Morgunblaðið - 17.02.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.02.1984, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 39. tbl. 71. árg.___________________________________FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1984________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Líbanski stjórnarher- inn bíður enn ósigur TTV 1 X 1 1 1 • V • V ^ • Æ j Bandaríska gæzluliðið í Beirút flutt í skip úti fyrir borginni Beirút, 16. febrúar. AP. LÍBANSKI stjórnarherinn galt enn afhroð í dag er fískveiðiborg- in Damour suður af Beirút og Mishref-herstöðin á fjallstindi í nágrenninu féllu í hendur drúsum í sókn þeirra suður þjóðveg- inn frá Beirút er liggur meðfram ströndinni. Bandarísku friðar- gæzluliðarnir verða fluttir frá Beirút um helgina og um borð í skip er staðsett verða úti fyrir borginni, að sögn heimilda í Hvíta húsinu, og Giovanni Spadolini varnarmálaráðherra Ítalíu sagði í Beirút í kvöld að ítalska gæzluliðið hyrfi frá borginni „á næstu dögum“. Bnginn árangur varð af fundi Öryggisráðsins um tillögu Frakka um myndun alþjóðlegrar friðargæzlusveitar til að taka við eftirliti í Beirút. Hróðugir drúsar fagna uppi á M-48-skriðdreka, sem þeir náðu af líbanska stjórnarhernum eftir harða bardaga við Abey í Líbanon á mið- vikudag. Stjórnarherinn hefur orðið að hrökklast frá flestum stöðva sinna í fjöllunum í miðhluta Líbanons og í Chouf-fjöllunum auk þess sem her- inn missti vesturhluta Beirút í hend- ur drúsa og shíta á dögunum. AP/Símamynd. Embættismenn í Washington sögðu Gemayel forseta hafa fallizt á tillögu Saudi-Araba um frið í Líbanon, sem gerir m.a. ráð fyrir riftun samnings við ísraela um brottflutning fsraelshers, en Shamir forsætisráðherra ísraels sagði að riftun samningsins yrði ógæfa Líbanons. Gerir tillagan ráð fyrir að friðargæzlusveitir Sþ taki stöðu í Beirút, að sýrlenzkar og ísraelskar hersveitir hverfi samtímis frá Líbanon á 60 til 90 daga tímabili, og að Gemayel hefji viðræður við fylkingar múham- eðstrúarmanna í því augnamiði að veita þeim aukin áhrif í stjórnun landsins. Sendi Gemayel utanrík- isráðherra sinn, Elie Salem, til Ryiadh þeirra erinda að fá Saudi- Araba til að knýja Sýrlendinga að samningaborði. Walid Jumblatt leiðtogi drúsa sagði tillögur Saudi-Araba of seint fram komnar og ganga of skammt. Nabih Berri leiðtogi shíta var sömu skoðunar og báðir sögðu þeir að refsa þyrfti Gemayel fyrir glæpi gagnvart þjóðinni, að aldrei yrði um málamiðlun við hann að ræða, og að koma yrði Falangistaflokknum frá völdum. Bandarískir embættismenn voru efins um að stríðandi fylk- ingar næðu samkomulagi um til- lögur Saudi-Araba og virtust jafn- framt búnir að sætta sig við ósig- ur stefnu Bandaríkjanna í málefn- um Líbanon. Vestrænar heimildir hermdu að drúsar og shítar myndu næst leggja til atlögu við borgina Souk El-Gharb, síðasta vígi stjórnar- hersins í fjöllunum í miðhluta Líbanon, ef engin pólitísk lausn á vandanum í Líbanon yrði fundin í bráð. Við fall borgarinnar yrði opin leið að forsetahöllinni og varnarmálaráðuneytinu. ísraelsku hersveitirnar fóru norður fyrir Awali-ána í dag og tóku sér stöðu rétt suður af Dam- our, sem er 18 km norður af ánni, vegna sóknar drúsa og shíta suður á bóginn. ísraelar segja 12 þúsund flóttamenn hafa flúið suður yfir Awali frá því á mánudag. Segja Iraka nota eiturgas Genf, Nikósíu. 