Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Áuglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 20 kr. eintakiö. Samkeppni um peninga Friðarjól 1983: „Tendrum friðarljós og sýnum samstöðu með þeim sem líða skort“ — segir biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson Eftir að Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, lækk- aði skatta meðal annars í þeim tilgangi að örva fjár- magnsstreymi til einkarekst- urs varð þróunin ekki á þann veg í Bandaríkjunum. Skatta- lækkunin leiddi til mikils halla á fjárlögum þar sem ekki tókst að skera opinber útgjöld niður sem skyldi. Til að brúa þetta bil leitaði bandaríska fjármála- ráðuneytið til almennings og bauð ríkisskuldabréf með hærri vöxtum en nam arði af hlutabréfum á kauphallar- mörkuðum. Þessi lánsfjáröfl- un Bandaríkjastjórnar hefur haldið áfram jafnt og þétt í nokkur misseri og er ein meg- inástæðan fyrir því að vextir haldast jafnháir í Bandaríkj- unum og raun er en háu vexty irnir hafa hins vegar styrkt gengi dollarsins með alkunn- um afleiðingum. Þessar staðreyndir eru rifj- aðar upp hér og nú í tilefni af ræðu sem Sigurgeir Jónsson, aðstoðarbankastjóri Seðla- banka íslands, flutti á spá- stefnu Stjórnunarfélagsins í síðustu viku og birtist í Morg- unblaðinu í gær. Þar benti Sigurgeir á það að á næsta ári þarf ríkið að afla mjög mikils lánsfjár á innlendum markaði meðal annars vegna húsnæð- islána. Samkvæmt lánsfjár- áætlun 1984 er ráðgert að rík- ið fái 560 milljónir króna að láni innanlands en í ár fer sala spariskírteina ríkissjóðs varla mikið yfir 100 milljónir króna. Um lánsfjáröflun ríkis- sjóðs sagði Sigurgeir Jónsson síðan: „Það er algerlega óraunsætt að ætla að þetta geti gerst, nema boðið sé upp á mjög hagstæð kjör og þar á meðal háa raunvexti. Ekki verður heldur fram hjá því litið að bankakerfið og ríkið munu lenda í harðri samkeppni um sparifé almennings. Um leið er ríkissjóður óbeint kominn í harðari samkeppni við at- vinrtulífið um lánsfé en verið hefur til þessa.“ Enginn efast um vilja Al- berts Guðmundssonar, fjár- málaráðherra, til að skjóta traustari stoðum undir einka- framtak í atvinnurekstri og á sem flestum sviðum. En nú er því sem sé spáð að ríkissjóður, bankarnir og atvinnufyrir- tækin muni heyja harða sam- keppni um takmarkað sparifé landsmanna á næsta ári. Sig- urgeir Jónsson nefndi tvær leiðir fyrir ríkið til að treysta samkeppnisaðstöðu sína, að hefja útgáfu gengistryggðra spariskírteina og ríkisvíxla. Aðstaða bankanna til að ná til sín peningum er sterk, þó er líklegt að þeir sitji ekki að- gerðarlausir gagnvart vax- andi samkeppni frá ríkissjóði. Eins og málum er. háttað standa atvinnufyrirtækin höllum fæti gagnvart ríki og bönkum. Skilningur er tak- markaður á því hér á landi, svo að ekki sé meira sagt, að hlutabréf eigi að vera jafn- arðbær og ríkisskuldabréf. í hinni hörðu samkeppni um peningana sem fyrir- sjáanleg er verða þeir sem eft- ir þeim sækjast að standa jafnfætis. Almennur og heil- brigður peningamarkaður nær hvorki að mótast né þró- ast hér á landi ef stjórnvöld setja það sem skilyrði að ríkishítin hafi allt sitt alltaf á þurru, hvað svo sem á dynur. Markaðsöflunum einum er treystandi til að skapa hið eðlilega meðalhóf og jafnvægi á þessu sviði. Ríkisstjórn og bankarnir verða að leyfa markaðnum að ráða ferðinni í þessu efni og ryðja burt hindrunum sem koma í veg fyrir að svo sé. Brauð handa hungruðum Hjálparstofnun kirkjunn- ar snýr sér enn og aftur til almennings fyrir jólin með tilmælum um að fólk láti fé af hendi rakna til að létta sár- asta hungur þeirra sem bágstaddastir eru í veröldinni. íslendingar bregðast að jafn- aði vel við slíku ákalli þótt hart sé í ári. En að þessu sinni er ekki aðeins líf og heilsa hinna hungruðu í húfi heldur einnig það hvort vel tekst til við framleiðslu á matartöflum úr skreið en í því formi ætlar Hjálparstofnun kirkjunnar að flytja framlög íslendinga úr landi. Það yrði fagnaðarefni ef þessi tilraun með skreiðar- töflurnar gengi vel. Hjálpar- stofnunin þarf að sjá til þess að hingað berist eins fljótt og kostur er fréttir af viðbrögð- um þeirra sem matinn