Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1984 t Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, DAGGRÓS STEFÁNSDÓTTIR, Dvergabakka 8, lést í Landspítalanum þann 1. maí. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Halldór Helgason. t Konan mín, BORGHILDUR STRANGE, Baröavogi 38, lést í Landspítalanum 1. maí. Fyrir hönd ættingja, Eiríkur Jónasson. ' Eiginmaöur minn, FINNBOGI MAGNÚSSON, skipstjóri, Uröargötu 23, Patreksfirði, er látinn. Dómhildur Eiríksdóttir. Jaröarför SIGURVINS GUOMUNDSSONAR, Strandgötu 19, Hafnarfiröi, fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi föstudaginn 4. mai kl. 14.00. Jensína Egilsdóttir. t Útför systur minnar, HALLDÓRU HALLDÓRSDÓTTUR, Bárugötu 21, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 4. maí kl. 10.30. Elín Halldórsdóttir. t Eiginmaöur minn, RÓSMUNDUR SIGFÚSSON, Rauöalæk 40, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. maí kl. 13.30. Friöbjörg Ebeneaersdóttir. t Faöir okkar, GUÐLAUGUR GUNNAR JÓNSSON, fyrrv. pakkhúsmaöur, Vík í Mýrdal, veröur jarösunginn frá Víkurkirkju laugardaginn 5. maí kl. 2 e.h. Ferð frá BSÍ kl. 9 og frá Fossnesti á Selfossi kl. 10. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins. Börn hins látna. t Bróöir minn, HELGI HARALDSSON, fyrrum bóndi á Hrafnkelsstööum, Hrunamannahreppi, veröur jarösunginn frá Hrunakirkju föstudaginn 4. maí kl. 3 e.h. Bílferö veröur frá Umferöarmiöstöðinni kl. 12.00 og frá Fossnesti kl. 13.00. Sigríöur Haraldsdóttir. t Viö þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, KARÓLÍNU SIGFRÍDAR STEFÁNSDÓTTUR, Njálsgötu 6, Reykjavík. Konráö Ó. Sævaldsson, Alice Sævaldsson, Stefán Stefánsson, Björg Bogadóttir, barnabörn, tengdabörn og barnabarnabörn. Guðmundur Jóhannes- son frá Vík — Kveðja Fæddur 8. aprfl 1917 Dáinn 24. marz 1984 Örlögin gripu í taumana á þann veg að ég komst ekki til að standa við hinsta beð vinar míns, Guð- mundar Jóhannessonar, eins og hann hafði sjálfur óskað eftir og ég hefði gjarnan viljað. Stundum fáum við dauðlegir menn ekki ráð- ið eigin för. Dómarinn æðsti kall- ar: „Eitt sinn skal hver deyja." Og mennirnir setja sig oft í dómara- sæti og segja: „Vertu þar sem ég vil.“ Þannig skapast oft vík milli vina. En góðu heilli fær enginn komið í veg fyrir hugartengsl og minningarnar fær enginn frá okkur tekið. Þar sem ég sit og set þessar lín- ur á blað, finnst mér sem Guð- mundur vinur minn sé kominn til mín, hress og skrafhreifinn að vanda, og við tökum spjall saman rétt eins og forðum. Gott er að rækja og rifja upp gömul og góð kynni. Eins og góðum vinum sæm- ir eru við hreinskilnir og segjum hvor öðrum til syndanna. Og þá rifjast fljótt upp að ég sagði eitt sinn við hann, að hann væri hundheiðinn. Ég sá að það kom við hans stóra hjarta, en hann lét sér ekki bregða og svaraði með hægð, að það færi nú kannski eftir því, hvernig á það væri litið. Og sem við fórum nánar út í þessa sálma, komst ég að raun um að hann átti innra með sér djúpa tilfinningu, sem hann taldi skynseminni æðri, að minnsta kosti í sumum tilfell- um — tilfinningu hjartans um gæsku og drenglyndi. Og hann gerði sér ljóst að þekk- ingin ein, köld og vísindaleg eins og sú, sem fann og skýrði orku atómsins, sem margir telja nú ógna tilveru jarðlífs, gæti orðið hinn mesti voði mannkyni öllu, ef tilfinning hjartans, manngöfgi og