Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983 Halldór Þorsteinsson vélvirki - Minning Fæddur 23. júlí 1912 Dáinn 11. desember 1983 Fáum mun hafa dottið í hug í þeim fjölmenna hópi vina og ætt- ingja er heimsóttu þau hjónin að Laugarvatni á sjötugsafmælinu fyrir rúmu ári, að svo væri stutt að leiðarlokum þessa glæsiiega og lífsglaða afmælisbarns, er lék á als oddi við að taka á móti heilla- óskum mikils fjölmennis, á þeim tímamótum er hjá flestum er lokið önn dagsins og venjulegu ævi- starfi. Allir sem þekktu Halldór vissu þó mæta vel, að síst af öllu mundi þessi starfsglaði og atorku- sami maður hugsa til að setjast í helgan stein og halda að sér hönd- um, því auðvitað getur maður, sem unnið hefur hörðum höndum allt frá barnæsku við hin ólíkustu störf, bæði við sjó og í sveit, í litlu þorpi og í skarkala höfuðborgar- innar alltaf fundið sér verðugt verkefni huga og handar, er full- nægt gæti athafnaþrá og vinnu- gleði hins hressa og hraustlega sjötuga manns, sem ellin virtist eiga svo langt í land með að beygja, jafnvel þó æviárum fjölg- aði enn um tugi. — En margt fer öðruvísi en ætlað er, því í byrjun marsmánaðar kenndi hann fyrst þess sjúkdóms er eigi var í mann- legu valdi að ráða bót á, en einnig þeim örlagadómi tók Halldór með stakri rósemi og karlmennsku, svo sem vænta mátti eftir hans skap- gerð. Halldór var fæddur á Stöðvar- firði, sonur Þorsteins Mýrmanns bónda og kaupmanns þar, og konu hans Guðríðar Guttormsdóttur prests Vigfússonar, merkra og valinkunnra heiðurshjóna. Var heimilið fjölmennt, systkinin 7 auk vinnufólks, og þó eigi hafi ver- ið þar auður í garði, hafa uppeld- isskilyrðin verið slík, að ættgöfgi og góðar gáfur fengu vel notið sín, þó eigi væru menntaskilyrði slík sem síðar varð. Um tvítugsaldur stundaði Halldór nám við Hvít- árbakkaskólann og einnig við hér- aðsskólann í Reykholti. Þá gerðist hann barnakennari um fjögurra ára skeið með góðum árangri, síð- ast í Þverárhlíð í Mýrasýslu, en flutti þá til Akraness, ásamt konu sinni, Rut Guðmundsdóttur frá Heigavatni, hinni mætustu ágætis konu, og þar fæddust þeim synirn- ir tveir, Sigurður húsasmíða- meistari, starfsmaður hjá Reykja- víkurborg, og Birgir kaupmaður í Reykjavík. Á Akranesi réðst Halldór til vélvirkjanáms hjá hinu kunna fyrirtæki Þorgeirs Jósepssonar og lauk þar tilskildum prófum. A Akranesi tók Halldór mikinn þátt i félagsmálum og var dugmikill á því sviði sem öðrum. Eftir að Halldór flutti til Reykjavíkur tók hann sér margt fyrir hendur, svo sem verslunarstörf ýmiss konar, bókband og myntsöfnun, svo eitthvað sé nefnt. Vandað bókasafn átti hann og las mikið góðar bækur, svo sem er einkenni margra íslendinga, er eigi hafa notið skólagöngu, svo sem þeir hefðu kosið. Var heimili þeirra hjóna einkar fallegt og hlýlegt, m.a. prýtt fallegum mál- verkum frúarinnar. Var þar gott að koma, enda oft gestkvæmt í góðum fagnaði. Að lokum vil ég þakka mági mínum og hans fjölskyldu alla vinsemd á liðnum árum, og þá ekki síst við börn okkar og þeirra fjölskyldur, sem nú, eins og við, sakna þessa hispurslausa og vel gerða frænda, sem nú er allur og varð reyndar aldrei gamall. Guðmundur Björnsson „En hver mun geyma arfinn okkar ef við gleymum sjálf?