Morgunblaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 1
80 SIÐUR STOFNAÐ 1913 37. tbl. 71. árg. MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Mikill alvörublær yfir útför Yuri Andropovs Kista Andropovs borin til grafar. Auk hermanna báru nokkrir ædstu valdamenn Sovétríkjanna kistuna síðasta spölinn, en þeir eru taliö frá vinstri: Konstantin Chernenko, eft- irmaöur Andropovs; Nikolai Tikh- onov forsætisráðherra, Dimitri Ust- inov varnarmálaráðherra og Andrei Gromyko utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna. (AP-Símamynd). Moskvu, 14. febrúar. AP. MIKILL alvörublær hvfldi yfir útför Yuri Andropovs, hins látna forseta Sovétríkjanna og leiðtoga kommúnistaflokksins, sem fram fór í Moskvu í dag. Hermenn sem gengu gæsagang fylgdu kistunni er fallbyssuvagn flutti, en á eftir gengu ekkja og börn hins látna og síðan meðlimir stjórnmálaráðs- ins og æðstu menn úr stjórn og her Sovétríkjanna. í ræðu sem Konstantin Chern- enko, hinn nýi leiðtogi kommún- istaflokksins flutti, minntist hann Andropovs sem manns er gæddur hefði verið „mikilli sál og göfugu hjarta og ákaft barðist fyrir friði". Mikill mannfjöldi var viðstaddur útförina, þar á meðal háttsettir fulltrúar um 60 erlendra ríkja. Lík Andropovs var jarðsett á bak við grafhýsi Lenins á milli grafreits Feliks E. Dzherzhininsk- ys, stofnanda sovezku leynilög- reglunnar (KGB), og Mikhail Kal- inin, sem var annar forseti Sovét- ríkjanna. Sjálfur var Andropov yfirmaður KGB í 15 ár áður en hann varð æðsti valdamaður Sov- étríkjanna. Það vakti athygli viðstaddra að Chernenko hóstaði oft á meðan hann flutti 8 mínútna langa ræðu sína og þurrkaði sér hvað eftir annað um nasirnar. Á einum stað tók hann andköf. Hefur þetta leitt til bollalegginga um að Chernenko sé ekki eins heill heilsu og af er látið, en hann dvaldist um tíma sl. vor á sjúkrahúsi vegna lungna- bólgu. Frú Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, heilsar Konstantin Chernenko, hinum nýja leiðtoga Sovétríkjanna, við útför Yuri Andropovs í Moskvu í gær. (AP-Símamynd) Frú Margaret Thatcher í Moskvu: Fundur um Líbanon • • í Oryggisráðinu New York, 14. febrúar. AP. FRAKKAR fóru þess á leit í dag, að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði kallað saman til þess aö ræða ástandið í Líbanon. Þá hafa Frakkar ennfremur óskað eftir því, að Sam- einuðu þjóðirnar sendi friðargæslu- lið til Líbanon í stað þess liðs frá mörgum þjóðum, sem nú er í land- inu. Er gert ráð fyrir, að Öryggisráð- ið hefji umræður um Líbanon á morgun, miðvikudag. Sovétríkin eru sögð hafa veitt bráðabirgðasamþykki sitt fyrir því, að friðargæslulið á vegum Sameinuðu þjóðanna verði sent til Líbanon. Það skilyrði mun þó vera sett, að Bandaríkjamenn, Bretar, Frakkar og ítalir kalli burt herlið sitt frá Líbanon og að þau banda- rísku herskip, sem verið hafa úti fyrir strönd landsins, hverfi burt þaðan. Var þetta haft eftir banda- rískum embættismönnum í dag. Nokkur vafi var í dag talinn leika á því, hvort Bandaríkjamenn myndu fallast á þessa nýju tillögu. Er talið líklegt, að Banda- ríkjastjórn sé því samþykk að flytja herlið sitt í Líbanon til herskipa sinna úti fyrir strönd landsins, en vilji að herskipin verði þar áfram. „Vil koma á víðtækum skiln- ingi á