Morgunblaðið - 29.02.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.02.1984, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 49. tbl. 71. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Treholt játar en ástæður óljósar Osló, 28. Tebrúar. AP. AKNE Treholt hefur viðurkennt að hafa margoft afhent sovézku levniþjónustunni, KGB, leyni- skýrslur frá því 1973—74, en til- gangur hans með þessu framferði er enn á huldu, að sögn Magnar Flornes, ríkissaksóknara. Flornes sagði að ekki hefði reynst mögulegt að ganga úr skugga um hvort Treholt ætti dóttur í Tékkóslóvakíu. Treholt hefði framan af yfirheyrslum, sem færu fram nær daglega, neitað því að eiga dóttur í Tékkóslóvakíu, en síðan breytt framburði sínum á föstudag. Norsk blöð hafa velt yfir því vöngum hvort KGB hafi kúgað Treholt til njósna með því að hóta að lífláta dótturina eða vinna henni líkamstjón. Flornes sagði að 31 vitni hefði verið yfirheyrt vegna Treholts- málsins. Rannsóknin miðaðist við tímabilið frá 1973/74 eða þann tíma sem Treholt hafði að- gang að leyniskýrslum, og yfir- heyrslurnar við þann tíma sem hann starfaði á vegum sendi- nefndar Noregs hjá S.þ. í New York. Hefði Treholt viðurkennt að hafa látið KGB-mönnum í New York í té ýmsar skýrslur, en héldi því hins vegar fram að þær hafi ekki verið mikilvægar. írakar segjast hafa fellt 30.000 hermenn Nikósíu, 28. fobrúar. AP. ÍRAKAR halda því fram að herir þeirra hafi unnið einhverja grimm- ustu orrustu, sem háð hefur verið í stríðinu við Irani til þessa. Þeir segj- ast hafa gereytt fjórum írönskum fótgönguliðsherfylkjum og fellt rúm- lega 30 þúsund hermenn. Jafnframt hafi hersveitir, sem sóttu inn í írak við Basra, verið hraktar til baka. Iranska fréttastofan IRNA sagði hins vegar í morgun að her lands- ins hefði tekist að hrinda tvennum gagnsóknum íraka á suðurvíg- stöðvunum í nótt eftir harða bar- daga og mikið mannfall. íranir hafa ekkert látið frá sér fara um fullyrðingar Iraka síðdegis, en frá- sagnir stríðsaðila hafa stangast á og erfitt er að henda reiður á sannleiksgildi þeirra, þar sem átakasvæðin eru nánast lokuð fréttamönnum. Hins vegar vísuðu Iranir á bug fullyrðingum íraka um loftárásir hinna síðarnefndu á olíuflutn- ingaskip við Kharg-eyju, aðalol- íuútflutningsmiðstöð írana. Skipa- miðlarar í Kuwait, sem hafa góðar upplýsingar um skipaferðir á Persaflóa, segja engu að síður að árásin hafi verið gerð og að hæfður hefði verið fjöldi tankskipa, þ.á m. eitt breskt. Heimildir í Pentagon, varnarmálaráðuneytinu í Wash- ington, herma hins vegar að ekkert tjón hafi hlotist í árásunum. íranir ítrekuðu í dag að þeir væru staðráðnir í að viðhalda hafnbanni á Kharg-eyju og reiðu- búnir til að ráðast á sérhvert tankskip. sem reyndi að leggjast þar að. íranir hafa hótað að loka Hormuz-sundi ef írakar stöðva út- flutning frá eynni, en Bandaríkja- menn segjast munu koma í veg fyrir lokun sundsins. í gær stugg- aði bandaríski tundurspillirinn „Lawrence" við íranskri eftirlits- flugvél er hún nálgaðist bandarísk herskip á Persaflóa, með því að skjóta að henni viðvörunarblossum og aðvörunarskotum. Gull hækkaði í verði en dollar lækkaði vegna fregna af átökunum í Persaflóastríðinu. AP-símamynd. íranir sendu þessa mynd frá sér í gær og segja hana tekna langt inn í Írak í „aðgerðinni Kheybar“, sem hófst