Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.10.1983, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 248. tbl. 70. árg._______________________LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1983___________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Dæluskipinu Sandey II hvolfdi á Engeyjarsundi: „Allt gerdist þetta svo ótrúlega hrattu — segir Ingi Lík eins skip- verja fundið — þriggja saknað TVEIMUR skipverjum af sanddælu- skipinu Sandey II var bjargaö, þriggja er saknað og einn fannst lát- inn um borð, eftir að skipinu hvolfdi á Engeyjarsundi um klukkan níu í gærmorgun. Skipverjinn sem fannst látinn hét Torfi Sölvason, stýrimað- ur. Nöfn skipverjanna sem er sakn- að eru: Guðmundur Jónsson, skip- stjóri, Kjartan Erlendsson, vélstjóri, og Emil Pálsson, matsveinn. Þeir sem björguðust eru Ingi Þórisson og Sigurður Sveinbjörnsson. Tilkynning um slysið barst Slysa- varnafélagi íslands klukkan 9.02. Þegar voru gerðar ráðstafanir til að senda björgunarlið á staðinn. Olíu- báturinn Héðinn Valdimarsson var fyrstur að Sandey. Tveir skipverjar, þeir Ingi og Sigurður, voru þá sjá- anlegir, Sigurður í sjónum við skipshlið og Ingi á skipinu. Skip- verjum á Héðni tókst að bjarga Sig- urði upp á skipið og skömmu síðar flutti lóðsbátur þá í land. Heyrðu hljóð, sem talin voru koma frá skipverjum Þegar var hafist handa um að bjarga skipverjum úr Sandey, en talið var að þeir hefðu lokast inni f skipinu. Björgunarmenn heyrðu hljóð, sem talin voru koma frá skipverjum. Kafarar fóru undir skipið og um klukkan ellefu fundu þeir Torfa Sölvason, stýrimann, en hann var úrskurðaður látinn þegar komið var með hann í Borgarspítal- ann. Ekki þótti þorandi að opna botn skipsins þar sem óttast var að það sykki. Því var brugðið á það ráð að draga prammann í átt að Engey. Brú skipsins stóð í botni um 300 metra frá Engey og tókst ekki að þoka skipinu nær eynni. Björgunarmenn logskáru gat á botn skipsins og fóru kafarar niður, en þrátt fyrir ítarlega leit fannst enginn skipverja. Um miðjan dag í gær var leit hætt í Sandey. Leitað var á sjó og með ströndum, en án árangurs. Leit verður haldið áfram í dag. „Eg fór úr peysunni og Sigurður náði taki á henni“ „Allt gerðist þetta svo ótrúlega hratt — ég giska á á innan við 30 sekúndum. Eg stóð ráðvilltur á prammanum en fór strax að svipast um eftir félögum mínum. Ég sá björgunarhring í sjónum skammt frá og heyrði svo kallað og kom þá auga á Sigurð svamlandi í sjónum, líklega 10 til 15 metra frá skipinu. Ég fór úr peysunni og Sigurður náði taki á henni og hékk í henni. Við fikruðum okkur aftur eftir skipinu, þar sem eina vonin var um að hann kæmist upp á prammann," sagði Ingi Þórisson, háseti á Sandey, en honum tókst að bjarga félaga sín- um. Sjá viðtal við Inga Þórisson, há- seta, og sjónarvotta á baksíðu, ennfremur frásagnir, viðtöl og myndir á blaðsíðum 18, 19, 24, 25. Rússnesk og kúbönsk vopnabúr á Grenada Poinl Salines, (.renada, 28. október. AP. KÚBUMENN og hermenn úr stjórnarhernum veittu enn í dag nokkra mót- spyrnu í fjöllunum í kring um höfuðstaðinn á Grenada, St. George’s, en að öðru leyti er eyjan öll í höndum Bandaríkjamanna. Fundist hafa miklar vopnabirgðir í fimm stórum vöruhúsum. Sovéskir sendimenn á Grenada höfðu í dag samband við fulltrúa bandaríska utanríkisráðuneytisins á eyj- unni og sögöu, að auk 49 Sovétmanna væru í húsakynnum þeirra Kúbumenn, Austur-Þjóöverjar, Búlgari og Norður-Kóreumaður. Reagan, Bandaríkjafor- seti, flutti í nótt ræðu og sakaði Sovétmenn um að kynda undir ofbeldi og óróa jafnt á Grenada sem í Líbanon. Kúbumenn og nokkur hópur itjórnarhermanna veittu enn mót- ipyrnu í dag í fjöllunum umhverfis 3t. George’s en yfirmenn banda- •íska herliðsins kváðu það aðeins ímaspursmál hvenær bardögunum yki. Éru Kúbumennirnir taldir vera ím 200 talsins og ekki vita af því ægna sambandsleysis við Kúbu, að æirra eigin stjórnvöld hafa skipað >eim að gefast upp. Bandaríkja- nenn hafa misst 11 menn, sjö er saknað og 67 eru særðir. Mannfall í liði Kúbumanna er a.m.k. 30 manns. Fimm stór vöruhús á Grenada reyndust við athugun vera yfirfull ' af vopnum af sovéskri og kúbanskri gerð og sagði Frank Akers, undirof- ursti í Bandaríkjaher, að vopna- búnaðurinn nægði 8—10.000 manna skæruliðaher i „langan, langan tíma“. Kúbumenn segja þessi vopn hafa verið ætluð stjórnarhernum en birgðirnar þykja með ólikindum miklar fyrir 1000 manna her. Þrír sovéskir sendimenn á Gren- ada höfðu í dag samband við full- trúa bandaríska utanríkisráðuneyt- isins í fyrsta skipti frá því að Bandaríkjamenn gengu á land og skýrðu frá því, að auk 49 Sovét- manna og skylduliðs þeirra væru í sovéska sendiráðinu ótilgreindur fjöldi Kúbumanna, þrír Austur- Þjóðverjar, Búlgari og Norður- Kóreumaður. Sagði Alan Romberg, talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins, að þessar upplýs- ingar hefðu komið mjög á óvart og einkum komið flatt upp á Paul Scoon, landstjóra Breta á eyjunni, sem ekki hafði hugmynd um menn- ina af þremur síðastnefndu þjóðern- unum. Reagan, Bandaríkjaforseti, flutti í nótt ávarp til þjóðar sinnar þar sem hann skýrði ástæðurnar fyrir land- göngu Bandaríkjamanna á Grenada. Sakaði hann Sovétmenn um að ýta undir ofbeldis- og hryðjuverk jafnt í Grenada sem í Líbanon og sagði Kúbumenn hafa ætlað að leggja undir sig Grenada. Sagði hann gíf- urlegar vopnabirgðir á eynni benda til þess og að auki fjölda Kúbu- mannanna, sem hefðu ekki verið 600 verkamenn, kennarar og læknar heldur um 1000 vel þjálfaðir her- menn. Blaðið Philadelphia Inquirer birti í dag frétt frá Knight-Ridder- fréttastofunni bandarísku þar sem sagði, að bandaríska leyniþjónustan hefði undir höndum ljósmyndir af eldflaugabyrgjum, sem hefðu verið í smíðum á Grenada. Hafa þessar fréttir ekki verið staðfestar. Sjá frekari fréttir af atburðunum á Grenada á bls. 22—23. Þórisson, annar tveggja skipverja sem björguöust Morgunblaöió/Kristján Einanwon Björgunarmenn á botni Sandeyjar hlusta eftir svörum við hljóðmerkjum sínum, en þeir heyrðu hljóð, sem talin voru koma frá skipverjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.