Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 12
MARTIN 12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIOJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 Áður en lagt var af stað til Bláfjalla og nýja lyftan vígð gerðust fimm sveitarfélög aðilar að Hlátjallafólkvangi, til viðbótar við þau sjö sem fyrir voru. Á myndinni er samningurinn undirritaður. Fyrir framan eru þau Eiríkur Alexandersson, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Elín Pálmadóttir, formaður Bláfjallafólkvangsstjórnar og Stefán Kristjánsson, fþróttafulltrúi og framkvæmdastjóri fólkvangsins. Fyrir aftan standa f.h. Albert K. Sanders, bæjarstjóri í Njarðvíkum, Ellert Eiríksson, sveitarstjóri í Gerðahreppi, Leifur K. ísaksson, sveitarstjóri í Vatnsleysu- strandarhrcppi, Jón K. Ólafsson, sveitarstjóri í Miðneshreppi, Anna S. Snæbjörnsdóttir, sveitarstjóri í Bessastaðahreppi og Jón Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri í Grindavík. Fimm sveitarfélög gerast aðilar að Bláfjallafólkvangi: Nf stólalyfta tekin í notkun ÞAÐ VAR sannarlega ástæða fyrir skíðaunnendur á Stór-Reykjavíkur- svæðinu til að fagna bættri aðstöðu þann 7. febrúar sl., þegar vígð var ný stólalyfta í Bláfjöllum. Nýja lyftan er í Suðurgili og eru með tilkomu hennar nú afkastamiklar lyftur í höfuðgiljun- um þremur. Auk þeirra eru síðan smærri lyftar inn á milli, en samanlagt eru lyfturnar í Bláfjöllum átta talsins og geta þær flutt 7.500 manns upp í brekkur og á fjallatoppa á sama klukkutímanum. Nýja stólalyftan er svipuð lyft- unni sem er í Kóngsgili. Lyftan er 700 metrar á lengd og fallhæðin er 150 metrar. Hún er af Doppelmayer- -gerð og var kostnaður við hana, að kílómetralangri raflínu úr Kóngsgili og flóðlýsingu meðtöidum, nálega 14 milljónir króna. Fjölmargir brugðu sér í Suðurgilið Margir urðu til að óska aðstandend- um Bláfjallafólkvangs og öllum á Reykjavíkur- og Reykjanessvæðinu til hamingju með nýju lyftuna. Hér sést einn þeirra, Valdimar Örnólfs- son. f»; , *; Bragðað á „Bláfjallatertunni". Margir urðu til þess að reyna nýju lyftuna. A miðri myndinni er Eysteinn Jónsson, sem fór fyrstu ferðina ásamt Elínu Pálmadóttur, formanni Bláfjalla- fólkvangsstjórnar. þegar lyftan var tekin í notkun, en Elín Pálmadóttir, formaður stjórnar Bláfjallafólkvangs, vígði lyftuna. Fór Elín ásamt Eysteini Jónssyni, fyrrum ráðherra, í fyrstu ferðina, en Eysteinn hefur löngum verið mikill áhugamaður um skíðaíþróttir og úti- veru af ýmsu tagi. Eftir að menn höfðu reynt nýju lyftuna og brekk- urnar beggja vegna hennar var hald- ið kaffisamsæti í Bláfjallaskálanum. Þar var á borð borin heilmikil terta, í laginu eins og skíðasvæðið með þremur gnæfandi fjailstindum. Á syðsta tindinum mátti síðan sjá „skíðalyftu" úr súkkulaði. Fjölmarg- ir urðu til þess að lýsa ánægju sinni með nýju lyftuna og óskuðu sér og öðrum íbúum Stór-Reykjavíkur- svæðisins til hamingju með hana. En við þau sveitarfélög sem til þessa hafa átt aðild að Bláfjallafólkvangi, Reykjavík, Kópavog, Seltjarnarnes, Selvog, Hafnarfjörð, Garðabæ og Keflavík, bættust fimm ný sama daginn og hin nýja lyfta var vígð. Það eru Njarðvík, Gerðahreppur, Vatnsleysustrandarhreppur, Mið- neshreppur, Bessastaðahreppur og Grindavík. Ljósm. Mbl./ KEE Kammertónleikar Tónlist Jón Ásgeirsson Aðrir kammertónleikar Sin- fóníuhljómsveitar Islands voru haldnir í Gamla bíói um síðustu helgi. Á dagskránni voru þrjú verk, Hymni fyrir strengjasveit eftir Snorra Sigfús Birgisson, fiðlukonsert í d-moll jftir Mend- elssohn og C-dúr-Serenaðan eft- ir Tsjaíkofskí. Ei ileikari var Þórhallur Birgissrn en stjórn- andi Andreas Weiss. Það er vissulega lofsverð nýj- ung að fá til landsins unga stjórnendur, þó nokkuð kunni það að heppnast misjafnlega. Andreas Weiss virðist kunna sitt fag, eftir því sem séð verður af slagi hans og allri uppfærslu tónleikanna. Asamt því að fá til landsins ungan erlendan stjórn- anda var unga fólkið fslenska einnig með í leiknum að þessu sinni og er það til marks um að ný kynslóð gagnmenntaðra ungra tónlistarmanna er að eigna sér framvindu tónlistar- sögunnar í landinu. Fyrsta verkið á tónleikunum er eftir Snorra Sigfús Birgisson og kallar hann það Hymna, áður verið flutt af Nýju strengjasveit- inni. Þetta er eins konar hljóm- fræðidæmi, þar sem stundum bregður fyrir „renesarls“-hljóm- skipan, á köflum þægilega hljómandi en í gerð sinni ekki merkilegra en hljómsetningar- dæmi nemenda í hljómfræði. Það var skemmtilegur svipur yfir flutningi Mendelssohn- konsertsins í túlkun Þórhalls Birgissonar. Þórhallur er snjall fiðlari og gerði margt mjög vel, þó nokkuð gætti óstyrks einkum í upphafi verksins, sem vel er skiljanlegt, með svo ungan og lítt harðnaðan fiðlara í þeirri erfiðu þraut að koma fram á tón- leikum. Fyrir utan ágætan leik og stundum mjög góðan, var það nokkuð til bragðbætis að Þór- hallur lék á íslenska fiðlu, smíð- aða af Hans Jóhannssyni og hvort sem það er að öllu leyti verk Þórhalls, þá hljómaði fiðlan Þórhallur Birgisson mjög vel í höndum hans. Tónn- inn virðist vera nokkuð hvass og má vera að það sé vegna þess hve fiðlan er ný. Hvað sem því líður er hér enn eitt dæmið um þá nýju kynslóð er svarar kalli við þörfum samfélagsins. Það er því nokkuð til umhugsunar að Hans Jóhannsson skuli ekki hafa get- að skapað sér skilyrði til að vinna verk sín hér heima og hafi því svo gott sem þurft að flýja land. Það má vera að fólki hér á landi muni þykja betra að greiða honum í erlendum upphæðum fyrir fiðlur og annað þar að lút- andi, en í íslenskum peningum hér heima. Síðasta verkið var C-dúr-ser- enaðan eftir Tsjaíkofskí. Verkið er stórkostleg tónsmíð og var á köflum vel leikið af fiðlusveit- inni. Sú nýbreytni að halda kammertónleika ér lofsverð við- leitni til að auka fjölbreytni I tónleikahaldi Sinfóníuhljóm- sveitarinnar. Það sem á vantar er svolítil skerpa í auglýsingum og fjölmiðlabrambolti, til að ná því marki að hlustendur fjöl- menni enn frekar á þessa tón- leika er til þessa hafa verið mjög skemmtilegir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.