Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 Frá Nýhöfninni. Veggteppi Júlíönu Sveinsdóttur (Rya-röggvarfeldur). Mynd Gunnlaugs Blöndal af konu við vaskafat. Eigendur Ilalldóra og Leifur Sveinsson. Kaupmannahafiiarbréf í febrúar eftir Leif Sveinsson Hnípin þjóð í vanda Danmörk er enn án fjárlaga, 119.000 atkvæði hafa verið endurtal- in, en á meðan brá Poul Schliiter forsætisráðherra sér suður á Kanarí- eyjar með gamla kappreiðahjólið sitt, þar sem hann taldi sig nánast atvinnulausan meðan endurtalning færi fram. Þar sem Spies hafði lagt myndarlega í kosningasjóð íhalds- manna, fékk Schliiter einnig frítt fyrir hjólið sitt. f gær lágu fyrir úrslit endurtalningarinnar og hafði 800 at- kvæðum verið breytt, en það hafði engin áhrif á endanleg úrslit þing- kosninganna. í þessu sambandi rifj- aðist upp fyrir mér saga úr Alþing- iskosningum á 4. tug aldarinnar austur í Rangárvallasýslu. Yfirkjör- stjórn sat á lokuðum fundi og fékk enginn aðgang að stofu sýslumanns, nema sýslumannsfrúin, sem bar inn kaffí annað slagið. Nú eru kjör- stjórnarmenn með alveg óskiljanlegt atkvæði, alls staðar ritað á kjörseðil- inn, nema þar sem átti að merkja. Þá kemur frúin inn í kasti miklu, lítur á störf kjörstjórnar og kallar: „Nei, eruð þið með atkvæðið mitt.“ Það var vist margt svipað með þessi 800 atkvæði á Kristjánsborg. Scandinavian Modern 1880—1980 Við hjónin vorum boðin að vera við opnun sýningarinnar Scand- inavian Modern 1880—1980, en svo nefnist listiðnaðar- og hönnunar- sýning, sem var á 18 mánaða ferðalagi í USA sem hluti af menningarkynningunni Scandina- via Today, 1982—1983. Nú er sýn- ingin komin til Kaupmannahafnar og verður opin þar til 1. apríl nk. Sýningin var opnuð hér 2. febrú- ar og er til húsa í Listiðnaðarsafni Danmerkur í Breiðgötu 68, en það er gamall spítali, sem Jónas Hall- grímsson dó í 26. maí 1845. Var spítalanum breytt í safn á 3. ára- tugnum undir stjórn hins fræga arkitekts Kaare Klint. Menning- armálaráðherra Dana, frú Mimi Stilling Jacobsen, opnaði sýning- una að viðstaddri Margréti drottningu og manni hennar, Henrik prins. Allmargt er þarna íslenskra rauna, svo sem veggteppi þeirra Júlíönu heitinnar Sveinsdóttur og Ásgerðar Búadóttur, vasi Guð- mundar heitins frá Miðdal, silfur- munir eftir þá Jens Guðjónsson og Guðbrand Jezorski, stólar eftir þá Gunnar Magnússon og Svein heit- inn Kjarval, lampi eftir Pétur B. Lúthersson, glerlist eftir Sigrúnu Einarsdóttir, Steinunn Marteins- dóttir á þarna vasa, Jónína Guð- nadóttir verkið „Vor í lofti", Þorbjörg Þórðardóttir er þarna með tauþrykk, og að lokum sýna þarna tvenn hjón, Sigríður Jóns- dóttir og Leifur Breiðfjörð sýna veggteppi, en Sigrún (Rúna) Guð- jónsdóttir og Gestur Þorgrímsson sýna fat úr steinleir. Þetta er lofsvert framtak hjá ís- lendingum, sérstaklega þegar haft er í huga, að þetta er í fyrsta sinn síðan 1959 í París, að íslenskur listiðnaður er sýndur á samnor- rænni sýningu, ef frá eru taldar vefnaðarsýningar. Allir eru mun- irnir landi og þjóð til sóma, m.a. er mynd af glerskál Sigrúnar Ein- arsdóttur í sýningarskrá. Ber- lingske Tidende segir í umsögn um sýninguna: Nytjalist í heims- klassa. Dönsku blöðunum er eðli- lega tíðræddast um sína menn, þá Arne Jacobsen, Hans Wegner