliðhollir Arafat, fluttir frá Bekaadalnum í austurhluta Líbanon verði erfiðara en nokkru sinni fyrr að gera ísrael- um skráveifur, enda myndu þeir þá vera í minnsta kosti 100 km fjarlægð frá víglínunum í Líb- anon. Þá er óvíst hvað Sýrlend- ingar ætla sér í þessu máli, þannig hafa þeir einungis sam- þykkt fyrir sitt leyti að til alls herjar vopnahlés komi með hin- um stríðandi fylkingum PLO. „Það er ekki óhugsandi að Sýr- lendingar hafi hugsað sér að kúga Bandaríkjamenn til að gefa þeim einhverskonar loforð um volduga stöðu í Miðaustur- löndum með því að sýnast vera eina aflið á þessum slóðum sem fært sé um að koma á friði," sagði Arafat. Fjöldaganga f Teheran Þúsundir manna þyrptust um götur Teheran f íran f gær og hrépudu rfg- og ókvæöísorö um ísrael, Bandarfkin og Sovétríkin. Tilefniö var svokallaður Qudz-dagur, sem haldinn er ár hvert, á sföasta föstudegi mánaöarins Ramadan. Simamynd AP. Frelsuðu gíslana í Súdan Wajthington 8. júlí. AP. Stjórnarhermenn í súd- anska hernum frelsuðu í gærmorgun hina fimm gísla sem súdanskir skæruliðar hafa haft í gíslingu síðan 25. júní, er þeir tóku II manns höndum í Boma-þjóðgarðin- um. Sex manns slepptu þeir fljótlega en hafa haft hina fímm í haldi síðan. Tveir gíslanna eru Banda- ríkjamenn, einn Hollending- ur, einn Kanadamaður og einn Vestur-Þjóðverji. Her- mennirnir fundu búðir skæruliðanna í fyrradag og létu til skarar skríða í gærmorgun. Tókst að frelsa alla gíslana án þess að þeim yrði meint af.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.