milli austurs og vesturs“ Mo.skvu, 14. febrúar. AP. FRÚ MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, átti í dag fund í Moskvu með Konstantin Chernenko, hinum nýja leiðtoga Sovétríkjanna. Stóð fundur þessi í hálfa klukkustund og voru utanríkisráðherrar Bretlands og Sovétríkjanna, þeir Sir Geoffrey Howe og Andrei Gromyko, einnig við- staddir. „Ég vona í einlægni, að forystumenn Sovétríkjanna bregðist jákvæð- ir við hverri tilraun til þess að bæta samskipti austurs og vesturs,“ sagði frú Thatcher við fréttamenn eftir fundinn. Brezki forsætisráðherrann heimsótti Ungverjaland fyrr í þessum mánuði og er talið, að sú heimsókn hafi verið fyrsti þáttur- inn í vandlega undirbúinni tilraun til þess að bæta sambúðina við Sovétríkin og fylgiríki þeirra. „Það má ekki líta á för mína til Ungverjalands né komu mína til Moskvu nú, sem skyndilega og óvænta atburði," sagði frú Thatcher. „Mér var það ljóst síðastliðið sumar, að tími var kominn til að taka til alvarlegrar endurskoðun- ar sambúð okkar við Austur- Evrópu. Samskiptin milli austurs og vesturs voru orðin það tak- mörkuð, að hættan á misskilningi er orðin mikil. Ekki var það til þess að bæta úr, er suðurkóreska farþegaþotan var skotin niður 1, september sl.“ Frú Thatcher kvaðst vilja koma á „víðtækum skilningi á breiðum grundvelli" milli austurs og vesturs þrátt fyrir mismunandi skoðanir, svo að samvinna gæti tekizt um afvopn- un og á öðrum sviðum. George Bush, varaforseti Banda- ríkjanna, átti einnig fund í dag með þeim Chernenko og Gromyko. Sagði Bush við fréttamenn eftir fundinn, að þar hefði ríkt velvilji þrátt fyrir það, að bæði hann og Chernenko gerðu sér grein fyrir því, „hve alvarlegur sá ágreining- ur er, sem ríkir með Sovétríkjun- um og Bandarikjunum. Enginn getur búizt við skjótri og auðveldri lausn á deilumálum ríkjanna". Kvaðst Bush hafa lagt áherzlu á, að dregið yrði úr kjarnorkuvopna- framleiðslu, bundinn yrði endi á þau átök, sem nú eiga sér stað víða í heiminum og unnið að bættum samskiptum stórveldanna. Bush var spurður að því, hvern- ig Chernenko hefði komið honum fyrir sjónir, en mjög lítið er vitað um þann síðarnefnda á Vestur- löndum og svaraði Bush þá: „Á fundi okkar kom hann fram af myndugleika. Hann leit vel út og var mjög alúðlegur." Bush vildi hins vegar ekkert segja frekar um, hvaða málefni hefðu fyrst og fremst verið rædd á fundinum, en kvaðst hafa afhent sovézka leið- toganum „efnismikið bréf“ frá Reagan forseta. Svíþjóð: Sprengjum varpað á kafbát Stokkhólmi, 14. febrúar. AP. SÆNSK herskip vörpuðu í dag mörgum djúpsprengjum á út- lendan kafbát í grennd við flotastöðina í Karlskrona í Suðaustur-Svíþjóð. Fór fram umfangsmikil leit að hugsan- legum kafbát á þessu svæði og tóku bæði skip og flugvélar þátt í leitinni. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem vart verður við erlendan kafbát þarna, því að það var einmitt í grennd við Karlskrona, sem sovézkur kafbátur strandaði haustið 1982. Leitin að kafbátnum hófst fyrir fimm dögum, en hefur farið að mestu fram með leynd til þessa. Ákafari leit og notkun djúpsprengja þyk ir eindregið benda til þess, að sænsk yfirvöld séu nú orðin fullviss um veru kafbátsins inni í sænskri lögsögu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.