“ Síðan mér barst sú harmafregn að Halldór Þorsteinsson væri horfinn á vit feðra sinna hefir þetta stef Guðmundar Böðvars- sonar hljómað fyrir innri eyrum mínum. Halldór Þorsteinsson geymdi arfsins dýra af slíkri trúmennsku, alúð og ást að maður fór jafnan af fundi hans viss um að íslendingar væru merkilegt fólk, basl þeirra hér í þessari verstöð í ellefu hundruð ár sætti tíðindum í veraldarsögunni og ei- lífðarvandamálið, unga fólkið, væri líklega heldur skárra en kynslóð okkar ætti skilið. Halldóri kynntumst við hjónin einmitt á þeim vettvangi þar sem unnið var að því að koma ungu fólki til nokkurs þroska. Hann var í Fræðsluráði Akraness þegar okkur bar þar að garði, vaskur maður, hreinskiptinn, skopvís. Óvenjulegt mannval skipaði bekki í ráðinu því. Forystu gegndi önd- vegisdrengurinn, Sveinn Kr. Guð- mundsson, og með honum voru auk Halldórs, Þórhallur bæjarfóg- eti Sæmundsson, Sigurður Vigfús- son og Sverre Valtýsson. Mér er til efs að annars staðar hafi menn gengið jafnheilir og ótrauðir að störfum sem þeir gerðu. Og það var gaman að vinna með þeim. Þó olli það kannski mestu um að náin kynni tókust við Halldór að við áttum sameiginlegan vin, Þór- leif rithöfund Bjarnason. Á heim- ili þeirra Þórleifs og konu hans, Sigríðar Hjartar, litum við Hall- dór Þorsteinsson fyjst. Þangað kom hann beint úr smiðju Þor- geirs og Ellerts, galvaskur, og manni komnum úr Stykkishólmi fannst hann standa augliti til auglitis við sjálfan Peppóne; „bæði af honum gustur geðs og gerðar- þokki stóð“. Halldór Þorsteinsson var Aust- firðingur. Hann var fæddur 23. júlí 1912 í Stöðvarfirði, sonur hjónanna Guðríðar Guttormsdótt- ur, prests í Stöð, Vigfússonar, og Þorsteins Mýrmanns, kaupmanns og bónda á óseyri. Halldór ólst upp eystra en hélt innan við tví- tugt vestur til Borgarfjarðar og var þar við nám á Hvítárbakka og í Reykholti. Hann hóf síðan kennslu, fyrst í heimabyggð sinni, síðan í Húnaþingi og loks í Þver- árhlíð í Borgarfirði. Mér segja gamlir nemendur hans, greindir menn og gegnir, að hann hafi ver- ið afbragðskennari og minnast þeir hans jafnan með hlýju þakk- læti. - Árið 1937 lét Halldór af kennslu, flutti til Akraness og lauk þar námi í vélvirkjun og síðar pípulagningum. Á Skaga vann hann alla tíð hjá Þorgeiri Jósefs- syni og gegndi auk þess fjölþætt- um félagsmálastörfum. Halldór Þorsteinsson kvæntist 5. október 1935 hinni ágætustu konu, Rut Guðmundsdóttur, bónda á Helgavatni í Þverárhlíð, Sigurðssonar. Kona Guðmundar og móðir Rutar var Anna Ás- mundsdóttir. Tvo syni eignuðust þau Rut og Halldór, Sigurð og Birgi, og eru þeir báðir kvæntir heimilisfeður í Reykjavík, atorku- menn og drengir góðir. — Árið 1962 fluttust þau hjónin til Kópa- vogs og síðan fyrir þrem árum til Reykjavíkur. Hér syðra stundaði Halldór lengst af verslunarstörf en auk þess lærði hann bókband og batt allmikið, einkum fyrir vini og kunningja. Svo langt náði hann