Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.12.1983, Blaðsíða 1
72 SIÐUR STOFNAÐ 1913 294. tbl. 70. árg. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins I gær kom til Frankfurt í Vestur-Þýskalandi hópur líbanskra munaðarleysingja. Þeir munu dvelja hjá þarlendum fjölskyldum næstu þrjár vikurnar og eiga með þeim friðsam- leg jól. Það voru vináttusamtök landanna sem stóðu fyrir þessu. Símamynd AP. Hitamál tekið fyrir á sænska þinginu: Frumvarp um launþegasjóði var samþykkt Lundi, 21. desember. Frá Pétri Péturssyni fréttaritara Mbl. SÆNSKA þingið samþykkti í dag frumvarpið um launþega- sjóði með 164 atkvæðum á móti 158, en 21 sátu hjá. Jafnaðar- raenn studdu frumvarpið einhuga en borgaraflokkarnir stóðu einhuga á móti. Kommúnistar sátu hjá. Fimm launþegasjóðir verða stofnaðir í landinu og allir eiga þeir að hafa launþega í stjórn- armeirihluta. Geta þeir hver um sig keypt hlutabréf í fyrir- tækjum fyrir 400 milljónir króna á ári, en þeir mega ekki eiga meira en 8% af hlutabréf- um í einu og sama fyrirtækinu. Fjármagnið sem sjóðirnir koma til með að ráða yfir verð- ur tekið hjá þeim fyrirtækjum sem mestan hafa hagnaðinn. Enn voðaatburðir í Líbanon: Fjöldi manns lét lífið í tveimur sprengingum Einnig hækka tryggingagjöld sem launþegar greiða og rennur það fjármagn í sjóðina. Upp á síðkastið hafa borg- araflokkarnir hert andstöðu sína gegn launþegasjóðstil- lögunum sem jafnaðarmenn áttu upphafið að. Þeir telja að hér sé verið að innleiða sósíal- isma og jafnvel kommúnisma í atvinnulífið. Jafnaðarmenn segja aftur á móti að iaunþegasjóðirnir muni styrkja hið blandaða hagkerfi og hið bágborna atvinnulíf, sem hrjáð er af fjármagnsskorti. Sjóðirnir muni styðja að heil- brigðri fjárfestingu og byggja upp atvinnulífið. Launþegasjóðirnir hafa nú verið til umræðu í sænskum stjórnmálum árum saman og nokkurrar þreytu hefur gætt á lokasprettinum. Hin almenni launþegi sýnir málinu lítinn áhuga. Beir.ui, 21. denember. AP. TVÆR öflugar sprengjur sprungu í Beirút í gær og voru þær mannskæóar, að minnsta kosti 14 manns létu liTið og margir særðust. Önnur sprengjan sprakk í veitingahúsi sem Bandarfkjamenn hafa gjarnan sótt, hin sprakk við stöðvar franska friðargæsluliðsins. Létust fjórir á veitingastaðnum, en að minnsta kosti tíu manns við bækistöð Krakkanna, margir þeirra voru í byggingu skammt frá sem hrundi. Við stöðvar franska friðargæslu- liðsins var vörubifreið ekið upp að og ekillinn spratt út úr bílnum og hljóp á brott. Sprakk bifreiðin í loft upp fáeinum andartökum síðar og létust að minnsta kosti 10 Antonov í stofufangelsi Rómaborg, 21. desember. AP. SERGEI Ivanov Antonov, búlg- arski flugfélagsstarfsmaðurinn í Róm, sem í haldi var vegna meintrar þátttöku hans í morðtil- ræðinu gegn Jóhannesi Páli páfa á dögunum, var í gær færður úr fangelsi til íbúðar í Rómaborg, en þar verður hann í stofufangelsi fyrst um sinn. I>að er af hcilsu- farsástæðum sem Antonov fær meðferð þessa. Giuseppe Consolo, verjandi Antonovs, staðfesti fregnina og sagði ákvörðunina hafa verið tekna eftir að dómarinn Ilario Martella hafði athugað lækn- isskýrslu Antonovs. Er hann sagður alvarlega sjúkur. Italska fréttastofan ANSA taldi sig hafa fyrir því góðar heimildir að Antonov hefði misst alla matar- lyst og hefði lést um 11 kíló síð- ustu vikurnar. Þá væri hann með innvortis blæðingar, heila- truflanir og ýmsar geðveilur. manns, en vitað var um marga særða til viðbótar. Ekki var um bílasprengju að ræða í veitingahús- inu, þar hafði sprengju annaðhvort verið varpað inn, eða komið þar fyrir. 