Morgunblaðið - 16.02.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.02.1984, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI STOFNAÐ 1913 38. tbl. 71. árg.__________________________________FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1984________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Aukinn^ þungi í sókn írana Nikósíu. Kýpur, 15. febrúar. AP. HERÞOTIIK írana gerðu í morgun loftárás á úthverfi Bagdad, höfuöborgar íraks, skömmu eftir að þær höfðu gert árás á nærliggjandi borg, Baaqubah, og nokkrar aðrar borgir landsins. Seint í kvöld tilkynntu yfirvöld í íran um manntjón og sögðu 25 óbreytta borgara hafa fallið og 67 hafa særst í árásunum. Jafnframt var frá því skýrt að loftárásirnar hefðu náð til nokkurra borga í landinu, en ekki aðeins tveggja eins og sagt var fyrr í dag. Árásin á Bagdad í morgun markar tímamót í 3% árs löngu stríði þjóðanna, að því leyti að svo langt inn í írak hafa íranskar her- þotur aldrei komist fyrr til árása. íranska fréttastofan, IRNA, sagði árásirnar aðeins vera hefnd fyrir árásir íraka á borgirnar Ilam og Khorramshar í gær. Sagði IRNA 27 hafa látið lífið og 300 særst í árásunum. Varnarmálaráðherrar Kuwait og Saudi-Arabíu vísuðu í dag þeirri hótun írana að loka Horm- uz-sundi alfarið á bug sem „gróf- legri áreitni". Sögðu þeir jafn- framt, að ekki yrði við það unað tækju íranir af skarið og lokuðu sundinu. Chernenko búinn að gefa tóninn Gagnrýndi stefnu Bandaríkjanna í M-Ameríku Moskvu, 15. febrúar. AP. PIERRE Trudeau, forsætisráðherra Kanada, átti í dag 35 mínútna fund með Konstantin Chernenko, hinum nýja leiðtoga sovéska kommúnista- flokksins. Sagði Trudeau, að um- mæli þau er Chernenko viðhafði hefðu verið mjög „í anda Brezhn- evs“. Þó sagði Trudeau fréttamönnum eftir fundinn, að sér hefði virst af- staða Chernenkos til samskipta austur- og vesturveldanna heldur mildari, en vestrænir frammá- menn, sem hittu hann að máli í gær, hefðu látið i veðri vaka. I viðræðum við leiðtoga ýmissa þjóða heims í dag og gær hefur Chernenko lagt á það áherslu, að hann hyggist taka upp þráðinn þar sem frá var horfið er Andropov lést. Gaf hann strax til kynna það sem koma skal, er hann gagnrýndi stefnu Bandaríkjamanna í Mið- Ameríku. Sigurkoss Breska skautadansparið Jayne Torvill og Christopher Dean brutu blað í sögu skautadans á Ólympíuleikunum er þau fengu 12 sinnum hæstu cinkunn dómaranna fyrir frammistöðu sína í fyrradag. Sjá nánar íþrótt- ir á bls. 46 Og 47. Símaniynd AP. Reagan, Bandarfkjaforseti, á fundi með fréttamönnum í gærkvöldi: Yfirmaður gæsluliðs SÞ myrtur Róm, 15. febrúar. AP. TVEIR vopnaðir menn skutu í kvöld Leamon Hunt, yfirmann gæsluliðs Sameinuðu þjóðanna á Sinai-skaga, til bana á götu úti í Róm. Hunt lést skömmu eftir að komið var með hann í sjúkrahús. Hópur, sem nefnir sig „baráttu- hóp kommúnista", hafði samband við dagblað í Mílanó nú í kvöld og lýsti morðinu á hendur sér. Þessi hópur er talinn nátengdur Rauðu herdeildunum svonefndu. Morðið var framið aðeins nokkrum stund- um eftir að George Bush, vara- forseti Bandaríkjanna, hélt frá Róm. Að sögn sjónarvotta hófu menn- irnir tveir skothríð á bifrið Hunt er hún nam staðar. Bifreið hans er búin skotheldum rúðum og endur- vörpuðust fyrstu skotin. Þá hlupu mennirnir tveir upp að bifreiðinni og létu kúlnaregnið dynja á gler- inu uns það brast. Talið er að Hunt hafi fengið nokkur skot í sig áður en bifreiðastjóri hans tók loks við sér og ók honum í ofboði í sjúkrahús. Kafbátaleitin: