Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 • Þorgils Óttar Mathiesen sem hér svífur inn af línunni gegn Maccaby Tel Aviv étti góðan leik gegn Val. Þýðingarmikill sigur KR-inga KR-INGAR sigruðu íslandsmeist- ara Víkings í 1. deild handboltans í íþróttahúsi Seljaskóla á laug- ardag með 23 mörkum gegn 22 og. KR-ingar eiga því enn mögu- leika á sæti í efri úrslitakeppni deildarinnar; liðið á eftir einn leik, gegn KA á Akureyri. Stjarnan er einu stigi á undan KR og á einnig eftir einn leik, gegn Þrótti. Þróttur á einnig möguleika á s»ti í efri hópnum en liöið á eftir tvo leiki. Leikur KR og Víkings var mjög jafn, t.d. var jafnt á næstum öllum Ekkert stöðvar FH-inga EKKI fór þaö svo aö Valsmönnum tækist að binda enda á sigur- göngu FH-inga í íslandsmótinu í handknattleik er liðin mættust í Höllinni á sunnudagskvöldið. Reyndar leit allt út fyrir að Völs- urum ætlaði að takast aö ná a.m.k. öðru stiginu en undir lok leiksins geröu þeir sig seka um mistök sem gerðu þaö að verkum að þeir misstu leikinn úr höndun- um og FH-ingar sigruðu með 6 marka mun, 27—21. Ekki er hægt að segja að leikurinn hafi verið mikið fyrir augað, leikmenn beggja liða gerðu slæm mistök inn á milli og miðaö við að þarna voru á feröinni tvö efstu lið deild- arinnar bar allt of sjaldan á fal- legu spili. Það var því einstakl- ingsframtakiö sem naut sín í leiknum og sá sem stóð sig best í þeim efnum var Þorgils Óttar, skoraði 9 mörk fyrir FH og átti mjög góöan leik. Reyndar skipti leikurinn engu máli tölulega séö, bæði liöin hafa tryggt sér þátttöku i úrslitakeppn- inni og auk þess hefur FH þegar sigraö i mótinu. Fyrri hálfleikur leiksins var eins jafn og hann jafnastur gat oröiö, liöin skiptust á um aö hafa foryst- una, en aldrei þó meira en eitt mark og jafnt var á öllum tölum. Þegar um þrjár mínútur voru eftir af hálfleiknum voru Valsmenn einu marki yfir, 10—9, en í staö þess aö halda því forskoti og jafnvel bæta viö þaö misstu þeir boltann í tví- gang, og FH-ingar skoruöu tvö næstu mörk. Staöan í hálfleik var því, 11 — 10, FH ívil. Valsmönnum tókst aö jafna strax í upphafi síöari hálfleiks og jafnt var var á öllum tölum næstu tíu mínúturnar. Þá fóru mistökin aö segja alvarlega til sín hjá Val og FH breytti stööunni úr 15—15 í 19—15, og geröi þar meö út um leikinn. Þaö sem eftir var leiksins bættu FH-ingarnir enn viö forskot sitt án þess aö Valsmenn fengju rönd viö reist og lokatölurnar 27—21. Mörk FH: Þorgils Óttar 9, Krist- ján Arason 6 (2v), Atli Hilmarsson 5 (1v), Jón Erling Ragnarsson og Pálmi Jónsson 2, Guöjón Árnason, Guömundur Magnússon og Eggert ísdal eitt mark hver. Mörk Vals: Brynjar Haröarson 7 (2v), Valdimar Grímsson 4, Jakob Sigurösson, Björn Björnsson og Steindór Gunnarsson 3 mörk hver og Jón P. Jónsson eitt mark. Varin vítaköst: Einar Þorvarö- arson varði tvö víti frá Kristjáni og eitt frá Atla. Haraldur Ragnarsson varöi tvö víti frá Brynjari. Dómarar: Þorgeir Pálsson og Guömundur Kolbeinsson, og var dómgæsla þeirra í lakara lagi. — BJ. tölum i fyrri hálfleiknum en staöan í hálfleik var 12:12. Hvorugt liöiö lék sérlega vel, taugaspennan var greinilega mikil hjá þeim báöum og kom þaö niöur á handboltanum. Víkingar eru nú i þriöja sæti deild- arinnar og eiga eftir leik gegn Val. Síöari hálfleikurinn var einnig mjög