4 létu lífið og 12 særðust. Bandaríkjamenn eru oft á veitinga- húsi þessu, en aðeins einn er til- ræðið var framið. Varð honum ekki meint af. Klukkustund eftir að sprengj- urnar sprungu, en þær sprungu nánast á sama augnablikinu, hringdi maður til útvarpsstöðvar- innar „Rödd Líbanons" og sagðist vera talsmaður hryðjuverkahóps sem nefndist „Svarta höndin". Sagði hann samtökin hafa staðið á bak við sprengingarnar. Ekkert er vitað um hóp þennan, en shitarnir í Bekaa-dalnum liggja undir grun að hafa skipulagt verknaðinn. ísraelskar herþotur gerðu í gærmorgun árásir á stöðvar um- ræddra shita í Bekaa-dal. Voru árásirnar svar ísraela við skærum shitana gegn tsraelum að undan- förnu. Sýrlendingar sem ráða að mestu ríkjum á þessum slóðum, skutu mörgum eldflaugum að ís- raelsku þotunum, en grönduðu engri. Af Yasser Arafat var það að segja í gær, að seint í gærkvöldi virtist ekki útilokað að hann myndi eiga fund með Hosni Mubarak for- seta Egyptalands í Port Said, en þangað var hann væntanlegur með grísku skipi seint í gærkvöldi. Tveir bandarískir friðargæsluliðar í Beirút komnir í jólaskap. Á milli þeirra er lítið furutré frá Minnesota, en faðir piltsins til hægri á myndinni sendi það syni sínum. Simamynd AP. Sprengingin í Harrods: Fjórir hand- teknir í gær Lundúnir, 21. deaember. AP. MIKIÐ lögrcglulið tók þátt i aðgerð- um í Lundúnum, þar sem fjórir menn voru handteknir, grunaðir um að hafa átt aðild að einu eða öðru leyti, að sprengjutilræðinu í Har- rod’s-verslunarbyggingunni frægu fyrir skömmu. Háttsettur maður hjá Scotland Yard staðfesti fregnina, en vildi ekki láta nafns síns getið. Að- spurður hvort hinir handteknu væru sprengjuvargarnir svaraði hann: „Kannski, kannski ekki, það er of snemmt að segja neitt þar um. Hvort sem er, gerum við okkur vonir um að verða margs vísari eftir að hafa yfirheyrt mennina." Óhappadagur skipherrans Kochestor, Knglandi, 21. desembcr. AP. PETER Fewster var ekki Yfir Ermarsundið, og lagði hjátrúarfullur, en kannski er hann það núna. Þannig er mál vcxti, að alla sína starfsævi hefur Fewster verið sjómaður, en aldrei skiphcrra á eigin fari. Það fór þó aldrei svo að það gerðist ekki og Fewster var gerður að skipstjóra á Hoo Venture, 488 tonna flutn- ingaskipi. Fyrsta sjófcrðin: Fewster hreykinn úr höfn klukkan 02.10, föstudaginn 13. maí síðastliðinn. Ekki hafði skipherrann áhyggjur af því að dagur- inn væri föstudagur og hinn 13. í þokkabót. Enda ekki hjátrúarfullur. En svona fór sjóferðin: Klukkan 02.30 rakst skip- ið á ljósdufl sem ekki log- aði á. Klukkan 03.00 strandaði Hoo Venture. Klukkan 7.15 tilkynnti skipstjóri annars skips, að ljósmerki nokkuð skammt frá ósum Tham- es hefði laskast og væri að falli komið. Viður- kenndi Fewster þá að hafa lent í árekstri við umrætt ljósmerki, en gat þess jafnframt, að stýri- maður hefði verið við stjórnina þá! Fewster var gert að greiða 100 punda sekt, auk alls málskostnaðar fyrir vítavert kæruleysi. Hann er nú óbreyttur há- seti á ný, en hjá öðru út- gerðarfyrirtæki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.