Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 Hosni Mubarak forseti Egyptalands t.v. og Hussein Jórdaníukonungur t.h. hittast að máli í Washington í dag. Á morgun, þriðjudag, hitta þeir Konald Reagan forseta Bandaríkjanna að máli. Símamynd AP. Mubarak og Hussein hjá Ronald Reagan Washington, 13. febrúar. AF. HOSNI Mubarak, Egyptalandsfor- seti, og Hussein, Jórdaníukonungur, eru nú báðir staddir í Washington og munu eiga fund með Reagan, Bandaríkjaforseta, á morgun, þriðju- dag. Talsmaður utanríkisráðuneyt- isins segir, að það sé einskær tilvilj- un, að þjóðarleiðtogarnir skuli koma í heimsókn samtímis. Á fundinum á morgun mun Líb- anonmálið verða aðalumræðuefn- ið og hugsanlegar leiðir til að koma á friði í þessu stríðshrjáða landi. Ástandið í Miðausturlönd- um almennt verður einnig ofar- lega á baugi en eftir að Arabaríki ákváðu að taka Egypta í sátt hafa áhrif þeirra aukist til mikilla muna. Talið var líklegt, að þeir Mubarak og Hussein ættu með sér sérstakan fund áður en þeir hittu Reagan að máli. Bretland: Austur-Evrópumönn- um meinaöur aðgangur London, 13. febrúar. AP. BRESKA ríkisstjórnin ákvaö nú um helgina að banna fimm starfs- mönnum verkalýösfélaga í Austur- Evrópu aö koma til landsins en þeir ætluðu að taka þátt í eins dags ráð- stefnu um afvopnunarmál þar sem andstaðan við stýrieldflaugarnar er aðalmálið. Er ráðstefnan haldin á vegum bresku verkalýðssamtak- anna. Talsmaður stjórnarinnar sagði, að fulltrúum frá Ungverjalandi, Tékkóslóvakíu og Búlgaríu hefði verið neitað um vegabréfsáritun en fulltrúum frá Danmörku, Vestur-Þýskalandi, Austurríki og Ítalíu ekki. Fulltrúi Austur- Þjóðverja fékk hins vegar áritun CLAUDE Cheysson, utanrfkisrráð- herra Frakklands, átti í dag klukku- stundar langan fund með Sam Nuj- oma, leiðtoga SWAPO, hreyfingu blökkumanna í Namibíu. Sagði sá síðarnefndi eftir fundinn, að hann væri reiðubúinn til þess að ræða við Suður-Afríku um vopnahlé, ef við- ræðurnar færu fram á „hlutlausu landsvæði". Talsmaður franska utanríkis- ráðuneytisins skýrði svo frá, að hjá breska sendiráðinu í Austur- Berlín fyrir einhver mistök og mun þess vegna sitja ráðstefnuna. Það er friðar- og afvopnunar- nefnd verkalýðsfélaganna, sem fyrir ráðstefnunni stendur, en að áliti stjórnarinnar eru kommún- istar einkennilega fjölmennir í nefndinni. Sagði talsmaður stjórnarinnar, að ef fulltrúum Austur-Evrópuríkjanna hefði ver- ið hleypt inn í landið hefðu þeir „notað ráðstefnuna í áróðurs- skyni." Ýmsir talsmenn verka- lýðshreyfingarinnar hafa brugðist illa við ákvörðun stjórnarinnar og hefur James Milne, forystumaður í skosku verkalýðshreyfingunni, Cheysson hefði tjð Nujoma, að Frakkar legðu nú mikið kapp á, að Namibía fengi sjálfstæði og hafn- aði hann þeirri stefnu Bandaríkja- manna að gera það að skilyrði fyrir sjálfstæði landsins, að herlið Kúbu yrði kallað burtu frá Ang- ola. Nujoma fór í dag frá París til Moskvu, þar sem hann verður