16. febrúar. AP. Utanríkisráðherra íran, Ali Akb- ar Velayati, sakaði íraka um notk- un eiturgass og taugagass í loft- árásum á íbúðahverfi í hernaðinum gegn íran, en lýsti yfir að ekki yrði hefnt í sömu mynt. íranir hófu mikla sókn í nótt og sögðust hafa endurhcimt hernumdar lendur sín- ar og gert strandhögg innfyrir landamæri íraks við Badrah, 160 km suðvestur af Baghdad. Hins vegar sögðust írakar hafa brotið sókn írana á bak aft- ur og sjálfir hafið gagnsókn. ír- akar staðfestu þó að þeir hefðu orðið að hörfa og íranir hafi náð á sitt vald Pizzouli-, Azadkhan- og Koshteh-hæðunum, einnig Changuleh-skarðinu. Sögðust Ir- anir hafa skotið niður eina orrustuþotu íraka og fellt, sært eða tekið fasta hundruði her- manna. Átökin áttu sér stað á 160 kíl- ómetra löngum kafla á átakalín- unni, en auk þess kom til átaka í Persaflóa og héldu írakar fram að þeir hefðu sökkt sjö írönskum skipum skammt frá Bandar Khomeini-hafnarborginni í sam- eiginlegum aðgerðum sjó- og lofthers. Gorbachev talinn næstvaldamestur Moskvu, 16. febrúar. AP. MIKHAIL Gorbachev, sem talið var að keppt hefði við Konstan- tín Chernenko um æðstu völd í sovézka kommúnistaflokknum, gegndi lykilhlutverki á flokksfundinum þegar Chernenko var tilnefndur aðalritari og er sagður hafa tekið sæti annars valda- mesta leiðtogans í valdastiganum. Ljósmyndir af sovézkum leiðtog- um við útför Yuri Andropovs gáfu til kynna að völd Gorbachevs væru mikil og opinber bæklingur um miðstjórnarfundinn þar sem Chernenko var valinn virtist stað- festa það. AP komst yfir bækling- inn ! dag og hann sýnir að Gorbach- ev sleit fundinum formlega. Gorb- achev fengi ekki að njóta slíkra for- réttindá og það væri ekki staðfest í opinberum bæklingi nema hann væri mjög valdamikill í stjórnmála- ráðinu. Háttsettur sovézkur heimildar- maður sagði vestrænum fulltrúa við útför Andropovs að Gorbachev gengi Chernenko næstur að völdum í stjórnmálaráðinu. Gorbachev hvatti til flokksein- ingar í yfirlýsingu sinni og það er talin skýlaus stuðningsyfirlýsing við Chernenko og miðar að því að kveða niður allar hugmyndir um togstreitu og fylkja stuðnings- mönnum Gorbachevs um Chern- enko. Ekki er ljóst hvers vegna opinber blöð hafa ekki sagt frá yfirlýsingu Gorbachevs. Bæklingurinn, sem mun verða dreift í einni milljón ein- taka, verður ekki til sölu fyrr en eftir nokkrar vikur. Ein skýringin getur verið sú að menn vilji ekki beina athyglinni frá Chernenko og láta líta út fyrir að hann hafi þurft á stuðningi Gorb- achevs að halda i æðstu stöðuna. 1 bæklingi um nóvemberfundinn 1982 þegar Andropov var valinn eftirmaður Brezhnevs voru Andro- pov og Chernenko nefndir einu ræðumennirnir. Hlutverk Chern- enkos þá og yfirlýsing Gorbachevs nú þjóna greinilega þeim tilgangi að sýna á ytra borðinu að eining ríki í forystunni. Yfirlýsing Gorb- achevs virtist sérstakur leikur sem átti að gera honum kleift að tala fyrir hönd hinna stjórnmálaráðs- fulltrúanna. Þegar Ghernenko tók við var bollalagt hvort Gorbachev hefði ekki getað fengið nógu mikinn stuðning til að verða aðalritari og Chernenko væri sá eini sem gamlir Kremlverjar og yngri valdamenn gátu náð málamiðlunarsamkomu- lagi um. Leitarsvæðið fært út Stokkhólmi, 16. febrúar. Frá Olle Ekström frétUritara Mbl. SÆNSKI herinn færði út þad svæði, sem leitað er óþekkts kaf- báts á, er nýjar vísbendingar feng- ust í dag um neðansjávarferðir í nágrenni flotastöðvarinnar í Karlskrona. Kafarar köfuðu á þeim slóðum þar sem mörgum djúpsprengjum hefur verið varpað síðustu daga. Öllum undankomuleiðum hefur verið lokað með kafbátagirðing- um, jafnvel sundum, sem aðeins eru hálfs annars metra djúp. Leitin í dag var engu ákafa- minni en síðustu daga, og sagðist yfirmaður sænska heraflans þess fullviss að ókunnur kafbát- ur leyndist enn á leitarsvæðinu. Er kafbátabjörgunarskipið Belos nú á leið til Karlskrona. Dollarinn lækkar toadon. 16. febrúnr. AP. Bandaríkjadollar lækkaði smá- vegis gagnvart helztu gjaldmiðlum Evrópu í kjölfar stórlækkunar í gær. Dollarinn er hins vegar mjög sterkur og ekki við því búizt að hann lækki í bráð. Jákvæðar fréttir af bandarísk- um efnahagsmálum komu of seint til að snúa þróuninni við í dag, en lækkunin var verulega minni en I gær. Gullverð var hins vegar flöktandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.