sl. miðvikudag. Segjast íranir hafa lagt undir sig stórar lendur íraka á suðausturhluta víglínunnar í aðgerðinni. Viðræður ákveðnar við Grænlendinga Stokkhólmi, 28. fobrúar. Frá Magnú.si Sigurðssyni blm. Morgunblaðsins. V. ^ „ÉG BAUÐ Jonathan Motzfelt í heimsókn til íslands í júní og það boð hefur hann þegið. Það fara fram viðræður um samvinnu íslendinga og Grænlendinga í framtíðinni, ekki eingöngu á sviði fiskverndar og fiskveiða, þótt það skipti mestu máli, heldur einnig á öðrum sviðum.“ Uannig komst Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra að orði í viðtali, er hann skýrði frá fundi með Jonathan Motzfeldt, formanni grænlensku landstjórnarinnar, í Stokkhólmi í dag. „Ég gerði Motzfeldt grein fyrir þeim áhyggjum, sem við íslendingar hefðum af hinum miklu veiðiheimildum, sem Grænlendingar hefðu samið um við Efnahagsbandalag Evrópu," sagði Steingrímur Hermanns- Óvenjulegur árekstur varð á Haneda-flugvellin- um í Tókýó í gær er Boeing 747-þota frá Japan Air Lines, sem var í akstri að landgöngurana, ók á YS-ll-skrúfuþotu Towa Domestic Airlines. Vegna stærðarmunar flugvélanna rak júmbó- AP/Símamynd. þotan trjónuna í skrúfuþotuna ofanverða. Verið var að setja eldsneyti á skrúfuþotuna, en engan sakaði. Óverulegar skemmdir urðu á Boeing- þotunni, en stjórnklefi og trjóna skrúfuþotunn- ar laskaðist hins vegar verulega. son. Kvaðst hann hafa lagt til að teknar yrðu upp sérstakar viðræður, sem forsætisráðherra íslands, formaður grænlensku landstjórnarinnar og lögmaður Færeyja tækju þátt í, og yrðu þar rædd sameinginleg hags- munamál, einkum með tilliti til fiskveiða í Norður-Atlantshafi. Hefði hann einnig rætt þessa tillögu við Pauli Ellefssen, lögmann Færeyja, sem tekið hefði henni vel. „Það er ákveðið, að ég bjóði til slíks fundar svo fljótt sem auðið er, en dagsetn- ing hefur ekki verið ákveðin," sagði forsætisráðherra. Hefði hann jafnframt í hyggju að bjóða Norðmönnum þátttöku í þessum viðræðum. Sagði forsætisráðherra að Pétur Thorsteinsson sendiherra færi til Grænlands í mars. Síð- an kæmu grænlenskir emb- ættismenn til íslands í maí. Sagði forsætisráðherra að fund- ur þeirra Motzfeldts hefði verið jákvæður og Grænlendingar hefðu sýnt því mikinn skilning og áhuga að taka upp nánara samstarf við íslendinga. Jonathan Motzfeldt kvaðst ánægður með fundinn, „við höf- um unnið þarft verk í dag“, sagði hann og kvaðst vænta mikils af nánari samvinnu við íslendinga. Þota útaf flugbraut á Kennedyflugvelli m_v_.L r_i__i ii ™ New York, 28. fobrúar. AP. FARÞEGAÞOTU af gerðinni DC- 10 frá SAS-flugfélaginu hlekktist á í lendingu á Kennedy-dugvellinum í kvöld og hafnaði utan flugbrautar í sjó. Um borð voru 163, farþegar og áhöfn, en engan sakaði. Talið er að þotan hafi komið of hátt inn til lendingar, með þeim afleiðingum að henni nægði ekki flugbrautarlengdin til að stað- næmast. Staðnæmdist hún loks með nefhjólið í vatni í vík undan Rockaway Boulevard. Eftir að þotan nam staðar voru neyðarútgangar opnaðir og tókst öllum, sem um borð voru, að komast hjálparlaust upp á flugbrautina, en þaðan var fólkið flutt í flugstöðvarbygginguna. Atvikið átti sér stað klukkan 4:15 að staðartíma, eða klukkan 21:15 að íslenzkum tíma. Þotan var að koma úr áætlunarflugi frá Ósló og Stokkhólmi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.