Enginn árangur Verðum áfram í Líbanon á meðan friðar er von Washington, Vínarborg, Beirút, Jerúsalem, 15. i REAGAN Bandaríkjaforseti til- kynnti í kvöld, að svo gæti farið að bandarísku gæsluliðarnir yrðu hafðir í allt að 13 mánuði á hcrskip- unum undan strönd Líbanon ef þörf krefði. „Allt byggist á fram- vindu mála og hvernig okkur tekst upp,“ sagði Keagan á fundi með fréttamönnum. „A meðan einhver von er á friði verða menn okkar áfram í Líbanon." Meirihluti ítalska gæsluliðsins í Líbanon verður kallaður heim innan tveggja vikna, að því er talsmaður Bettino Craxi, forsæt- isráðherra Italíu, sagði í Vínar- borg í dag. Öryggisráð Sameinuðu þjóð- febrúar. anna kom saman í dag til að ræða þá tillögu Frakka, að gæslulið frá SÞ taki við af gæsluliði Frakka, Bandaríkjamanna, Breta og ítala í Líbanon. Engin niðurstaða varð á fundinum, en annar fundur hef- ur verið boðaður í fyrramálið. Gemayel, forseti Líbanon, hef- Dollar veikist New York, 15. febrúar. AP. STAÐA Bandaríkjadollars veikt- ist mjög á gjaldeyrismörkuðum í Japan og Evrópu í dag. Hefur gengi dollarans nú lækkað um 3,5% á nokkrum vikum gegn helstu gjaldmiðl- um Evrópu. Breytingin gegn v-þýska markinu í dag nam t.d. 1,8%, dollar í óhag. ur að sögn stærstu blaðanna í Beirút lýst yfir áhuga sínum á að rifta samkomulaginu, sem gert var við Israela þann 17. maí sl. um brottflutning erlendra herja frá landinu, í þeirri viðleitni að bjarga lífi stjórnar sinnar. Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa, sagði í dag, að hann væri staðráð- i inn í að beita öllum brögðum til i að bola Amin Gemayel, Líbanon- forseta, frá völdum. Jumblatt sagði engu breyta þótt Líbanir ákvæðu að rifta samningnum við Israela. Sagði hann Gemayel grípa allt of seint í taumana. Stokkhólmi, 15. febrúar. AP. SÆNSKI sjóherinn hélt í kvöld áfram leit sinni að óþekktum kaf- báti, sem vart varð við undan ströndinni við Karlskrona um sl. helgi. Enginn árangur hefur enn orðið af leitinni. Á sama tíma og tilkynnt var um árangurslausa leit var frá þvi skýrt, að vart hefði orðið við er- lenda froskkafara innan skerja- garðsins við Karlskrona. Tíu djúpsprengjum var varpað síðdegis á staði, þar sem sjóher- inn taldi sig hafa orðið varan við kafbátinn. Átta djúpsprengjum var varpað í morgun, en allar virðast hafa misst marks. á lofti, sem gefa til- aukinnar bjartsýni Frá fundi George Bush með Konstantin Chernenko í Moskvu. Símamynd AP. Róm, 15. febrúar. AP. GEORGE BIISH, varaforseti Bandaríkjanna, sagði í dag eftir ferð sína til Moskvu vegna útfarar Yuri V. Andropov, að ákveðin teikn væru á lofti, sem gæfu tilefni til aukinnar bjartsýni um framvindu samskipta stórveldanna. Bush ræddi við fréttamenn á flugvellinum í Róm rétt áður en hann hélt til Parísar síðdegis. Á Ítalíu hitti hann ráðamenn að máli og ræddi einnig við Jóhannes Pál páfa II. „Ég gat ekki betur séð en Chern- enko væri vel á sig kominn og vel með á nótunum," sagði Bush og var að sögn ánægður með viðræður sínar við Sovétleiðtogann. Sagðist Bush hafa gert Chernenko það fyllilega ljóst, að Bandaríkjamenn væri reiðubúnir til viðræðna um alla hluti, þ.m.t. gagnkvæma fækk- un herja. Þá sagði Bush það hafa vakið athygli sína, að Chernenko hefði stýrt fundinum með sér af rögg- semi og aldrei leitað ráða hjá að- stoðarmönnum sínum á meðan á honum stóð. „Fundurinn með hon- um minnti mjög á fund, sem ég átti með Andropov fyrir 15 mánuð- um,“ sagði Bush að endingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.