Morgunblaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984 5 Tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar og Pólýfónkórsins: Fjórir ítalskir einsöngvarar koma hingað vegna tónleikanna SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands heldur kórtónleika í Háskólabíói rimmtudaginn 10. maí. Á tónleikunum, sem eru aukatónleikar, verða flytjendur með hljómsveitinni Pólýfónkórinn, auk kórs sem sérstaklega hefur verið kallaður til vegna tónleikanna og er skipaður gömlum kórfé- lögum Pólýfónkórsins og ýmsu söngfólki öðru. I'á koma gagngert hingað til lands vegna tónleikanna fjórir ítalskir einsöngvarar, Denia Mazzola, sópran, sem söng titilhlutverkið í Lucia di Lammemoor hér í mars sl„ Claudia Clarich, alt, Paolo Barbacini, tenór, sem m.a. hefur sungið á þeim fræga stað La Scala, og Carlo de Bortoli, bassi. Stjórnandi á tónleikunum kór auk Pólýfónkórsins fyrir verður stofnandi og stjórnandi Pólýfónkórsins, Ingólfur Guð- brandsson, og er þetta í fyrsta sinn sem hann stjórnar Sinfón- íuhljómsveitinni. Á efnisskránni er „Ave verurn" eftir W.A. Moz- art, „Te deum“ eftir G. Verdi og „Stabat Mater“ eftir G. Rossini. Verk Verdis, Te deum, hefur ekki verið flutt hérlendis áður. Að sögn Ingólfs Guðbrandssonar þarf tvo kóra til að flytja það og því var ákveðið að kalla saman flutningin. Verkið er samið fyrir stóra hljómsveit og má áætla að um 220 manns verði á sviðinu í Háskólabíói á meðan flutningur- inn stendur yfir, 140 kórsöngvar- ar og 70 manna hljómsveit, auk einsöngvaranna og stjórnanda. Hin verkin tvö hafa áður verið flutt hér, Stabat Mater árið 1951, en Ave verum er nú flutt í fyrsta sinn með hljómsveit. Ein- söngvararnir fjórir koma allir frá Milanó, utan Carlo de Bort- oli, sem kemur frá Torino. „Þessi músík er frá rómantíska tíma- bilinu og flutningur hennar því nýr fyrir meðlimi Pólýfónkórs- ins, sem þekktastur er fyrir að fást við flutning barrokktón- listar,“ sagði Ingólfur Guð- brandsson á blm.fundi sem hald- inn var vegna tónleikanna. „í raun og veru er þarna um að ræða hreina óperutónlist, þrátt fyrir guðleg viðfangsefni verk- anna og þessi tónlist krefst sér- staks söngstíls. Því er við hæfi að kalla til ítalska einsöngvara." Kristján Jóhannsson hafði milli- göngu um komu ítölsku ein- söngvaranna hingað til lands, en í ráði var að Kristján myndi syngja tenórinn á tónleikunum. Það reyndist ekki mögulegt vegna samnings hans í Bret- landi. Þrír af aðstandendum tónleikanna. F.v. Sigurður Björnsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar, Ingólfur Guðbrandsson, stjórnandi Pólýfónkórsins, sem nú stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni í fyrsta sinn og Friðrik Eiríksson, formaður Pólýfónkórsins. Ljósm. Mbi. Priðþjófur. Gallerí Vesturgata 17: Verk Jóhannesar Jóhannessonar í GALLERÍ Vesturgötu 17 opnar í dag sýning á verkum listamannsins Jóhannesar Jóhannessonar. Á sýn- ingunni, sem stendur til 27. maí, eru 20 verk, sem eru öll til sölu, utan tveggja í einkaeign. Sýning Jóhannesar í Gallerí Vesturgötu 17 er 14. sérsýning hans, en Jóhannes sýndi verk sín í fyrsta sinn árið 1946 í Lista- mannaskálanum. Þá hafa verk eftir hann verið sýnd á samsýn- ingum í um 13 löndum og gripi úr silfri og gulli hefur Jóhannes átt á sýningum i Þýskalandi, Frakk- landi og hér heima. Verk eftir Jó- hannes eru í eigu listasafna innan lands sem utan. Jóhannes Jóhannesson var fæddur í Reykjavík 1921 og lauk hann sveinsprófi í gull-og silf- ursmíði 1945. Framhaldsnám stundaði hann síðan fram til árs- ins 1961, í Bandaríkjunum, á ít- alíu, í Frakklandi, Rúmeníu, Danmörku og Kína. Seldi í Cuxhaven ARINBJÖRN RE seldi afla sinn, valda erfiðleikum við geymslu, 202 lestir, mest karfa, í Cuxhaven hafa lækkað markaðsverð að und- í gær. Heildarverð var 2.973.900 anförnu. Fyrirhugað er að eitt krónur, meðalverð 14,7*. Mikið skip selji afla sinn í Þýzkalandi i framboð á fiski og hitar, sem næstu viku. REGATA LOKSINS TH AFGREHDSLU Á bílasýníngunni AUTO ’84 í síöasta mánuöi kynntum viö REGATA, nýjasta gœöinginn í FIAT FJÖLSKYLDUNNI. REGATA vakti mikla athygli á sýningunni og nú vorum viö aö fá fyrstu sendinguna til landsins. REGATA er íramhjóladriíinn og búinn öllum aksturseiginleikum FTAT gœðinganna, léttur í stýri, rásíastur, liggur vel og er sérlega viðbragðsíljótur. REGATA er rúmgóður og íarangursrými er ótrúlega mikið. Sparneytnin er þó líklega stœrsti kosturinn viö þennan glœsilega bíl, hann eyðir allt niöur í 5.4 lítra á hundraöiö, sem er hreint ótrúlegt íyrir bíl í þessum stœröarílokki. KYNNINGARVERÐ - OG KJOR Á þessari íyrstu sendingu bjóöum viö sérstakt kynningarverð og reynum aö haía hátíðaryíirbragö á kjömnum. Útbomn í REGATA getur veriö allt oían í 100.000,- krónur og veröiö er hreint ótrúlegt íyrir rúmgóöan, framhjóladriíinn glœsivagn. Sex ára ryövarnarábyrgö kr. 329.000.- (gengi 2/5 '84) WEGILL r VILHJÁLMSSON HF.i Smidjuvegi 4, Kópavogi. Simar 77200 - 77202.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.