Morgunblaðið - 09.10.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.10.1983, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR 231. tbl. 70. árg. SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983 Prentsmiöja Morgunblaösins Loka Iran- ir Hormuz- sundi? Morlaix, Frakklandi, 7. október. AP. FRÖNSK stjórnvöld neituðu hvorki í gær eða játuðu að hafa sent frök- um fimm Super Etenard-orrustuþot- ur, sem sérsmíðaðar eru til að skjóta hinum hættulegu Exocet-flugskeyt- um. franir höfðu áður hótað að ef úr yrði, myndu þeir loka hinni miklu olíuflutningsæð, Hormuz-sundi. Ónafngreindir heimildarmenn báru fram fregnirnar á föstu- dagskvöldið og svo aftur í gær. ír- akar hafa fyrir nokkru fengið talsvert af fyrrgreindum Exocet- skeytum frá Frökkum og hafa lagt fast að þeim að fá þoturnar sem allra fyrst. Stjórnvöld í París hafa ekki haft hátt um málið frá upp- hafi, einkum vegna hótana írana um lokun sundsins. Þá hafa Bret- ar, Bandaríkjamenn og fleiri Vest- urlandaþjóðir hvatt Frakka til þess að selja frökum ekki um- ræddar þotur vegna vandræðanna sem það kynni að hafa í för með sér. 600 ára pen- ingaseðlar á uppboði Lundúnum, 8. október. AP. ELSTTU peningaseðiar heims, sem vit- að er um, voru seldir á uppboði í Lundúnum í gærdag. Um er að ræða 3 seðla, sem prentaðir voru í Kína á valdatímum Ming keisara á 14. öld. Fengust 670 sterlingspund fyrir seðl- ana þrjá eða sem svarar 28.000 ísl. krónum. Peningaseðlar þessir eru að verð- gildi eitt „kwan“ og eru hvorki meira né minna en 30 sm langir. Munu þeir hafa verið prentaðir ein- hvern tíma á bilinu 1368—1399. Verðeiningin „kwan“ var geysihá á þessum tíma og þeir, sem ekki voru af ættum Mandarína, gátu aðeins látið sig dreyma um slíka upphæð. Ljósm. Jóhann G. Kristinsson. Þessi fallega mynd talar sínu máli. Er hún frá sumrinu sem nú hefur kvatt landsmenn. Kínverjar skera upp herör gegn glæpum: Yfir þúsund afbrotamenn hengdir frá því í ágúst Peking, 8. október. AP. BJARTVIÐRISDAG nokkurn í Kína í síðasta mánuði voru 30 af- brotamenn hengdir skammt frá Marco Polo-brúnni i Peking. Þess- ar aftökur eru síður en svo nokk- urt einsdæmi. Frá því þetta fréttist hafa fregnir borist af yfir 30 henging- um á einum degi í Shanghai. Áfram er hægt að telja; 40 í Ti- anjin, 30 í Harbin, 43 í Xian, 22 í Datong, 12 í Beidahe. Þetta eru aðeins nokkur dæmi og enginn nema yfirvöld í Kína veit með vissu hver er heildartala þeirra afbrotamanna, sem hengdir hafa verið á undanförnum vikum. Heimildir innan raða erlendra diplómata í landinu herma, að a.m.k. 1000 manns hafi verið hengdir frá því í ágúst i mikilli herferð stjórnvalda gegn glæp- um. Þessum fjöldahengingum hefur ekki verið leynt fyrir al- menningi og jafnvel ferðamenn bera því við, að þeir hafi séð lík- in dinglandi í snörunum. Fátt bendir til þess, að þessari hengingaröldu sé að ljúka. Að sögn erlendra diplómata settu yfirvöld í Kína sér það takmark að aflífa 5000 afbrotamenn og handtaka 50.000 fyrir lok þessa mánaðar. Segja þeir jafnframt, að aftökurnar séu liður í þriggja mánaða herferð yfirvalda gegn glæpum í landinu. Talsmenn stjórnvalda hafa ekki viljað staðfesta þessi ummæli. Viðurlög við afbrotum hafa mjög verið hert í Kína jafnframt því sem lögregla og dómstólar hafa óskoraðra vald en áður. Af- brot, sem áður þýddu fangelsis- dvöl, geta nú leitt til dauðadóms. Þá eru afbrotamenn í auknum mæli sendir í þrælkunarvinnu í saltnámunum í Qinghai. Aðrir, sem ekki hafa eins alvarlega glæpi á samviskunni, eru sviptir búsetuleyfi í viðkomandi borg og sendir út á landsbyggðina. Að sögn erlendra diplómata þykja aðgerðir yfirvalda um margt minna á skelfingarskeið það, sem kennt var við fjór- menningaklíkuna. Þeirri stefnu, að senda afbrotamenn í betrun- arbúðir, hefur verið varpað fyrir róða með þeim ummælum, að til þessa hafi allt of mikil linkind verið sýnd. Sýnt sé, að ekkert nema harka dugi í baráttunni gegn glæpamönnum í landinu. Rússar rógbera Walesa Moskva, 7. október. AP. Sovéskir fjöl- miðlar höfðu enn ekki greint frá því að pólski verka- lýðsleiðtoginn Lech Walesa hefði hlotið friðarverðlaun Nóbels í gær, hins vegar var mikill rógur og níð um Walesa í sovéskum blöðum og útvarpi. Sögðu sovésku fjölmiðlarnir frá lélegri segulbandsupptöku sem pólsk stjórnvöld voru sögð hafa komið höndum yfir. Á spólunni sögðu kommúnistar vera samtal Lech Walesa og bróður hans, Stanislaws, þar sem Walesa var að segja að hann hefði lagt stórfé inn í banka Vatíkansins og Stanis- law skyldi fara utan og fjár- festa fyrir sig. Sögðu sovésku fjölmiðlarnir að Walesa hefði auðgast mjög á því að sá hatri og stjórnleysi í Póllandi, fyrir það hefðu Vesturlönd borgað vel og Walesa væri nú millj- ónamæringur. Nicaragua: Harðir bardagar í nótt Managua, Nicaragua, 9. október. AP. TIL ÁTAKA kom í gær á milli hermanna stjórnarinnar og skæruliða skammt frá landa- mærunum við Costa Rica, að því er talsmenn stjórnarhers- ins sögðu í morgun. Réðust skæruliðarnir á stjórnarherinn með sprengju- vörpum seint í gærdag í E1 Naranjo-héraði, um 10 kíló- metra suður af höfuðborg- inni Managua. Hart var bar- ist þangað til seint í nótt, en tölur um fallna og særða lágu ekki fyrir. Utanríkisráðuneytið í Nic- aragua skýrði á fimmtudag frá því, að 300 skæruliðar biðu átekta rétt innan landamæra Costa Rica, reiðubúnir að ráðast á bæ- inn Penas Blancas hinum megin landamæranna. Fóru stjórnvöld í Nicaragua fram á það við yfirvöld í Costa Rica í gær, að þau gerðu allt sem í þeirra valdi stæði til að stöðva yfirvofandi árás og forðuðu þannig blóðsút- hellingum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.