og Finn Juhl húsgagnaarkitekta, að ógleymdum Kaare Klint. Alvar Aalto fær einnig mikið umtal, svo og norskir og sænskir hönnuðir, en landinn er hvorki nefndur hjá Berlingske eða Politiken og sann- ast þar hið fornkveðna, að hverj- um þykir sinn fugl fagur. En nú má íslenskt listiðnaðarfólk ekki láta deigan síga, heldur sækja nú fram af krafti, þannig að ekki líði 25 ár á milli þátttöku í samnor- rænum sýningum á sviði listiðnað- ar. Það er ómaksins vert fyrir ís- lenska ferðamenn í Khöfn í febrú- ar og mars að skoða sýninguna í Breiðgötu 68. Semja þarf um fjárlögin Nú er Poul Schluter kominn úr Kanaríeyjaferðinni brúnn og sæl- legur. Hann telur sig þurfa að semja við Anker Jörgensen um fjárlögin, því hann telur ótryggt að reiða sig á þrjú atkvæði frá Grænlendingum og Færeyingum. Sósíaldemókratar krefjast ríf- legra framlaga á fjárlögum til þess að minnka atvinnuleysi hjá ungu fólki. Stjórnin er heldur ófús til þess, en einhvers staðar verður líklega mæst á miðri leið. Þetta minnir á Fjárhagsráð í gamla daga: Ef þú verður með þessari jeppaumsókn, þá skal ég vera með þinni. Enn er í minni svar Magn- úsar Jónssonar dósents, er lengi var formaður Fjárhagsráðs, er maður einn sótti um jeppa fyrir bróður sinn, sem var prestur aust- ur á jörðum: „Kristnaði ekki Páll postuli Rómaveldi jeppalaus, næsti." Velferðarríki á villigötum Danir voru komnir út í algerar ógöngur með félagslega hjálp. Ég hlustaði á þátt í danska sjónvarp- inu fyrir nokkrum árum og þá ofbauð mér alveg. Einn þátttak- andinn í umræðunum heimtaði að allir ættu kost á „borgaralaunum" án þess að vinna, við það myndu svo mörg störf losna, að þeir, sem endilega vildu vinna, fengju allir atvinnu. Samkvæmt upplýsingum Sameinuðu þjóðanna og OECD um árið 1982 er kaupmáttur atvinnu- leysisbóta hæstur í Danmörku, þannig að skiljanlegt er, að menn séu verkfælnir með allt að 92% styrk, enda mun þetta vera heims- met. Storm P. lýsti Danmörku fyrir daga styrkjaöfganna þannig: Róni kom að fínni villu og bankaði upp á, húsfreyja kemur til dyra og spyr með þjósti: „Hvad vil De?“ (Hvað viljið þér?), en róninn svar- ar: „Hvad har De? (Hvað eigið þér?). Þetta minnti mig á Júlla gamla skó, sem lengi hafði verkstæði í Aðalstræti 9 og Þórbergur kallar sérfræðing sinn í praktískri lífs- fílósófíu í inngangi sínum að Eddu. Júlli skó sagði um vin sinn Óla frá Bæ: „Æi, hann er meiri aumingi en hann þyrfti að vera.“ Danir eru nú að endurskoða alla sína félagsmálalöggjöf með dæmi Óla frá Bæ að leiðarljósi. Veðrið Janúar var sá vætusamasti í Danmörku síðan 1921, rigndi 103 mm í mánuðinum, enda hver ein- asta ferð uppseld hjá ferðaskrif- stofunum, sem sérhæfa sig í sólar- eyjum. En í dag, 5. febrúar, stytti upp um hádegið og fórum við hjónin þá með vinafólki okkar ís- lensku út á Sjáland og snæddum hádegisverð í Strandmöllerkroen, Sjósókn og aflabrögð í Vestfirðingafjórðungi í janúar: Línubáturinn Þrym- ur með 159,7 lestir ágæt rækjuveiði MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi yfírlit yfir aflabrögð og sjósókn í Vestfirðingafjórðungi í janúarmánuði frá skrifstofu Fiskifé- lags íslands á ísafirði: Veðurfar var mjög óstöðugt í janúar og oftast skakviðri á mið- unum útaf Vestfjörðum með mikl- um fannkomum. Var sjósókn