fá. Morgunblaðið hvetur þá sem eru aflögufærir til að hlýða ákalli Hjálparstofnunar kirkjunnar. „Á SÍÐUSTU jólum hóf kirkjan okkar þátttöku í alþjóðlegri og al- kirkjulegri hreyfingu undir kjör- orðinu „Friðarjól". Þessi hreyfing varð til í borgarhverfi í Genf i Sviss fyrir fjórum árum, en varð að alþjóðlegri hreyfingu í fyrra og breiddist út um allan heim. Og aft- ur höldum við friðarjól í ár. Okkur hefur þegar borist vitneskja um 50 lönd, víðs vegar um heim, sem hyggjast taka þátt í „Friðarjólum 1983“ og ísland er sannarlega eitt af þeim,“ sagði herra Pétur Sigur- geirsson, biskup íslands, á fundi með fréttamönnum í gær. Um markmið friðarjólanna sagði biskup: „Það er lagt til að við lýsum á sérstakan hátt samstöðu okkar með þeim sem líða skort í heim- inum í dag og réttum þeim hjálparhönd. Ennfremur að við tendrum friðarljós samtímis á aðfangadagskvöld klukkan níu, berum það að glugga eða göng- um með það til dyra, þar sem friðarloginn lýsir út til næstu nágranna með ósk um gleðileg jól og með bæn um frið á jörðu." Hvatt er til þess að næstkom- andi sunnudag, þann 18. desem- ber, fasti menn og lýsi þannig samstöðu sinni með því fólki víða um heim sem býr við ör- birgð og á ekki annars úrkosta en fasta. Jafnframt að menn láti andvirði einnar máltíðar renna til sveltandi fólks, til dæmis í gegnum Hjáiparstofnun kirkj- unnar. Á aðfangadagskvöld klukkan níu er fólk síðan hvatt til þess að halda á lifandi ljósi úti í glugga, fyrir utan dyr eða hvar sem það Verzlunarbanki íslands hf. hefur í dag starfsemi sína í Húsi Verslunar- innar í Kringlumýri. Með tilkomu þessa útibús bankans hafa allir eign- araðilar að Húsi Verslunarinnar flutt þangað inn, en Verslunarbank- inn er stærsti eignaraðili að húsinu. Útibú bankans þar er í rúmu hús- næði á fyrstu hæð hússins og er það ekki nýtt til fullnustu, en í framtíð- inni er áformað að aðalstöðvar bankans verði fluttar í Hús Verslun- arinnar. Miðast sá flutningur við hversu hratt uppbyggingu Nýja mið- bæjarins miðar. í máli Sverris Norland, for- manns bankaráðs Verslunarbank- ber helst fyrir sjónir nágrann- ans, sem tákn um vináttu og frið við alla menn fjær og nær. „Friðarjólin eru sameiginleg- ur boðskapur réttlætis og frið- ar,“ sagði biskup, „samstaða til líknar þeim sem búa við neyð og örbirgð, með sameiginlegu tákni, friðarloganum, sem menn tendra á aðfangadagskvöld. Ef ans við formlega opnun útibúsins í gær, kom fram að starfsemi bank- ans verður flutt í áföngum í það húsrými sem ónotað er, en tölvu- deild bankans var flutt í hús Verslunarinnar fyrr á þessu ári. Nefndi hann í þvi sambandi að ýmsar þjónustudeildir væru ráð- gerðar á fyrstu hæðinni, svo sem veðdeild og gjaldeyrisdeild, en bankinn hefur nú hlotið takmark- aða heimild til erlendra viðskipta, þ.e. innlendir gjaldeyrisreikningar og afgreiðsla gjaldeyris til ferða- manna og námsmanna. Hefur Verzlunarbankinn tekið upp þessa þjónustu í samvinnu við Utvegs- banka íslands. Sagðist Sverrir við hugum að því að frummerk- ing orðsins „friður“ er vinátta og ást, þá skiljum við að friður er líf í kærleika þar sem eigingirni, hatur eða reiði drottnar ekki lengur í hjartanu. Orðið „friðar- jól“ er því vel við hæfi, því boð- skapur jólanna er meðal annars: Lifðu í friði við alla menn og dyggðina, en í ófriði við lesti." fagna þeirri ákvörðun viðskipta- ráðherra að rýmka reglur um gjaldeyrisviðskipti einkabanka í landinu. Þá þakkaði hann þeim aðilum sem unnið hafa að bygg- ingu útibúsins og færði þeim Björgúlfi Bachman, aðalféhirði bankans og Þorvaldi Guðmunds- syni, fulltrúa bankans í Húsi Verslunarinnar, sérstakar þakkir fyrir vel unnin störf. Fyrst um sinn gegnir Árni H. Bjarnason, skrifstofustjóri aðal- bankans, forstöðu útibúsins í Húsi Verslunarinnar þar til umsóknar- frestur um starfið rennur út þann 23. þessa mánaðar. Starfsfólk hins nýja útibús Verslunarbankans. F.V.: Ester Ásbjörnsdóttir gjaldkeri, Árni H. Bjarnason útibússtjóri, Auður Vésteinsdóttir afgreiðslustjóri og Inga Malmberg afgreiðslustúlka. Útibú Verslunarbanka íslands hf. opnað í dag í Húsi verslunarinnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.