Morgunblaðið - 21.08.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.08.1983, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR 189. tbl. 70. árg. SUNNUDAGUR 21. AGUST 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Houston í sárum eftir hvirfilbyl Houston, Texas, 20. ágúst. AP. tiLERBROT lágu á víö og dreif um miöborg Houston í dag og fjöldi íbúa verður án rafmagns á næstunni eftir aö hvirfilbylurinn „Alicia“ þaut um hlöö í borginni. Hreinsun er þeg- ar hafin og halda þjóövarliðar vörö um verzlanir og fyrirtæki unz dag- legt líf færist í eðlilegt horf á ný. Vitað er um átta dauðsföll af völdum bylsins, sem átti upptök í Mexíkóflóa og dundi á ströndum Texas á fimmtudag með hundrað áttatíu og fjögurra kílómetra hraða á klukkustund. Á leið sinni splundraði bylurinn gluggum skýjakljúfa, reif tré upp með rót- um og feykti hjólhýsum til eins og eldspýtustokkum. Þegar leið á föstudag rénaði vindhraðinn smám saman niður í fjörutíu kíló- metra á klukkustund og fjaraði út í suðurhluta Oklahoma. Að sögn lögregluyfirvalda í Houston voru milli sextíu og fimm og sjötíu manns teknir höndum fyrir þjófnað. Tryggingasérfræð- ingar segja að of snemmt sé að veita upplýsingar um tjónið af völdum bylsins, en talið er að i heild nemi það milljörðum doll- ara. Barrskógar upp um allar hlíðar, sól, seglbretti, seglskúta, sléttur sjór. Ekki sumarmynd frá suövesturhorninu, svo mikið er víst. Þessi fallega mynd er frá Eyjafiröi skammt út af Akureyri, höfuðstaö Norðurlands. Ljósm. KÖE. Eftir hvirfilbyl Pólland: Herstjórnin leysti upp rithöfundasambandið Varsjá, 19. ágúst. AP. PÓLSKA herstjórnin leysti í gær upp pólska rithöfundasambandið og hef- ur þar með lokiö afgreiöslu sinni á hinum frjálsu verkalýösfélögum og öörum hagsmunasamtökum í land- inu, sem ógnuöu kommúnistastjórn- inni árin 1980 og 1981 er Samstaða var öflugust. Hér var um 1.300 manna sam- band að ræða og eldri stjórnar- menn þess óttast að í kjölfarið fylgi nýtt samband stofnað af yf- Chile: Landrækir velkomnir Saníiago, Chile, 19. ágúst. AP. HERSTJÓRNIN í Chile, undir for- sæti Augusto Pinochets, sendi í gær frá sér lista yfir þá pólitísku útlaga sem heimiluð var landvist á ný. 1147 nöfn voru á listanum, þ.á m. margir kunnir stjórnarandstæðingar og andófsmenn. Allt frá síðustu jólum hefur stjórnin sent mánaðarlega frá sér slíka lista og er sá nýjasti lang- Sigldi sjónlaus yfir Kyrrahafið Honululu, Hawai, 20. ágúst. AP. HANK DEKKER sigldi fleyi sínu heilu í höfn í dag og er hann fyrsti blindi maðurinn til aö feröast ein- samall sjóleiöis frá San Fransisco til llawai. Garpurinn hafði lagt úr höfn í San Fransisco 27. júlí og ferðast þrjú þúsund og átta hundruð kíló- metra leið yfir hafið. Félagar sigl- ingaklúbbs í Honululu fylgdu Dekker til hafnar síðustu kíló- metrana, en þar fögnuðu honum skyldfólk, aðdáendur og frétta- menn. „Hann sagði í byrjun að hann myndi verða hér í dag,“ sagði kunningi hans móttöku- nefndinni. Skúta Dekkers, sem ber heitið „Dökka stjarnan", er aðeins átta metrar að lengd. Sagðist siglinga- maðurinn hafa notað blindrakort og blindraáttavita, „talandi" klukku og siglingaútbúnað, er las honum staðarákvarðanir upphátt. Dekker sagðist hafa tekizt ævin- týraferðina á hendur til að „sanna fyrir bækluðu fólki að það gæti gert nýja hluti" og þyrfti ekki að vera eftirbátur annarra. Pinochet. stærstur til þessa. Tveir kunnir andstæðingar Pinochet-stjórnar- innar fá nú leyfi til að flytja aftur til Chile, Jaime Castillo, hug- myndafræðingur úr Kristilega demókrataflokknum og fyrrum dómsmálaráðherra, og Gerardo Espinosa, innanríkisráðherra í forsetatíð Salvador Allende. Cast- illo hefur búið í Venezuela síðustu árin. Hann sagði í samtali við fréttaskýrendur að hann væri hinn kátasti með tíðindin, en gat þess jafnframt að enn væru þús- undir Chilemanna í nauðugri út- legð. irvöldum og skipað þeim rithöf- undum sem sætta sig við að stjórnvöld ritskoði öll sín verk. Félagar í hinu uppleysta sam- bandi muni því lítið erindi eiga í slíkt félag, enda hafa þeir flestir vegna ritskoðunar í landinu fengið verk sín prentuð í neðanjarðar- prentsmiðjum, eða þá erlendis. Rithöfundasambandið var löngum talið síðasta vígi frjálsrar hugsun- ar í Póllandi og einn stjórnarmað- ur þess sagði að þessi atburður yrði til þess að pólskir mennta- menn myndu einangra sig enn meira frá stjórnvöldum landsins og myndi áhrifa þess gæta um „ókomin ár“. Talsmenn innan pólska mennta- málaráðuneytisins neituðu að ræða við fréttaskýrendur, hins vegar greindi hin opinbera frétta- stofa PAP frá atburðinum. Þar sagði að hin 32 manna stjórn sam- takanna hefði látið þá félaga sína vaða hvað mest uppi sem áttu mest pólitísk samskipti við and- ófsmenn bæði í Póllandi og er- lendis. „Störf þessara manna unnu gegn hagsmunum stjórnvöldum og pólsku þjóðinni í heild." Talið er að ýmsir hinna hófsam- ari í pólsku herstjórninni, þ.m.t. forsetinn, sjálfur Jaruzelski hers- höfðingi, hafi mánuðum saman freistað þess að ná samkomulagi við rithöfundasambandið, deilu- málin hafi hins vegar verið of viðamikil til að slíkt gæti heppn- ast. Rússland: Spilltur lögreglu- foringi settur af Moskva, 19. ágúst. AP. UPPSTOKKUN hefur veriö gerð í umferðardeild sovésku lögreglunar, en spilling innan þeirrar deildar þótti orðin mun meiri en góöu hófi gegndi. Um foringjaskipti var að ræða, Valery Lukyanov, sem setiö haföi síðan 1968, var látinn víkja, en í staö hans var skipaður j firmaöur deildarinnar Viktor Piskar- Að undanförnu hefur verið and- spillingarhreyfing í gangi í Sovét- ríkjunum og Yuri Andropov, for- seti og aðalritari, þannig freistað þess að auka vinnuaga og þvíum- líkt til að beita gegn fremur döpru efnahagslífi. Þessi breyting innan lögreglunnar virðist liður í þessari hreyfingu. Sovésk alþýða frétti af breyting- unni með hefðbundinni Kremlað- ferð. Engin opiber tilkynning var gefin út, hins vegar las alþýða manna í dagskrá sjónvarps, sem birtist í Prövdu í gær, að Piskarev, yfirmaður umferðardeildar sov- ésku lögreglunar, myndi kynna nýjan þátt um umferðaröryggi sama dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.