Morgunblaðið - 22.02.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.02.1984, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 43. tbl. 71. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1984_______________________________Prentsmiðja Morgunblaósins Nýir kjarasamningar ASI og VSI: 13,6% launahækkun á samn- ingstímanum til 15. apríl 1985 306—330 milljónum króna varið til að bæta kjör hinna verst settu HEILDARSAMNINGUR Alþýðusambands íslands og Vinnuveitenda- sambands íslands var undirritaður í hádeginu í gær og síðan hefur Vinnumálasamband samvinnufélaganna einnig gerst aðili að samkomu- laginu. Fyrir hádegið í gær gengu fulltrúar ASI og VSÍ á fund formanna stjórnarflokkanna og fengu vilyrði fyrir aðgerðum í þágu þeirra sem verst eru settir í þjóðfélaginu, sem kosta á bilinu 306—330 milljónir króna. Fjármagn verður fengið með tilfærslu innan ramma fjárlaga, en ekki með nýjum tekjustofni og hefur einkum verið rætt um að taka þetta fé af niðurgreiðslum landbúnaðarafurða. Með samningnum telur ASÍ sig tryggja sama kaupmátt á samn- ingstímanum og var á fjórða árs- fjórðungi 1983, en þá er reiknað með að verðbólgan á árinu 1984 verði 10—11%. I samningnum eru ákvæði um að báðum aðilum sé heimilt að segja upp launaliðum samningsins með mánaðarfyrir- vara, þannig að þeir verði lausir 1. september og 1. janúar 1985. Magn- ús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSÍ, sagði í gær að samningurinn kostaði atvinnureksturinn 6—7%. Samningurinn felur í sér samtals 13,6% kauphækkun á samningstím- anum, sem er til 15. apríl 1985. 5% kauphækkun kemur við undirritun, 2% 1. júní, 3% 1. september og 3% 1. janúar 1985. Þá verða lágmarks- laun krónur 12.660, hækka úr 11.691 krónu, en það er samtals um 16% kauphækkun, þegar 5% hafa verið lögð við. Laun 16—18 ára fólks verða þó 11.509 krónur og þeirra sem hafa unnið styttra en 6 mánuði í starfsgrein. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, og Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, áttu fund snemma í gærmorgun með for- mönnum stjórnarflokkanna, þeim Steingrími Hermannssyni, forsæt- isráðherra, og Þorsteini Pálssyni. Þeir lögðu fyrir þá hugmyndir sínar um hvernig stjórnvöld gætu komið til móts við hina lægst launuðu i tengslum við kjarasamningana. Formennirnir kynntu síðan tillög- urnar fyrir ríkisstjórninni á fundi hennar sfðar í gærmorgun og fengu heimild hennar til að ganga frá samkomulagi við fulltrúa vinnu- markaðarins um vilyrði stjórnvalda fyrir slíkum aðgerðum. { tillögum um úrbætur fyrir hina verst settu er talað um tekjutengd- ar barnabætur, sem verði hæstar krónur 12 þúsund fyrir þá einstæða foreldra sem hafa upp að krónum 150 þúsund í árstekjur og fyrir hjón sem hafa upp að krónum 220 þús- und og minnki um 6,67% fyrir hverjar 10 þúsund krónur fyrir ofan þessi mörk. óendurkræfur barnalífeyrir hækki úr 1.615 kr. í 2.015. Gert er ráð fyrir að meðlagsgreiðslur fylg- ist að með þessum greiðslum. Mæðra- og feðralaun hækki um 750 krónur fyrir hvert barn á mánuði.fari úr 513 kr. í 1.263 með einu barni, úr 1.809 í 3.309 með tveimur börnum og úr 3.619 í 5.869 með þremur börnum. Hámarksupphæð tekjutrygg- ingar til elli- og örorkulífeyrisþega hækki um 10%, úr 3.861 kr. fyrir einstakling á mánuði í 4.247 kr. og fyrir hjón úr 6.527 kr. í 7.180 kr. Þá hækki frítekjumarkið um 10% og skerðingarprósenta lækki um 10 prósent, úr 55% í 45%. Heimilis- uppbót hækki um 10%, verði 1.422 kr., og dagpeningar á sjúkradeild- um hækki um 500 krónur á mánuði, í 1.750 kr.og í 1.989 kr. hjá öðrum. Sem dæmi um þau áhrif sem samningurinn hefur