virðing fyrir tilverurétti þjóða og einstaklinga, fengi ekki að ráða ferð. Vélræn, vísindaleg hugsun, sem ekki gætir þess að varðveita þessa tilfinningu hjartans, upp- sprettu kærleikans, stefnir til glötunar lífsins. En takist elsku hjartans og víðsýni hugsunar að vinna saman þá skapast líf. Þetta gerði Guðmundur sér vel ljóst. Og ég fann að í hjarta hans bærðist fleira. Það átti líka trú, þá tilfinningu, sem bendir hærra, skapar þrá eftir hinu eilífa, heil- aga, fagra og góða. Þar á ég ekki við trúarlærdóma, játningar, for- dóma og skoðanir, sem oft byrgja fyrir útsýni og myrkva leiðir svo að enginn ratar réttan veg. Það var skoðun hans að lítt stoðaði að kunna hin fegurstu trúarljóð, geta þulið langar bænir, skýrt út í ystu æsar alla stafkróka biblíunnar, án þess að hrífast af allri dýpt og sannleika þessara efna. Hann vissi líka að lítt stoðaði í leitinni að hamingju — leitinni að sjálfum Guði — gæti jafnvel leitt til hins verra, jafnvel andlegrar gjöreyð- ingar, sem lokaði leið til lífsins. Þar gat hann bent á dæmi frá trú- arstyrjöldum og grimmdarlegum hryðjuverkum meðal einstaklinga jafnt sem heilla þjóða. Það er hjartað, í þessum skilningi, sem skapar hvort heldur valmenni eða varmenni. Þar hafði hann hjartað svo sannarlega á réttum stað. Nú ætla ég ekki að fara að gera minn kæra vin betri en hann var. Það veit ég að hann mundi seint fyrirgefa mér. Ekki ætla ég heldur að fara að rekja í smáatriðum lífsferil hans, ætt eða uppruna, enda verða vafalaust aðrir til þess. Ég vil samt ekki láta þess ógetið að Guðmundur var Austfirðingur í húð og hár, fæddur að Skjögra- stöðum í Vallahreppi í Suður- Múlasýslu hinn 8. apríl 1917. Á þeim slóðum liðu hans æsku- og uppvaxtarár við leik og störf í sveit og síðar við bifreiðaakstur fram undir þrítugsaldur. Austur þar kynntist hann einum glæsileg- asta og eftirsóttasta kvenkosti á Héraði í þann tíð, Sigríði Þormar frá Geitagerði. Þau felldu hugi saman, bundust tryggðaböndum, lifðu saman súrt og sætt, eignuð- ust fimm mannvænleg börn, fjóra syni og eina dóttur. Þau urðu fyrir þeim þunga harmi, að stúlkan þeirra veiktist mjög ung af hræði- legum sjúkdómi, sem leiddi til þess að upp frá því varð hún ósjálfbjarga, andlega og líkam- lega. Við hin, sem börn eigum, get- um gert okkur í hugarlund, hve sorg þeirra hefur verið stór öll nítján árin, sem hún lifði, þar til hún fékk hvíld. Þannig skiptust á skin og skúrir í lífi þeirra hjóna, því drengirnir þeirra allir hafa erft frá þeim glæsimennsku og hjartahlýju í ríkum mæli. Árið 1945 fluttu þau hjónin til Víkur í Mýrdal, þar sem Guð- mundur gerðist fljótlega starfs- maður loranstöðvarinnar á Reyn- isfjalli allt til ársins 1977 að sú starfsemi var lögð niður. Árið eft- ir fluttu þau svo til Reykjavíkur, þar sem hann fékk starf hjá Sam- vinnutryggingum. Eftir að Guðmundur kom til Víkur var hann lengst af mjög virkur í félagsmalum Mýrdælinga. Aðeins vil ég geta þess þáttar, sem ég kynntist best, þ.e. starfa hans í sveitarstjórn Hvammshrepps. Þar átti hann sæti í 12 ár, var ein- staklega jákvæður í öllum málum, sem til heilla og framfara horfðu fyrir byggðarlagið og hefði margt þar, um menn og málefni, farið á annan og betri veg, ef hans hefði lengur notið við. Sæti hans í sýslu- nefnd síðustu árin hans á Vík var skipað með reisn og sóma. Mér er ljúft að minnast, hversu t