jafn og einkenndist af sömu spennunni og sá fyrri. Þrátt fyrir aö Víkingar tækju tvo aðalmarkaskor- ara KR, Guömund Albertsson, úr umferð undir lokin náðu þeir ekki aö sigra. KR-ingar héldu haus og þýöingarmikill sigur var í höfn. Eins og áöur sagöi skoruöu Guömundur Albertsson og Jakob Jónsson mest fyrir KR, Guðmund- ur geröi 10 mörk og Jakob 7. Gunnar Gíslason geröi 3, Jóhann- es Stefánsson 2 og Björn Péturs- son 1. Viggó var markahæstur Vík- inga meö 6 mörk, 2 víti, Guömund- Staóan STAÐAN í 1. deild karla í hand- bolta er nú þannig: FH 13 13 0 0 13 9 1 13 7 0 13 6 1 13 5 2 12 4 2 12 2 1 Valur Víkingur Stjarnan KR Þróttur Haukar KA 13 0 2 283—258 26 291—260 19 302—285 265—293 233—235 254—275 9 236—286 11 232 304 14 13 12 11 5 2 ur Guðmundsson geröi 3, Sigurður Gunnarsson 3, Steinar Birgisson 3, Hilmar Sigurgíslason 3, Höröur Haröarson 2, Karl Þráinsson 1 og Guömundur B. Guömundsson 1. Ágætir dómarar voru Gunnlaug- ur Hjálmarsson og Óli Ólsen. FH-sigur á Val Á UNDAN leik Vals og FH í karla- flokki é sunnudagskvöldið léku sömu lið í kvennaflokki. Liö FH sigraði örugglega í þeim leik með 23 mörkum gegn 12, eftir að staö- an í hálfleik hafði verið 6—4, FH í vil. Leikurinn var jafn framan af og oftast haföi FH tveggja marka for- ystu. Þegar liða tók á síöari hálf- leikinn tóku FH-stúlkurnar mikinn fjörkipp og hristu stöllur sínar úr Val af sér svo um munaði og loka- tölurnar uröu 23—12. MÖRK FH: Kristjana Aradóttir 7, Kristín Pétursdóttir 5, Margrót Theodórsdóttir 4, Sigurborg Eyj- ólfsdóttir 3, Arndís Aradóttir 2, Anna Ólafsdóttir og Þórhildur Pálmadóttir eitt mark hvor. MÖRK Vals: Erna Lúövíksdóttir 5, Harpa Siguröardóttir og Karen Guömundsdóttir 2 hvor, Sigurlín Baldursdóttir, Soffía Hreinsdóttir og Björg Guömundsdóttir eitt mark hver. — BJ Tæknivíti þjálfarans Haukunum dýrkeypt VALSARAR stigu stríösdans í Seljaskólahúsinu eftir aö hafa lagt Hauka aö velli í leik, sem var æsispennandi frá fyrstu mínútu til síöustu sekúndu. Lauk leikn- um meö eins stigs sigri Vals, 80—79, en í hálfleik var staðan 47—40 fyrir Val. Og reyndar má kannski segja að orðháttur þjálf- ara og liðsstjóra Haukanna, Ein- ars Bollasonar, hafi oröiö Hauk- um að falli, því dómari dæmdi tæknivíti á Einar snemma í leikn- um er hann lét mikiö aö sér kveða frá hliðarlínu, og úr vítinu skoruöu Valsarar stig. Leikurfnn einkenndíst af mikilli taugaspennu leikmanna framan af, eða þar til Völsurum tókst loks aö ná nokkurra stiga forskoti upp úr miöjum fyrri hálfleik, en fram aö því voru sömu tölur á töflunni 10 sinnum, eöa þar til staöan var 27—27. Þá náöu Valsarar góöum spretti og komust í 37—27 á ör- stundu, og þótt Haukarnir reyndu Hörkuspennandi er Fram vann ÍS í 1. deild í blaki FRAMMARAR lögðu stúdenta að velli í 1. deildarkeppninni í blaki um helgina. Unnu þrjár hrinur en töpuðu tveimur í hörkuspennandi leik. Þróttur heldur enn forustu í deíldinni, sigraði Víking 3—1. Hjá kvenfólkinu sigraöi ÍS lið Víkings 3—0, Þróttur sigraöi KA 3—1 en tapaði fy'rir Völsungi 3—1. Völs- ungur sigraði einnig liö Breiöa- bliks, 3—2, en Breiöablik sigraöi síðan lið KA, 3—0. Leikur Fram og ÍS var bæði langur og sögulegur. Stúdentar unnu fyrstu hrinuna 15—9 en Frammarar tvær næstu 15—12 og 15—11. i fjóröu hrinu, sem var mjög jöfn, var mikill hiti í leik- mönnum