Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983 Páfí í kirkju lúterstrúarmanna Páll páfi II mætti kom til messu lúterstrúarmanna í Róm fyrir skömmu. Á meðfylgjandi mynd frá AP má sjá trúarleiðtogann á tali við séra Christoph Meyer. Hafréttarsáttmálinn til umræðu: Þrýst á Bandaríkja- menn að skrifa undir Sameinuðu þjóðunum, 15. desember. AP. MIKILL MEIRIHLUTI fulltrúa á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna lagði í g«r hart að Bandaríkjamönnum að láta af andstöðu sinni við hafréttarsáttmál- ann og skrifa undir hann. Fór fram atkvæðagreiðsla um málið og greiddu 135 fulltrúar atkvæði með áskoruninni, aðeins tveir á móti, en fulltrúar sex landa sátu hjá. Það voru fulltrúar Bandaríkj- anna og Tyrklands sem greiddu at- kvæði gegn áskoruninni, en full- trúar Belgíu, Bólivíu, Vestur- Þýskalands, Israels, Ítalíu og Bret- lands sátu hjá. Það tók átta ár að púsla saman sáttmálanum á sínum tíma og var hann samþykktur af 132 löndum þrátt fyrir andstöðu Bandaríkjanna frá upphafi. Hins vegar hefur undirskrift aðeins verið staðfest af þjóðþingum 9 landa og sáttmálinn mun ekki taka gildi fyrr en einu ári eftir að staðfesting ligg- ur fyrir í 60 löndum. Martin Lars Lindahl, fulltrúi Bandaríkjanna, sagði i ræðu í gær, að ýmis ákvæði sáttmálans hiunn- færu iðnríki og vernduðu ekki hags- muni þeirra. Atti hann einkum við þann pistil sáttmálans sem kveður á um að vinnsla jarð- og steinefna á hafsbotni á alþjóðlegum siglinga- leiðum væri „sameiginleg arfleifð mannkynsins". Talið er að vinna megi mangan, nikkel og kopar af hafsbotni fyrir óheyrilegar upp- hæðir. Lindahl gat þess einnig, að Bandaríkin væru reiðubúin að greiða ekki gjöld sín til hafréttar- ráðsins ef sáttmálinn verður sam- þykktur án breytinga. Bandaríkjamenn, svo og Tyrkir, voru harðlega gagnrýndir fyrir af- stöðu sína, einkum var sovéski full- trúinn harðorður í þeirra garð. Nær allur þriðji heimurinn styður sátt- málann. MötuÖ tölva skilar áliti: „Líkklæðin“ frá dögum Krists Chieago, 15. desember. AP. NÝ OG UMFANGSMIKIL tölvurannsókn hefur að mati rannsóknarmanna leitt ýmislegt í Ijós sem þykir styðja þá skoðun margra að „líkklæði Krists“, sem svo hafa verið kölluð, kyrtill sem varðveittur er í Torínó á Ítalíu, séu í raun og veru frá dögum Krists, þó ekki sanni hún að útlínurnar af mannslík- ama sem í klæðinu eru séu útlínur frelsarans. Þetta er ítarlegasta tölvurann- sókn sem gerð hefur verið á kyrtl- inum og séra Francis Filas, guð- fræðiprófessor, sem stýrði rann- sókninni sagði að fundist hefðu útlínur tveggja nýrra stafa á út- línum af mynt sem fundist hafa á klæðinu. Segir Filas athugunina auk þess hafa staðfest tilvist fjög- urra annarra stafa á myntinni. Nýju stafirnir eru o og c, en hinir u, c, a, i. Er um forn-gríska stafi að ræða, sem tímasetja myntina á árið 29 eftir Kristsburð. Fleira kom í Ijós á umræddri mynt, nokkuö sem virtist vera ímynd af staf stjörnufræðings. Filas sagði að þessi tíðindi þýddu ekki endanlega að Imyndin í klæðinu væri af Kristi, hins veg- ar væri nú hægt að aldursgreina klæðið nokkuð örugglega og virt- ist blasa við að það væri einmitt frá dögum frelsarans, meira að segja mjög nærri þeim tíma sem hann var festur á krossinn. Rann- sóknin stóð yfir í 6 mánuði og Fil- as hefur sjálfur rannsakað klæðið I 30 ár. Hann getur þess einnig að andlitið I líkklæðinu líkist mjög Kristsmynd frá 6. öld. Margir vís- indamenn eru á öndverðum meiði við Filas og skoðanabræður hans varðandi klæðið, meðal annars einn sem hefur rannsakað það og fundið efni nokkuð sem listamenn nota í lit sem kallast okkurrauð- ur. Þetta er saga Glenn Hoddle, skærustu stjörnu enskrar knatt- spyrnu í dag. Hoddle segir frá ævi sinni, frá því hann sparkaöi fyrst í bolta níu mánaöa gamall, þegar hann hreifst af Bobby Charlton í heimsmeistarakeppninni 1966 og allt til þess er hann leikur sjálfur í lokakeppní HM 1982. Hoddle kemur víöa viö, segir frá fjölda leikmanna og framkvæmdastjóra, hælir og gagnrýnir, frá fjölda deildaleikja, bikar-, Evrópu- og landsleikja þar á meö- al á Laugardalsvelli 1982, og ræöir ástæöur þess hve illa honum hefur gengið aö vinna sér fast sæti í enska landsliðinu. Hoddle segir frá komu Argentínumannanna í Tottenham, og hvernig Falklandseyjastríöiö kom viö sögu hjá félaginu, greinir frá leyni- makki við vestur-þýska útsendara á hóteli í Austurríki og lýsir jafnt björtu hliðunum sem skuggahliöunum á atvinnumennsk- unni. Glenn Hoddle er í dag einn eftirsóttasti knattspyrnumaöur í Evrópu, hér er tækifærió til aö kynnast honum frá nýju sjón- arhorni. fslensk knattspyrna kemur nú út í þriöja skipti og er enn ítarlegri en áður. Sem fyrr er gangur keppnistímabilsins rakinn, frá 1. janúar til októberloka. Frábær frammistaða íslensku liöanna í Evrópumótunum, hörkuspennandi fslandsmót sem ekki var til lykta leitt þó síöasta leik væri lokió, frásagnir af öllum lands- leikjum karla, kvenna, unglinga og drengja. Myndaopna frá afrekshelgi Atla Eövaldssonar og úr bikarúrslitaleiknum, myndir úr leikjum og af fjölda leikmanna úr öllum deildum. Litmyndir af öllum islands- meisturum ársins 1983. Til viöbótar, svart/hvítar myndir af öllum liöum 1. deildar, upplýsingar um markaskorara og alla leikmenn, greint frá ferli allra félaga sem tekiö hafa þátt í íslandsmótinu í knattspyrnu í öllum deildum fyrr og síöar, greint frá öllum sem skoruóu mark í keppni 1., 2. og 3. deildar og 1. deildar kvenna og öörum sem athygli vöktu. Jafnframt tæpar eitt hundraö tilvitnanir í orð leikmanna og þjálfara. íslensk knattspyrna er bókin sem geymir minningarnar — hún verður ómiss- andi í safninu — hún er besta heimild um íslenska knattspyrnu sem völ er á.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.