Morgunblaðið - 17.07.1983, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚLÍ 1983
Borgarstjóra sýnd áletnin skóflunnar, sem hann notaði í Ártúnsholti, en skóflan fer væntanlega upp i vegg hji
Verkamannabústöðum í Reykjavík, eins og aðrar sem notaðar hafa verið við skóflustungur. F.v. Davíð Oddson,
borgarstjóri, Guðjón Jónsson, formaður stjórnar Verkamannabústaða í Reykjavík og Hilmar Guðlaugsson,
formaðu' byggingarnefndar Reykjavíkurborgar.
Verkamannabústaðir í Reykjavík:
Framkvæmdir hafnar
við fjórða áfanga
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík,
Davíð Oddsson, tók i (ostudaginn
fyrstu skóflustunguna að fyrirhug-
uðum verkamannabústöðum í Ár-
túnsholti. í ræðu sem borgarstjóri
ilutti sagði hann m.a., að þó póli-
tísk samstaða væri ekki alla tíð í
húsnæðismálum þá hefði borgar-
stjórn verið einhuga um fram-
kvæmd þessa byggingaráfanga.
Þakkaði hann stjórn Verkamanna-
bústaða í Reykjavík vel unnið starf
í þessu máli. „Stjórn Verkamanna-
bústaða hefur haslað sér völl,“
sagði Davíð, „hann ber að styrkja
og treysta á komandi árum.“
í þessum byggingaráfanga,
sem er sá fjórði á vegum Verka-
mannabústaða í Reykjavík,
verða um 140 íbúðir í 25 litlum
sambýlishúsum. Grunnteikn-
ingar húsanna eru svipaðar, en
þau verða byggð á tvennan máta,
tveggja hæða og á einni og hálfri
hæð. Verða í hverju húsi 4—7
íbúðir af mismunandi stærðum.
Teiknistofan hf. í Ármúla teikn-
Teikning sem sýnir itlit fyrirhugaðra verkamannabúsUða f Ártúnsholti.
Fjölbýlishús f byggingaráfanga við Eiðsgranda.
aði íbúðirnar og eru það sömu
aðilar og teiknðu íbúðir í þriðja
byggingaráfanga.
í ræðu sem Guðjón Jónsson,
formaður stjórnar Verkamanna-
bústaða í Reykjavík, flutti, áður
en skóflustungan var tekin,
sagði hann m.a. að eftirspurn
eftir íbúðunum væri gífurleg, að
jafnaði fjórar umsóknir um
hverja íbúð. Sagði Guðjón að
áætlað væri að afhenda íbúðirn-
ar í tveimur áföngum, fyrsta af-
hending yrði í september 1984 og
seinni afhending væri áætluð í
árslok 1985.
Að athöfninni lokinni hélt
borgarstjóri ásamt stjórn
Verkamannabústaða í Reykjavík
og gestum til Eiðsgranda, en þar
eru nú fullgerðar íbúðir í verka-
mannabústöðum þriðja bygg-
ingaráfanga. Eru í þeim áfanga
176 íbúðir í sautján fjölbýlishús-
um. íbúðirnar eru af sjö stærð-
um og tilheyrir bílskýli hverri
íbúð, en er ekki innifalið í íbúð-
arverði. íbúðirnar við Eiðs-
granda eru til sýnis í dag, en
þegar hafa um tíu fjölskyldur
flutt inn og er áætlað að 40 fjöl-
skyldur flytji í íbúðir sínar fyrir
20. júlí nk.
Skyldi það ekki fara að bíta á? Helga horfir fbyggin í Hvað eru þessir Ijósmyndarar að trufla mann við
sjóinn og Ragna fylgist með. veiðistörf?
Nú er veður til að veiða
„ÞAÐ er mokveiði," sögðu krakk-
arnir frá starfsvellinum Vesturvöll-
um, þegar blm. Mbl. hitti þau við
höfnina í Reykjavík á föstudaginn,
þar sem þau stóðu á bryggjunni og
dorguðu. Krakkarnir voru fimm-
tán talsins á aldrinum 6—12 ára í
fylgd með tveimur starfsmönnum
Vesturvalla, þeim Rögnu Ingi-
mundardóttur og Sigurveigu Finn-
bogadóttur. Renndu þau fyrir fisk
með hinum ýmsu veiðarfærum,
nokkur í fyrsta sinn en önnur
sögðust oft hafa brugðið sér á
bryggjuna.
Þegar rætt var við þá bræður
Davíð P. Eiríksson og Tómas
voru þeir önnum kafnir við að
leysa kola sem Davíð hafði dreg-
ið á land. Var fiskurinn allfjör-
ugur og gekk erfiðlega að losa
hann en tókst að lokum. Ákváð
Davíð að gefa honum frelsi og
sendi hann aftur í sjóinn. „Það
er gaman að veiða fiskana,"
sagði Davíð. „Þetta er að vísu sá
fyrsti sem ég fæ í dag, samt er
eiginlega ennþá skemmtilegra að
leyfa þeim að fara í sjóinn af-
tur.“ Ekki sagðist Davíð þekkja
alla fiskana en það stæði til
bóta, nú hefði pabbi keypt handa
þeim bræðrum veiðarfæri sem
örugglega yrðu notuð við höfn-
ina í framtíðinni.
Jóhann Ingva Axelsson hitti
blm. þar sem hann sat og renndi
fyrir með veiðistöng. Sagði hann
stöngina góða og húsbóndaholla.
Tvisvar hefði hann misst hana í
vatn en stöngin hefði í bæði
skipti skilað sér aftur. Aðspurð-
„Fyrsti fiskurinn í dag.“ Tómas lagar veiðarfærin á meðan Davfð hampar
kolanum hátt á lofti.
ur um afla sagði Jóhann: „Ég er
búinn að fá tvo kola í dag, ég
held að þetta sé bara ekki nógu
góður veiðistaður. Hér eru koli
og marhnútur og einstaka sinn-
um fæst lýsa. Það er mikið betra
að veiða á bak við Isbjörninn,
þar er stundum hægt að fá ufsa,"
sagði Jóhann, sem er ellefu ára
gamall. Var hann greinilega
fróður um veiðihætti í Reykjavík
og sagði það vel koma til greina
að leggja fyrir sig sjómennsku
þegar hann yrði stór.
Helga Árnadóttir, tíu ára, var
ekkert búin að fiska þegar
spjallað var við hana en sagðist
viss um að nú færi að bíta á hjá
sér. Stalla hennar, Kristín Helga
Lárusdóttir, sem er sex ára,
hafði hins vegar krækt í síli á
sinn öngul. Var Kristín hætt
veiðum og sagði eitt síli vera
nóg.
Jóhann Ingvi situr þolinmóður
með stöngina góðu