og þegar staöan var 15—14 fyrir ÍS fékk einn leikmaöur Fram aö sjá rauöa spjaldiö sem þýöir tapaö stig fyrir Fram og þar meö var staöan oröin 16—14 og því þurfti aukahrinu til aö gera út um leikinn. Frammarar komu mik- iö á óvart í þessari hrinu. Margir töldu aö þeir næöu sér ekki á strik eftir þaö sem á undan var gengiö, en viti menn, þeir voru hinir róleg- ustu og einbeittu sér aö því aö leika blak og uppskáru laun erfiöis síns og sigruöu 15—12. Bestir í liöi Fram voru þeir Ólafur Traustason, Haukur og Kristján Már en hjá IS var Friöjón bestur. Leikurinn tók alls 116 mínútur sem mun vera lengsti leikur sem Fram hefur leik- iö til þessa. Leikur Þróttar og Víkings varö ekki eins jafn og ætla mátti miöað viö hversu marga leikmenn vantaöi í lið Þróttar. Fyrstu tvær hrinurnar unnust létt 15—11 og 15—13 en þriöju hrinuna vann Víkingur 15—11 eftir aö Þróttur hafði kom- ist í 5—0. Frjóröu hrinuna vann Þróttur síöan 15—7. — sus • Friðbert Traustason og félagar hans í ÍS tðpuöu fyrir Fram um helgina, en það er liðíö tem Friö- bert þjálfar þannig aö augljóst er að hann hefur kennt Frömmurum eitthvað um veikleika ÍS. aö krafsa í bakkann og beröust vel, þá höföu Valsarar undirtökin og forskotiö minnkaöi lítiö til hálf- leiks. Valsarar héldu forskoti sínu framan af seinni hálfleik og þegar Pálmar Sigurösson varö aö yfir- gefa völlinn er rúmar 10 mínútur voru til leiksloka hélt maöur aö eft- irleikurinn yröi léttur fyrir Valsara. En Haukarnir tvíefldust viö aö missa Pálmar útaf og böröust af mikilli hörku undir röggri forystu Hálfdáns Markússonar, sem var beztur Haukanna í heildina. Tókst þeim smátt og smátt aö saxa á forskot Valsara og ætlaöi þakiö á Seljaskólahúsinu aö rifna af, slík var stemmningin síöustu tvær mín- úturnar. Breyltu þeir stööunni síö- ustu mínúturnar úr 79—71 í 79— 77. Skoruöu þá Valsarar úr víti þegar 56 sekúndur voru eftir, 80— 77, en 10 sekúndum seinna minnkuöuu Haukar muninn í 80- 79. Næsta sókn Vals bar ekki ár- angur og Haukar fengu knöttinn þegar 30 sekúndur voru eftir og varö spennan rafmagnaöri en fyrr. En Völsurum tókst aö verjast, og braust fögnuöur þeirra út er flauta dómarans gall viö. Undirritaöur man vart meiri stemmningsleik í úrvalsdeildinni í vetur. Léku liöin hraöan og góöan körfuknattleik nánast út í gegn. Valsarar eru öruggari og betri en um áramótin, er þeir töpuöu hverj- um leiknum af öörum. Tómas var mjög góöur á köflum og Torfi og Kristján áttu góöan leik, einkum sá síöarnefndi. Haukarnir fara langt á haröfylgi sínu, og sýndu síöan síö- ustu 10 mínúturnar, aö breiddin er meiri en leikaöferöir gefa til kynna meöan Pálmars nýtur viö. Pálmar í #lr m • Kristján Ágústsson (t.h.) var mjög góður gegn Haukum. var góöur meöan hans naut viö og losaöi sig jafnan auöveldlega úr strangri gæzlu. Kristinn kom vel frá leiknum, og Hálfdán var beztur Haukanna í heildina. Stig Vals: Kristján Ágústsson 23, Torfi Magnússon 18, Tómas Holton 16, Páll Arnar 9, Leifur Gústafs 6, Jóhannes Magnússon 4, Valdimar Guölaugsson 4. Stig Hauka: Pálmar Sigurösson 19, Kristinn Kristinsson 17, Hálf- dán Markússon 16, Ólafur Rafns- son 8, Eyþór Árnason 7, Reynir Kristjánsson 6, Sveinn Sigur- bergsson 6. Maður leiksins: Kristján Ágústs- son Val. — ágás.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.