viðstaddur útför Yuri Andropovs. neitað því, að kommúnistar séu allsráðandi í friðar- og afvopnun- arnefndinni. Hann sagði þó, að það gæti „vel verið að þar séu fé- lagar í kommúnistaflokknum". Kona land- stjóri Kanada JEANNE Sauvé, forseti neðri deild- ar kanadíska þingsins, var fyrir nokkru skipuð landstjóri Kanada. Hún er fyrsta konan sem gegnir þessu embætti. Landsstjórinn er fulltrúi Elísabetar II drottningar í Kanada. Forveri Jeanne Sauvé var Edward Schreyer, sem hingað kom í opinbera heimsókn um árið. Hann hefur verið skipaður sendiherra Kanada í Ástralíu. Nýi landstjórinn er 61 árs. Hún var á sínum tíma ráðherra í stjórn frjálslyndra en Pierre Trudeau forsætisráðherra er leiðtogi Frjálslynda flokksins. Áður en Jeanne Sauvé hóf virka þátttöku í stjórnmálum starfaði hún sem blaðamaður í 18 ár. Hún var fyrst kjörin á þingið í Ottawa 1972. Hún var tækni- og vísindaráðherra 1972—74, umhverfisráðherra 1974— 75 og samgönguráðherra 1975— 79. I apríl 1980 var hún kjörin forseti neðri deildar þings- ins. Landstjóri Kanada er skipaður til fimm ára í senn. Ræddu um sjálf- stæði Namibíu Gólfið brast undir fótum samkvæmisgesta SEXTÍU og fimm manns slösuðust er gólf brast í íbúð, þar sem sam- kvæmi stóð yfir og dansinn dun- aði. Gerðist þetta á laugardagsnótt í East End í London. Féll fólkið um 3 metra niður á jarðhæðina fyrir neðan, sem er verzlunarhús- næði og lenti þar á öðrum gestum úr sama samkvæmi, er þangað höfðu leitað sökum þrengsla í íbúðinni uppi. Mikið brak og grjót féll niður er gólfið lét undan. Sautján ára gömul stúlka, Gina Randall, slasaðist hættulega á höfði og var hún í dag meðvitund- arlaus og í öndunarvél. Sjö manns aðrir voru enn á sjúkrahúsi vegna meiðsla, er þeir höfðu hlotið og hafði einn þeirra fótbrotnað. Margt fólk dreif að eftir óhappið til þess að hjálpa þeim burtu, sem slasazt höfðu. Lög- reglumaður, sem kom á vett- vang, hafði á orði, að ekki hefði verið hægt að ráða við þetta fólk. „Það voru margir, sem létu stjórnast af tómri móðursýki og voru bara fyrir þjálfuðum björg- unarmönnum, er þeir komu á staðinn í sjúkrabílum sínum." Talið er, að samkvæmisgestir hafi verið um 200—300 talsins. „Áður en gólfið brast mátti heyra í því brakhljóð," var haft eftir stúlku úr hópi samkvæm- isgesta. „Við báðum þá um, að lækkað væri í danstónlistinni. Það var gert, en síðan var bara hækkað aftur. Þá hrundi allt sarnan." undir einu þaki! yinnuvélaverkstæöi Skipa-og vélaviögeröir Efnissala____ Nýsmíöi Renniverkstæöi Betri þjónusta meö bættri aöstööu. Veriö velkomin í Borgartún 26. (Á horni Nóatúns). HAMAR Borgartúni 26. Sími 91-22123. Pósthólf 1444. KAUPMENN - INNKAUPASTJÓRAR: TÍSKAN FYRIR TÆRNAR! Sívaxandi vinsældir sanna ágæti sokkanna frá Víkurprjóni hf. Kristjánsson hf. Ingólfsstræti 12 Reykjavík sér um dreifingu á hinum viðurkenndu sokkum. KRISTJÁNSSON Ingólfsstræti 12. Sími 12800

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.