má nefna að einstætt foreldri á lágmarkslaun- um hefur fyrir samninginn samtals 13.809 krónur, en eftir hann 16.938 kr., sem er 29,4% hækkun. Einstætt foreldri með tvö börn er fyrir samn- inginn með 16.000 kr. en eftir hann með 21.999 kr. sem 37,5% hækkun og einstætt foreldri með þrjú börn var samtals áður með 19.425 kr., en fengi samkvæmt samningnum og væntanlegum ráðstöfunum ríkis- stjórnarinnar krónur 27.574, sem er 42% hækkun. Á blaðamannafundi sem haldinn var vegna samninganna kom fram að séu fjármunirnir fyrir væntan- legum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna samninganna teknir af niðurgreiðslum komi það til með að færa einstæðu foreldri á lágmarks- launum með eitt barn tæpar 26 þús- und krónur á einu ári, en kosti það vegna minnkaðra niðurgreiðslna um 2 þúsund krónur. Sji ennfremur umsagnir um samn- inginn á bls. 2 og á mióopnu, samn- inginn og fylgiskjöl á bls. 31 og fréttir á baksíðu. Samningar ASÍ og VSÍ voru undirritaðir í hádeginu í gær. Myndin er frá undirrituninni. Fremri röð frá vinstri: Björn Þórhallsson, varaforseti ASÍ, Ásmundur Stefánsson, forseti ASf, Páll Sigurjónsson, formaður VSf og Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSÍ. Aftari röð frá vinstri: Ragna Bergmann, formaður verkakvennafélagsins Framsóknar, Hjalti Einarsson, varaformaður VSf, Davíð Sch. Thorsteinsson og Kristján Ragnarsson, framkvæmda- stjórnarmenn VSÍ. Ljósmjlld: Kristján Magnússnn. Galtieri var handtekinn Galtieri Buenos Aires, 21. febrúar. AP. LEOPOLDO Galtieri, hershöfðingi og forseti Argentínu meðan á Falklands- eyjastríðinu við Breta stóð, var hand- tekinn í nótt að tilskipan nefndar sem rannsakað hefur vinnubrögð hátt- settra yfírmanna hersins í umræddum ófriði. Galtieri er sakaður um að hafa sýnt vítavert kæruleysi ( starfi, svo mjög að það leiddi til dauða fjöl- margra ungra Argentínumanna í stríð- inu. Galtieri var yfirheyrður af nefndinni fyrr um daginn og stóð yfirheyrslan yfir í 8 klukkustundir. Að henni lokinni var handtökuskip- an gefin út á hendur honum. Ekki er vitað hvar hann er í haldi. Kínverjar selja írönum vopn fyrir milljarða Lundúnum, 21. febrúar. AP. BRESKA BLAÐIÐ Daily Mail greindi frá því í dag, að Kínverjar hefðu hætt stuðningi sínum við fraka í Persaflóastríðinu og undirritað vopna- sölusamning við frani. Nær hann til tveggja ára og munu Kínverjar selja vopn að andvirði 1,45 milljarða dollara. Blaðið hefur eftir ónafngreindum vestrænum embættismönnum og sérfræðingum, að íranir geti nú að öllum líkindum greitt frökum lokarothöggið og að það hafi verið kín- verski leiðtoginn sjálfur, Deng Xhiao Ping, sem lagði blessun sína yfir samkomulagið. Blaðið segir að fyrstu vopna- skotfæra fyrir eldflaugapalla Ir- sendingarnar komi til íran i ana. í kjölfarið fá Iranir svo næsta mánuði, mikið magn skriðdreka, herþotur og margt fleira. Hefur blaðið og eftir vest- rænum leyniþjónustumönnum, að Sýrlendingar hefðu haft milligöngu um samkomulagið og hefðu Kinverjar lagt mikið kapp á að hafa það þannig. Fundir hafi byrjað síðastliðið haust og náð hámarki með fundi Abdul Raouf A1 Kassam, forsætisráð- herra Sýrlands, og Lin Zhionan, sendiherra Kína í Sýrlandi. Viku síðar var svo gengið frá eftir- liggjandi smáatriðum á fundum í Teheran. Daily Mail hefur eftir fyrr- eindum leyniþjónustumönnum, að Kinverjar hafi ekki getað söðlað um bandamann kinnroða- laus, en þeir hafi þó gert það á þeim forsendum, að með því að hlaða undir uppreisnaröfl isl- ömsku byltingarinnar í íran, væri Sovétmönnum haldið niðri á þessum slóðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.