Morgunblaðið - 11.10.1983, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 11.10.1983, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983 Einar Bollason: „Webster er bannað að Ipika með samkvæmt reglum KKI sem eiga alls ekki rétt á sér“ „Njarðvíkingar áttu fyllilega skilið að sigra í þessum leik, þeir voru mun betri en spiluðu aö mínu mati allt of grófa vörn og ef þeir veröa jafn heppnir með dómara í komandi leikjum og þeir voru í þessum leik þá eiga þeir eftir aö ná langt," sagði Einar Bollason þjálfari Hauka eftirleikinn á sunnudag- inn. „Viö spiluöum hins vegar ekki með fullt liö þar sem einum leikmanna okkar, Dakarta Webster er bannaö að leika meö, samkvæmt reglum KKl sem eiga alls ekki rétt á sér. Hann er búinn aö búa hér á islandi í mörg ár og þaö er hart bæöi fyrir hann og „ . .... . u . okkur aö hann skuli þurfa að • E,nar Bollason þjálfan Hauka. horfa á félaga sína spila. Næsta mál er því aö sækja um ríkisborgararétt fyrir hann og þaö verður aö takast því án hans getum viö ekki náö langt. Liöiö er ungt enda uppistaðan 2. flokkur frá því í fyrra og alla hörku og styrkleika vantar. Þaö er ýmislegt sem þarf aö laga en meö reynslunni kemur þetta hjá strákunum og ég er viss um aö þeir eiga eftir aö spjara sig,“ sagöi Einar ennfremur. Aöspuröur hvað honum fynd- ist um hiö nýja fyrirkomulag á úrvalsdeildinni sem tekiö veröur upp nú í vetur sagði Einar aö sér litlst mjög vel á þaö. „Þetta gerir þaö aö verkum aö mótið verður miklu skemmtilegra í alla staöi en jafnframt erfiöara," sagöi Einar Bollason og vatt sér i sturtu. — BJ. Öruggur sigur UMFN á nýliðum Hauka NÝLIÐARNIR í Úrvalsdeildinni I körfubolta, Haukar, spiluðu sinn fyrsta leik í deildinni á sunnudag- inn er Njarðvíkingar sóttu þá heim. Gestirnir höfðu betur, eftir aö hafa veriö undir framan af, skoruðu 88 stig gegn 73. Staðan í hálfleik var 44—32 Njarövíkingum í vil. Þaö er Ijóst aö án Dakarta Webster vantar Haukaliðið mikið, leikmenn liösins eru ungir og óreyndir og tilfinnanlega vantar meiri kjölfestu ( liðið. Hinar nýju reglur KKÍ sem settar voru ( vor kveða svo á um aö Webster megi ekki spila með, og situr hann því á bekknum. Svo vikiö sé aftur aö leiknum, þá byrjuöu Haukarnir vel, komust í 4—0 og síöan 6—2. Njarövíklngar virtust frekar þungir til aö byrja með en um miðjan fyrri hálfleikinn fóru þeir aö taka viö sér og komust þá fyrst yfir, 26—27. Þegar hér var komiö sögu hrökk allt í baklás hjá Haukunum, sem sést best á því aö á síöustu 11 mínútum fyrri hálfleiks skoruöu þeir aöeins 3 körfur. A þessum kafta kom reynsluleysi þeirra best í Ijós þar sem þeir réöu engan veginn viö þann hraöa sem var kominn í leikinn. Njarövíkingar fóru sér hins vegar aö engu óöslega og sigu í rólegheitum framúr. Eftir aö hafa verið 12 stigum undir í hálfleik tókst Haukunum aö minnka muninn niöur í eitt stig, 49—50, á tæpum tíu mínútum í seinni háifleiknum. Njarövíkingar tóku þá góöan sprett og þegar fimm mínútur voru til leiksloka var staöan 75—61. Munaði þar mest um stórgóöan leik Vals Ingimund- arsonar sem skoraöi hverja körf- una á fætur annarri á þessum kafla. Auk þess var vörn UMFN föst fyrir og ekki auövelt fyrir Haukana aö komast í gegnum hana. Njarövíkingar hóldu sínu striki allt til loka leiksins og sigruöu veröskuldaö meö 88 stigum gegn 73 eins og áöur sagöi. Valur átti bestan leik hjá UMFN aö þessu sinni, skoraöi 24 stig og megniö af þeim í lokin þegar mest reiö á. Þeir Árni Lárusson, Sturla Örlygsson og Gunnar Þorvaröar- son áttu allir góöan ieik og ekki má gleyma ungum og efnilegum leik- manni, Kristni Einarssyni, sem er aöeins 16 ára gamall og á framtíö- ina fyrir sér. Haukar — UMFN 73-88 Hálfdán Markússon og Pálmar Sigurösson voru yfirburðamenn í liði Hauka og skoruöu þeir samtais tæplega tvo þriöju stiga liösins. Pálmar var þó full bráöur á köflum, en þegar hann hefur fundiö réttu fjölina, eins og sagt er, þá er hittni hans alveg einstök. Túliniusson og Jón Otti. Dæmdu þeir þokkalega en heföu mátt taka harðar á brotum. Stig UMFN: Valur Ingimundar- son 25, Árni Lárusson 18, Sturla Örlygsson 14, Gunnar Þorvaröar- son 13, Kristinn Einarsson 6, Júlí- us Valgeirsson, ísak Tómasson og Ástþór Ingason 4 stig hver. Stig Hauka: Pálmar Sigurösson 24, Hálfdán Markússon 23, Ólafur Rafnsson 12, Henning Hennings- son, Kristinn Kristinsson og Reynir Kristjánsson 4 stig hver og Sveinn Sigurbergsson 2 stig. Domarar i leiknum voru Höröur — BJ. • Leikur Hauka og Njarðvíkinga var oft vel spilaöur og geta nýliðarnir í úrvalsdeildinni nokkuð vel við unað þrátt fyrir tap. Þeir eru með efnilegt lið sem getur náö langt. Liö UMFN verður án efa í baráttunni um toppinn í vetur, þeir eru með sterkt lið. • Pálmar Sigurðsson, Haukum, er í geysilega góðri æfingu um þessar mundir og spilar afar vel. Hér er Pálmar í baráttu við einn leikmann Njarðvíkur og hefur betur. MorBunbiae»/ Friéþjóíur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.