Morgunblaðið - 02.11.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.11.1983, Blaðsíða 32
BítlaæöiöVV H0LUW90D Opiö öll kvöld MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1983 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Berit tók niðri við Engey FLUTNINGASKIPIÐ Berit, sem er leiguskip Hafskips hf., en í eigu finnskra aðila, tók niðri suður af Engey þegar skipið var að fara út úr Keykjavíkurhöfn í gærkveldi. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Bjðrgólfi Guðmundssyni, forstjóra Haf- skips, sigldi skipið upp á sandrif við Engey. Með flóðinu tókst síð- an hafnsögubátunum að ná skip- inu á flot. Bjóst Björgólfur við því að skipið myndi sigla eins og ekk- ert hefði í skorist, því ekki var talið að um skemmdir væri að ræða á skipinu. Varpa kúlu 100 km leið UM AÐRA helgi munu nemendur Iþróttakennaraskólans á Laugar- vatni safna fé til styrktar íslenskum Olympíufórum á frekar óvenjulegan hátt. Þeir ætla að varpa kúlu 100 km leið frá Laugarvatni til Reykjavík- ur. Fyrsta kastið verður á hlaðinu fyrir framan íþróttakennaraskól- ann en endað verður á Laugar- dalsvellinum í Reykjavík. Sjá frétt á íþróttasíðu. Skipið sem sökk, ms. Kampen, var smíðað í Kína í ársbyrjun: Verðmæti farmsins lið- 8 milljónir króna Á þessu korti má glöggt sjá hvar ms. Kampen fórst á Kötlugrunni um 50 sjómflur austur af Vestmannaeyjum, en skipið var á leið frá Amsterdam með kolafarm fyrir Sementsverksmiðjuna. Koct MbL g.ó.i. lega Stórflutningaskipið ms. Kamp- en, sem fórst undan suðurströnd íslands í gærkvöldi, var f eigu þýzka útgerðarfyrirtækisins Schulz og Kleraensen í Hamborg, sam- kvæmt upplýsingum sem Morgun- blaðið fékk hjá Eimskipafélagi ís- lands, sem var með skipið á leigu síðustu vikur. Skipið var leigt til sérstakra tímabundinna stórflutninga- verkefna, s.s. flutninga á vikri, brotajárni, kolum og fleiru. Ms. Kampen var á leið frá Amster- dam með 5.300 tonn af kolum fyrir Sementsverksmiðju ríkis- ins á Akranesi, en verðmæti farmsins nam liðlega 8 milljón- um króna. M/s Kampen var sjósett í janúar á þessu ári í Zhonghua, skipasmíðastöðinni í Shanghai í Kína, en það er byggt samkvæmt þýzkum teikningum og eftir ströngustu kröfum flokkunar- fyrirtækisins Germanische Lloyds. Burðargeta skipsins var 6.150 tonn og var um 280 þúsund rúm- fet að stærð. Það var sérstaklega búið til stórflutninga og einnig með búnað til gámaflutninga. Lestar skipsins voru boxlaga og með stórum síðutönkum. Allur tækjabúnaður ms. Kampen var þýzkur, og var það búið öllum fullkomnustu siglingatækjum sem tíðkast í þýzkum skipum. Skipið hafði verið í leigu hjá Eimskip frá 12. september, en fyrirhugað var að skila skipinu úr leigu 11. nóv- ember nk. í Rotterdam. Að sögn Eimskipafélags- manna reyndist skipið í alla staði hentugt í þeim flutningum sem það var notað í á vegum fé- lagsins. Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra um birgðastöðuna á Bandaríkjamarkaði: 1138 milljón króna hækkun á einu ári „MÉR FINNST viðbrögd forráðamanna Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna með ólíkindum. Ég sé ekki betur en að þeir ætli að snúast við hógværum athuga- semdum mínum með innantómum hrópyrðum og útúrsnúningum. Ég tel þess vegna rétt að rifja upp innihald þeirra orða sem ég viðhafði á Hafnarfjarðar- fundinum," sagði Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra í tilefni af yfirlýsing- um Þorsteins Gíslasonar framkvæmdastjóra Coldwater í Mbl. sl. laugardag, en þar segir Þorsteinn m.a. að Sverrir rangfæri birgðastöðuna í Bandaríkjunum. Eimskipafélagsmenn ásamt Hannesi Þ. Hafstein, framkvæmdastjóra Slysa- varnafélagsins, sitjandi. F.v. Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, Garð- ar Þorsteinsson, forstöðumaður Norður-Araeríku- og stórflutningadeildar, Þórður Sverrisson, blaðafulltrúi Eimskips, og Þórður Magnússon, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Eimskips. Ljósm. Mbl. KÖE Sverrir sagði síðan: „Ég sagði þar að það hlyti að vekja áhyggjur að sjá birgðir freðfisks á Bandaríkja- markaði nær tvöfaldast frá því á sama tíma í fyrra. Menn hlytu að hafa áhyggjur af þessu og eins hlytu menn að spyrja hvernig standi á því að þessi sölusamtök Árangurslaus leit á Breiðafirði í gær „ÞYKLA varnarliðsins fór af stað til leitar á Breiðafirði um klukkan 7.00 í morgun og einnig eldsneytisvél frá varnarliðinu," sagði Hannes Haf- stein, framkvæmdastjóri Slysa- varnafélags íslands, í samtali við Morgunblaðið í gær er hann var spurður um ieit að skipverjunum þremur sem saknað er af Hafernin- um sem fórst við Bjarneyjar í gær. „Þyrlan var í Stykkishólmi um klukkan 8.00 og flutti 12 manna hóp úr Slysavarnasveitinni þar og fulltrúa sýslumanns út í Bjarneyj- ar til leitar í eyjunum. Síðan hóf þyrlan leit á svæðinu. Tíu bátar fóru einnig til leitar og um borð í flóabátnum Baldri var 30—40 manna hópur úr björgunarsveit- um Slysavarnafélagsins á norðan- verðu Snæfellsnesi og höfðu þeir meðferðis fjóra báta til að komast í land í eyjunum," sagði Hannes. „Sjó var mikið tekið að lægja, en gekk á með éljum, en þess á milli var gott leitarveður, þó hvasst væri í lofti. Ekkert fannst og vél- arnar komu til baka laust eftir klukkan 16.00, en leitarmenn voru í eyjunum alveg fram í myrkur," sagði Hannes Hafstein. okkar, hálfgerð einokunarsölusam- tök, SÍS og Sölumiðstöðin, þrætast á um undirstöðuatriði í sölu- mennskunni, sjálft verðið. Ég spurði: Er hætta á að Kanadamenn séu að vinna þennan markað af okkur með undirboðum og að verð okkar sé of hátt? Ég sagði að mér fyndust þeir hafa verið athafnalitl- ir þó þeir hefðu unnið fullkomin af- reksverk hér áður. — Mér fyndist að þeir hefðu um of lítið aðhafst í markaðsleit undanfarin ár og væru eins og ég orðaði það, kannski frosnir fastir. En hver eru svo viðbrögðin? Það er reiknað út í snatri að ég krefjist lækkunar sem nemi einhverjum 300 íbúðarhúsum — eða voru það kannski 300 togar- ar? Staðreyndin er sú, að daginn fyrir Hafnarfjarðarfundinn fékk ég í hendur frá Seðlabanka íslands skýrslu þar sem segir að freðfiskur á Bandaríkin hafi numið 1248 millj. kr. í ágúst 1982. 1 ágúst 1983 segir að freðfiskur á Bandaríkin hafi numið 2386 millj. kr. Það var um þessa tölu sem ég var að tala og menn geta reiknað það út, að þetta er einhvers staðar yfir 90% aukn- ing. Hér er um óvefengjanlegar staðreyndir að tala. Síðan er allur málflutningur í samræmi við þessi orð hins virðu- lega forstjóra, þar sem hann orðar það svo, að ég sé að vinna óskiljan- leg skemmdarverk og fleira í þeim dúr, að ég viðhafi lausmælgi og fleira. Ég hlýt að spyrja: Er maður með réttu ráði sem þannig talar? Og eru sölusamtökin hafin yfir alla gagnrýni eða athugasemdir. Auð- vitað er leiðtogum og forustu- mönnum sjálfrátt, hvernig þeir mæta aðfinnslum eða athugasemd- um eða umræðum, en það er ekki traustvekjandi slíkt háttalag sem þeir hafa í frammi með þennan blekkingarvaðal og vængjabusl." Kærður fyrir nauðguná13 ára stúlku LIÐLEGA tvítugur maður á Hellu hefur verið kærður fyrir að hafa nauðgað 13 ára gamalli stúlku. Hún gætti barna fyrir manninn á laugardagskvöldið. Hann kom ölvaður heim til sín og neytti aflsmunar til þess að koma fram vilja sínum. Hann hefur verið sendur í úttekt vegna eldri dóms, sem hann átti eftir að afplána — það var fyrir minniháttar brot.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.