Bróöir okkar, GUÐMUNDUR ADALSTEINN GUÐJÓNSSON, Syöri-K víhólma, V-Eyjafjöllum. veröur jarösunginn frá Asólfsskálakirkju laugardaginn 5. mai kl. 2 e.h. Blóm afbeðin, en þeir sem vilja minnast hans láti líknarstofn- anir njóta þess. Fyrir hönd ættingja og vina, Systkinin. Jarðarför t HALLDÓRS GUNNLAUGSSONAR, cand. teol. og fv. hreppsstjóra, Kiöjabergi, sem andaölst 24. apríl sl. ter fram frá Stóruborgarkirkju laugar- daginn 5. maí kl. 14.00. Bílferöir veröa frá Umferöarmiöstööinni í Rpykjavík kl. 12.00 og Árnesti, Selfossi, kl. 13.00 sama dag. Systkínabörnin. snjall fundarmaður Guðmundur var, mælskur, hnyttinn og djarfur í málflutningi og glæsibragur yfir framsetningu. Þar fékk enginn feykt honum langt. Lítilmagninn átti svo sannarlega styrka stoð, þar sem hann var og einstakri greiðasemi hans og hjálpsemi var við brugðið. Hann vildi hvers manns vanda leysa í hvívetna eftir bestu getu. Allur hroki og valdníðsla var eitur í hans beinum. Sjaldan sá ég hann sárari en þegar beita átti óþroskaða unglinga þvingunum á hinn furðulegasta hátt í krafti embættisvalds og hroka. En hann gerði sér ljóst að seint muni hægt að koma í veg fyrir slíkt, þegar misvitrir menn eiga í hlut. Grun hefi ég um, að hér hefði Guðmundur vinur minn viljað að ég léti staðar numið. Það skal líka gert en samt vil ég að ekki gleym- ist að geta þess, að hann átti hug og hjörtu þeirra barna, unglinga oggamalmenna, sem fengu kynnst honum náið. Það segir sína sögu því slík tengsl skapast ekki nema frá hlýju hjarta sem undir slær. Persónulega fékk ég og fjölskylda mín kynnst þessum eiginleikum hans, sem við nú þökkum af alhug. Nú er sem ég heyri vin minn segja að oflof kæri hann sig ekki um. Aðeins vil ég þó bæta við í lokin. Stundum syrti í álinn í lífi hans en þá átti hann til þor og þrautseigju sem dugði gegn öllum áföllum. Hann vissi líka af öðrum dómara og að miskunn hans er himinhá, hvað sem öllum mann- anna dómum eða fordómum líður. Án þess að sú tilfinning sé með í leiknum eða starfinu verður mannsandinn ekki þjálfaður til vaxtar og fullkomnunar á neinu sviði. Og sumir eignast þá dýr- mætu reynslu, að jafnvel hið mesta mótlæti, sorgir, sjúkdómar og neyð geta veitt tilfinningariku hjarta meiri lífsskilning en unað- ur, meðlæti og allsnægtir veita þeim, sem ekki á innra með sér þær eigindir sem leiða að þeirri lind, sem nefnd hefur verið kraft- ur Guðs í hörðum heimi. Ég vil því í lokin leyfa mér að fullyrða og veit að Guðmundur vinur minn er þar sammála, að skortur á þroskaðri trúartilfinn- ingu sé ein helsta orsök þess gæfu- leysis, sem virðist þjá svo marga á vegum allsnægta og skapa þar óánægju og ama. „Vor hulda greind var oss til skilnings sköpuð því skerðir trúlaust líf vorn sálarfarnað." segir skáldsjjekingurinn Einar Benediktsson. Þessi tilfinning gerir götuna greiða fyrir traust og vináttu, sem nær út yfir gröf og dauða í anda og krafti orðanna: „Elskið hver annan," án fordóma og heimsku. Þakklæti býr mér efst í huga nú að Guðmundi Jóhannessyni gengnum — þakklæti fyrir vinátt- una traustu gegnum árin og bæn til Guðs um heilagan frið, náð og miskunn honum til handa á nýjum leiðum. Eftirlifandi eiginkonu hans, Sigríði, og sonunum fjórum send- um við hjónin okkar innilegustu samúðarkveðjur með ósk um blessun Guðs. Ingimar Ingimarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.