Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 40
40
ti»príAM r íJTiriiOTiTWKrT'a avi* fwrinqnM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1984
Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim sem glöddu mig
með gjöfum, skeytum og heimsóknum á 85 ára afmæli
mínu, þann H. apríl sL
Sérstakar þakkirfæri égfélögum mínum í St. Einingin
nr. U. *
Guð blessi ykkur öll.
Jóna Sigríður Jónsdóttir.
Lefcur-,
na'mskeid
G imnUuiQwrSt frrienv ktnmr íimr
vikur, mimddQÍnn y.tmíiU jvstHdnQSÍm
íhjándci/jrtí léukkan dtt tH kttn.
Verklegar <zfingarjmjyrstii byijenda-
V&ndnzfam tii ywfanQsejna pvtvinnumcinnci.
JSZp'tkun i brtitípenna/titnríwnnun/ypkar-
smíí/apphk$pbiQ.
"TuttHQii'fyrirkstmrum ktwr-
notkun oqsoqu stafivfiins.
ínnntun OQfynrspnmW'skrífitofitMynit-
listH'pQ hanAéasjéla ísiands/Skipfwlti 1/
smi ia8zi/ —jm þrju tiíjimm tMdqfi.
vagnar
til að létta störf in
Bakkavagn nr.41 m. pokagrind
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
"\lSTEINARS HF.
SKEIFUNNI 6.SIMAR: 33590,35110, 39555
Tæknilegar upplysingar
Steinsteypa er blanda af sandi, möl, sementi, vatni og íblöndunarefnum, er hafa bætandi
áhrif á steypuna. Steinsteypa er flokkuð niður í brotþolsflokka eftir styrkleika. Algengustu
brotþolsflokkar eru í röð eftir vaxandi styrkleika S-120, S-160, S-200, S-250 og S-350, en
þessi flokkun táknar 28 daga brotþol 15 x 30 cm sívalninga, sem steyptir eru úr viðkomandi
steypublöndu. f venjuleg hús er S-200 algengast.
Þykkleiki steinsteypu er mældur eftir því hversu marga cm sérstök keila úr blautri steypu
sígur þegar mótið er fjarlægt. Því hærra sem sigmálið er, því þynnri er steypan. Venjuleg
tregfljótandi steypa er með sigmáli 5-10 cm , þunnfljótandi með meira en 20 cm sigmáli.
Steypan verður því þynnri sem meira vatni er þætt ( hana. Of mikið vatn í steypu hefur
skaðleg áhrif. Aldrei skyldi setja meira vatn f steypu, en minnst verður komist af með.
I steinsteypu er blandað ýmsum efnum til að breyta eiginleikum hennar. Loftblendi- og
þjálniefnið H-Loft frá Woermann er sett í alla steypu frá Steypustöðinni hf til að auka
veðrunarþol steinsteypunnar, draga úr vatnsþörf og auðvelda niðurlögn hennar.
Flotefni eru sett í steypuna, þar sem steypan þarf að vera fljótandi, léttfljótandi eða
þunnfljótandi við niðurlögn, eða þar sem þarf að fá slétta áferð á steypufleti, án þess að
þau veiki hana, eins og verður við þynningu með vatni.
Eftir ítarlegar samanburðarrannsóknir á hinum ýmsu efnum mælir Steypustöðin hf með
flotefninu Flot 78.
Steinsteypan er burðarás mannvirkisins. Gæta verður vel við niðurlögn steinsteypu að
ekki myndist göt í veggi eða að steypa skilji sig og myndi malarhreiður. Vandið til allrar
meðferðar steinsteypu.
Alkalískemmdir
I þeim mannvirkjum á Reykjavíkursvæðinu, sem notuð hefur verið möl og sandur úr
Hvalfirði hefur borið á skemmdum f steinsteypu, vegna efnabreytinga er eiga sér stað milli
sementsins, saltsins og steinefnanna.
Kísilsýra í steinefnunum myndar með alkalíum sementsinsog saltsins kísilsýruhlaupsem
sprengir steypuna. Til að koma í veg fyrir slíkar skemmdir hefur kísilryki verið bætt út í
sementið, og notkun óvirkra steinefna verulega aukin í samræmi við niðurstöður rannsókna
er Steinsteypunefnd hefur látið gera. Steypustöðin hf hefur ávallt notað og haft á
boðstólum óvirk steinefni.
Steinsteypukaup
Sú hugmynd að dreifa steinsteypu með bifreiðum frá blöndunarmiðstöð þróaðist í
Bandaríkjunum og fyrst slíkra stöðva (Evrópu.Steypustöðin hf varreistá Islandiárið1947.
Steypustöðin hf býður húsbyggjendum þjónustu sina. Við reynum að fullnægja óskum
viðskiftavinaokkareftir bestu getu. Skrifstofa okkar er við mynni Elliðaánna að Sævarhöfða
4. Sími okkar er 33600. Hafið samband við einhvern eftirtaldra aðila: Jón Ólafsson
skrifstofustjóra, Svein Valfells verkfræðing, Halldór Jónsson verkfræðing.
Steinsteypupantanir
Verkstjóri okkar, sem tekur við steinsteypupöntunum, heitir Ottó Gíslason, s. 36470 eða
33600. Steypu þarf helst að panta með nokkrum fyrirvara þar eð hana þarf að framleiða
um leið og hún er afhent.
Steypustöðin hf tekur að sér að sjá um pöntun á steypudælu eða krana, ef annars er
ekki óskað.
SÆVARHOFÐA 4, PÓSTHÓLF 245, Í05 REYKJAVÍK, SlMAR: 33600 - 34845 - 36470