Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 27 Ballesteros bestur í Evrópu HVER er besti golfleikeri í Evr- ópu? Það eru eflaust ekki allir sammála um hver það, en nýlega voru birtar niðurstöóur þær sem tölva komst aö eftir aö hún haföi verið mötuö á öllum hugsanleg- um og óhugsanlegum upplýsing- um um þá sem taldir voru líkleg- astir til aö vera ofarlega á lista yfir bestu golfleikara í Evrópu. Tölvan raöaöi golfleikurunum niöur eftir því hvar þeir standa í því aö slá upphafshögg, nákvæmni þess, hversu nákvæm högg þeirra eru inn á flötina, hversu vel þeim gengur aö slá úr sandgryfjum og hversu góöir púttarar þeir eru. Úr- slitin í þessari athugun uröu þau aö Severiano Ballesteros er talinn hafa nokkra yfirburöi í þessari vinsælu íþrótt en hann er meöal þeirra hæstu í öllum þeim þáttum sem athugaðir voru. Þeir sem koma næstir snillingn- um eru þeir Nick Faldo og Bern- hard Langer en þeir eru þó nokkuö á eftir honum. Hér á eftir fer tafla þar sem sést í hvaöa sæti hver og einn þeirra þremenninga lentu í aö mati tölvunnar: • Ballestero* er högglengsti golfleikari ( Evrópu. Hér sást hann slá aitt af sínum löngu og nákvæmu upphafshöggum. • Langer er mjög öruggur þegar hann lendir ( sandgryfjum og á þessari mynd sást hann á uppáhaldsstaönum sínum en „bunkerar“ hafa ekki hingað til þótt eftirsóknarveröir staöir að lenda á. Ballesteros Faldo Langer Lengd upphafshöggs: 1. sæti 13. sæti 3. sæti Nákvæmni upphafshöggs: Nákvæmni viö aö leika 9. sæti 10. sæti 37. sæti inn á flöt: 6. sæti 6. sæti 5. sæti Sandgryfja (bunker): 12. sæti 4. sæti 1. sæti Pútt: 3. sæti 29. sæti 29. sæti Samtals stig: 31 stig 62 stig 75 stig - Pútt er ekki sterkasta hliðin hjá Nick Faldo en engu aö síöur veröur hann aö pútta og hár sást hann eftir eitt slíkt. • Kosevo-aöalleikvangurinn ( ólympíuþorpinu í Sarajevo. Þarna fer keppnin í listhlaupi og skauta hlaupi fram. Morgunblaðið/ Simamyndir AP • Gífurleg öryggisgæsla er á vetrarólympíuleikunum í Sarajevo, og er bæöi fjölmennt liö lögreglu og hersins viö gæslu á keppnisstööum svo og í ólympíuþorpinu. Þessi mynd er tekin fyrir utan Kosevo- leikvanginn þar sem setningarathöfnin fór fram. Bæði lögregla og hermenn eru sagöir taka starf sitt mjög alvarlega og vera viö öllu búnir. Saunders fékk nýja bifreið Áhangendur beðnir að safna fé til kaupa á leikmönnum Frá Bob Hennessy, fréttamanni Morgunblaðsins á Englandi. Ahangendaklúbbar Birming- ham hafa nú veriö beðnir aö reyna aö safna peningum til kaupa á nýjum leikmönnum. Birmingham er ekki allt of stönd- ugt félag, þannig aö þetta þarf kannski ekki aö koma á óvart — nema vegna þess aö félagiö er nýbúið aö kaupa Daimler-bifreiö handa framkvæmdastjóranum Ron Saunders. Daimlerinn kostaöi 28.000 pund, en þess má geta aö Saund- ers hefur í samningi sínum viö fé- lagiö ákvæöi þess efnis aö hann geti fengiö nýjan bíl aö eigin vali annaö hvert ár. I hitteöfyrra fókk hann sér Mercedes Benz en var nú orðinn leiöur á honum! Benzinn var metinn á 23.000 pund en félagiö seldi hann á 16.000 pund. Þess má geta aö föst árslaun Saunders hjá félaginu eru 50.000 pund. Margir áhangenda Birmingham eru ekki mjög hressir meö þá bón félagsins aö þeir safni fé til kaupa á leikmönnum þegar Saunders lætur eyöa peningum félagsins í bílakaup handa sjálfum sér og lái þeim þaö hver sem vill. • Ron Saunders Arsenal-addáendur ætla sér í páskaferð Aðdáendaklúbbur Arsenal á ís- landi hefur ákveöiö aö fara í páskaferð til Lundúna föstudag- inn 20. apríl, síöan veröur komið heim mánudaginn 23. apríl. Aö sjálfsögöu veröur fariö á High- bury laugardaginn 21. aprtl, þar sem veröur á dagskrá leikur Lundúnarisanna Arsenal og Tott- enham Hotspur og mun sá leikur vafalaust veröa geysilega skemmtilegur leikur tveggja stór- skemmtilegra liöa. Arsenalklúbb- urinn á íslandi mun standa aö undirbúningi þessarar feröar og mun meöal annars veröa komiö á fót happdrætti sem tengt yröi þessari ferö, og yröi þaö þá ein- göngu ætlað klúbbfélögum í aö- dáendaklúbbi Arsenal á íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.