í þeirri list að hann gyllti bækur og tókst vel. Hann var bókavinur og því gott að vita hann fara höndum um kver og kiljur og notalegt að renna augum yfir gyllta kili úr smiðju hans. Halldór Þorsteinsson batt með + Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir, bróðir og sonur, ÞORSTEINN GRÉTAR KRISTINSSON, Hraunbrún 53, Hafnarfiröi, andaöist á St. Jósefsspitala, Hafnarfiröi, 14. desember. Jarösett veröur frá Hafnarfjaröarkirkju flmmtudaginn 22. desem- ber kl. 13.30. Nanna Snædal, Jakob Bjarnar Grétarsaon, María Anna Þorsteinsdóttir, Atli Geir Grétarsson, Þorsteinn Antonsson, Stefén Snssr Grétarsson, Guölaug Elísa Kristinsdóttir, Kristinn Helgason. Útför fööur okkar, tengdafööur og afa, ÁGÚSTAR SIGFÚSSONAR, Boöaslóö 24, Veatmannaeyjum, fer fram frá Landakirkju laugardaginn 17. desember kl. 14.00. Björg Ágústsdóttir, Jóhann Agústsson, tengdabörn og barnabörn. + Jaröarför móður minnar, KRISTÍNAR GÍSLADÓTTUR fré Þveré, fer fram frá Prestbakkakirkju laugardaginn 17. desember kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Ólafur Vigfússon. + Móöir okkar, ELÍN JÓNSDÓTTIR, Sörlaskjóli 34, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í dag föstudaginn 16. des- ember kl. 13.30. Jóhanna Ólafsdóttir, Fríða Ólafsdóttir, Jón Ólafsson, Kristín Ólafsdóttir, Eyvindur Ólafsson, Sigrfóur Ólafsdóttir, Hallveig Ólafsdóttir og aörir vandamenn. + Astkær eiginmaöur minn, sonur, tengdasonur, faöir okkar, tengdafaöir og afi, VILHJÁLMUR JÓHANNESSON, Fellsmúla 16, Reykjavik, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju i dag, föstudaginn 16. des- ember, kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Landssamband hjartasjúklinga. Lilja Ágústa Jónsdóttir, Ásbjðrg Ásbjörnsdóttir, Magnea Guörún Ágústsdóttir, Hjördís Vilhjélmsdóttir, Pétur Guóréö Pétursson, Jóhannes Vilhjélmsson, Halldóra Kristjénsdóttir, Lilja Vilhjélmsdóttir, Eva Jódfs, Ásdfs Lilja og Magnea Vilhjélmsdóttir. Jón Pétur Péturs börn. Móöir okkar. + SIGURLAUG SVEINSDÓTTIR fré Hlfó f Höröadal, Litlageröi 3, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. desember nk. kl. 13.30. Börnin. + Eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir og amma, JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Miövangi 41, Hafnarfirói, veröur jarösungin frá Garöakirkju laugardaginn 17. desember kl. 13.30. Guöni Þórarinsson, Ólöf Guönadóttir, Benedikt Björnsson, Viöar Guönason, Guörföur Ólafsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö fráfall og jaröarför systur okkar, BIRGITTU SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR. Jörina Jónsdóttir, Bjarni Jónsson. + Þökkum innilega auösýnda samúö vlö fráfall og jaröarför KRISTÍNAR BJARNADÓTTUR. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Erla Kristfn Bjarnadóttír. Lokað í dag frá kl. 12.00—15.30 vegna jaröarfarar VILHJÁLMS JÓHANNESSONAR. Bílaborg hf., hjólbaröadeild. Lokaö í dag, föstudaginn 16. desember, vegna jarðarfarar VILHJÁLMS JOHANNESSONAR. Hjólbaröastööin, Skeífunni 5, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.