því örðug allan mánuðinn. Afli var mjög tregur bæði hjá línubátum og togurum, nema helzt línubátum frá Patreksfirði, sem voru með dágóðan afla í mánuðinum. I janúar stunduðu 13 (13) togar- ar og 15 (19) bátar botnfiskveiðar frá Vestfjörðum, en 56 (47) bátar stunduðu rækjuveiðar. Botnfisk- aflinn í mánuðinum varð 4.444 lestir, en var 4.350 lestir í janúar í fyrra. Afli línubáta var nú 1.639 lestir í 252 róðrum eða 6,5 lestir að meðaltali í róðri. Er það nokkru betra en í fyrra, en þá var meðal- aflinn 5,8 lestir. Aflahæsti línubáturinn var Þrymur frá Patreksfirði með 159,7 lestir í 19 róðrum, en í fyrra var Vestri frá Patreksfirði aflahæstur í janúar með 124,8 lestir í 18 róðr- um. Guðbjörg frá ísafirði var afla- hæst togaranna bæði árin, nú með 281,8 lestir, en í fyrra með 389,8 lestir. Aflinn í einstökum verstöðvum: PatrekHÍjördur Sijrurey tv. 198,7 lestir í 4 feróum Þrymur 159,7 lestir í 19 ferðum Vestri 156,5 lestir í 19 ferðum Patrekur 146,6 lestir í 20 ferðum Tálknafjöróur: Tálknfirðingur tv. 274,8 lestir í 3 ferðum Víaría Júlía 124,5 lestir í 19 ferðum Stígandi 26,6 lestir í 5 ferðum Bíldudalur: Jón Þóróarson 40,0 lestir í 1 ferð Þingeyri: Sléttanes tv. 199,8 lestir í 3 ferðum Framnes I tv. 155,5 lestir í 3 ferðum Flateyri: Asgeir Torfason 129,6 lestir í 20 ferðum (íyllir tv. 117,2 lestir í 3 ferðum Sif 75,0 lestir í 13 ferðum Dagstjarnan tv. 26,6 lestir í 1 ferð Suðureyri: Klín l»orbj.d .tv. 225,2 lestir í 4 ferðum Sigurvon 133,9 lestir í 20 ferðum Bolunjrarvík: Dajfrún tv. 162,6 lestir í 3 ferðum Jakob Valgeir 131,3 lestir í 20 ferðum llujrrún 127,9 lestir í 20 ferðum Heiðrún tv. 94,7 lestir í 4 ferðum Ilalldóra Jónsd. 79,1 lestir í 15 ferðum ísafjörður: (■uðbjörj; tv. 281,8 lestir í 3 ferðum Páll Pálsson tv. 227,9 lestir í 3 ferðum Júlíus (>eirm.s. tv. 203,2 lestir í 4 ferðum Orri 133,6 lestir í 20 ferðum (■uðbjartur tv. 113,5 lestir í 3 ferðum Víkingur III 99,0 lestir í 15 ferðum (■uðný 75,8 lestir í 17 ferðum l>orlákur ÁR 11,7 lestir í 1 ferð Súðavík: Bessi tv. 190,3 lestir f 3 ferðum Aflatölur bátanna eru miðaðar við óslægðan fisk, en aflatölur tog- aranna við slægðan fisk. Aflinn í hverri verstöð í janúar 1984: 1983: Patreksfj. 682 lestir < 522 lestir) Tálknafj. 441 lesl < 351 lest) Bíldudalur 40 lestir < 155 lestir) Þingeyri 391 lest < 320 lestir) Flateyri 371 lest < 313 lestir) Suðureyri 383 lestir < 239 lestir) Bolungarvík 628 lestir < 629 lestir) ísafjörður 1.283 lestir (1.543 lestir) Súðavík 225 lestir ( 278 lestir) Rækjuveidar 4.444 lestir (4.350 lestir) Rækjuveiðar hófust á ný 5 janú- ar, en þá höfðu veiðar legið niðri frá því um miðjan desember. Ágætur afli var á öllum veiði- svæðunum. Heildaraflinn í mán- uðinum var 869 lestir, en var 594 lestir í janúar í fyrra. Á haust- vertíðinni veiddust 1.100 (1.194) lestir. Eru því komnar á land 1.969 (1.778) lestir frá byrjun haustver- tíðar. í janúar stunduðu 56 bátar rækjuveiðar frá Vestfjörðum, en það er níu bátum fleira en í fyrra. Aflinn í janúar skiptist þannig ------ eftir veiðisvæðum: 1984 1983 Lestir Bátar Alls Lestir Bátar Arnarfjörður 63 9 197 52 7 ísafjarðardjúp 565 34 1.196 393 28 llúnaflói 241 13 576 149 12 869 56 1.969 594 47

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.