Morgunblaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 05.05.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984 47 Tennis — Tennis Höfum opnað þrjá tennisvelli úti. Tíma- pantanir í síma 82266. Allir í tennis í góða veðrinu. Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1. Skipta þarf alveg um innstu hlaupabrautina — enn þarf að gera við tartan-brautina í Laugardal Ól-eldurinn til New York „ÞAÐ er alveg Ijóst og reynd- ar búið að ákveða að taka al- veg upp innsta hringinn á tartan-hlaupabrautinni á frjálsíþróttavellinum í Laug- ardal. Brautin er illa farin og mikið skemmd,“ sagði Baldur Jónsson vallarstjóri í spjalli við Mbl. „Þaö verður töluvert verk aö skipta um innstu brautina og jafn- framt verður aö gera viö hana á fleiri stööum. En þessu lýkur von- andi áöur en stærstu frjálsíþrótta- mót sumarsins verða,“ sagöi Bald- ur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem gera veröur viö tartan-hlaupa- brautina. Svo til á hverju vori hafa komið í Ijós á henni skemmdir og hingað hafa komið sænskir sér- fræöingar til að gera viö hana í tvígang. Aö sögn Baldurs þá mun sænska fyrirtækið sem brautin var keypt frá leggja til allt tartaniö sem þarf í viögeröina borginni aö kostnaöarlausu. Hinsvegar þarf Reykjavíkurborg aö greiöa vinnu- laun viö viögeröina sjálfa. — ÞR. • Baldur Jónsson, vallarstjóri { Laugardal, athugar skemmdir á tartan-hlaupabrautinni á frjáls- íþróttavellinum. fornu Olympiu þrátt fyrir ágreining i Grikklandi þar aö lútandi. Grikkir höfóu jafnvel i huga aö neita aö láta tendra hann í Ólympíu vegna þess aö Banda- rikjamenn söfnuóu áheitum vegna hlaupsins með eldinn i landinu. Þeir hafa safnað 10 milljónum dollara. • íslandsmeistarar í minnibolta í körfuknattleik, lið Ungmennafélags Njarðvíkur. Aftari röð frá vinstri: Haukur Ragnarsson, Friörik Rúnars- son, Ævar Jónsson, Kristín Björnsdóttir, Magnús Þórðarson, Daníel Sveinsson, Gísli Einarsson, Sveinbjörn Gíslason, Jóhann Halldórsson. Fremri röð frá vinstri: Valdís Þorsteinsdóttir, Vilbert Gústafsson, Jón J. Árnason, Guðbjörn Sigurjónsson, Stefán Örlygsson og Magnús Ragn- arsson. FORRÁDAMENN grísku Ólympíu- nefndarinnar hafa hætt viö aö reyna að senda ólympíueldinn til Bandaríkjanna gegnum raf- magnslínur eins og ráðgert var — og veröur hann fluttur í flugvél. Eldurinn veröur tendraöur i hinni • íþróttabandalag Keflavíkur sigraði í fslandsmóti 2. flokks kvenna í körfuknattleik. Hér eru sigurvegararnir, aftari röð frá vinstri: Hlín Hólm, Margrét Sturlaugsdóttir, Björg Færseth, Guörún Einarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Fjóla Þorkelsdóttir, Björg Hafsteinsdóttir, Kristín Sig- uröardóttir, Guðlaug Sveinsdóttir og Gunnhildur Hilmarsdóttir. Þjálfari stúlknanna er Jón Kr. Gíslason. • Karlaliö KR varð sem kunnugt er fslandsmeistari í liðakeppni i borðtennis níunda árið f röð í vetur og má telja alíkt frábæran árangur. Unglingalið félagsins náðu einnig frábærum árangri — þau uröu í þremur efstu sætunum í flokkakeppni unglinga. Á myndinni eru þeir einstaklingar sem skipuðu liöin: Kjartan Briem og Valdimar Hannes- son í A-liðinu, og Eyþór Ragnarsson og Magnús Þorstéinsson úr B-lið- inu, Ragnar Árnason og Stefán Garðarsson úr C-liöinu. Reynir Georgsson úr C-liðinu er ekki á myndinni. Rush og Miller bestir Fré Bob Hennessy, fréttamanni Mbl. í Englandi. IAN Rush, markakóngur hjá . Liverpool, var í vikunni kjör- inn knattspyrnumaöur árs- ins í Englandi af íþrótta- fréttariturum. í vetur var hann einnig kjörinn knatt- spyrnumaður ársins af félagi atvinnuknattspyrnumanna. Willie Miller, fyrirliði Aber- deen, var kjörinn leikmaður ársins i Skotlandi i vikunni. Keppt í Bláfjöllum Skíðaráö Reykjavíkur heldur sína árlegu firma- keppni í dag í Bláfjöllum. Keppt verður í göngu og svigi og keppir hvert fyrirtæki annaðhvort í göngu eöa svigi. Dregið veröur um þaö í hvorri greininni hvert fyrirtæki kepp- ir. Keppendur frá félögunum úr Reykjavík keppa fyrir fyrir- tækin og draga keppendur út fyrirtækin sem þeir keppa fyrir. i svigi er útsláttarkeppni, þ.e. tveggja brauta keppni, en slík keppni er mjög skemmti- leg á að horfa. Vegleg verð- laun eru til þeirra fyrirtækja sem hreppa fyrstu sætin. Landsliðið: Alfreð og Bjarni koma ekki á æfingar íslenska landsliðið í hand- knattleik æfir af miklum krafti um þessar mundir. Æft er sex sinnum í viku undir stjórn Bogdans landsliðsþjálfara. Líkur voru á því að þeir þrír landsliðsmenn sem leika í V-Þýskalandi kæmu heim í æfingarnar en aöeins Sigurð- ur Sveinsson mun koma. Þeir Alfreð og Bjarni geta ekki fengið sig lausa frá félögum sínum. __þ.r. Bordeaux meistari BORDEAUX tryggði sér í vik- unni franska meistaratitilinn í knattspyrnu er liöið sigraði Rennes 2:0 á útivelli. Lokaum- ferðin fór þá fram í frönsku 1. deildinni og aö henni lokinni hefur Bordeaux 54 stig — jafn mörg og Monaco, en marka- tala Bordeaux-liðsins er betri. Liðið hefur skorað 72 mörk og fengið á sig 22, Monaco hefur skorað 58 og fengið á sig 29. Karl Þórðarson lék sinn síö- asta leik meö Laval — liöiö tapaði á útivelli, 0:1, gegn St. Etienne. Leikur Pétur hér á landi í sumar? „ÉG HEF ekki mikinn áhuga á að vera áfram hér í Dusseldorf — og ef ég fæ ekki tilboð frá einhverju öðru liði kem ég heim og spila þar í sumar,“ sagöi Pétur Ormslev, knattspyrnumaður hjá Fortuna DUsseldorf í samtali við Mbl. í gær. Pétur meiddist í leiknum við Stuttgart á dögunum eins og Mbl. sagði frá og hefur ekki leikið síöan. „Ég verð ekki með á morgun (í dag) en vonast til að verða orðinn góður fyrir næstu helgi. Þá fengi ég kannski tækifæri til að sýna mig — og reyna að vekja áhuga ann- arra liða.“ Pétur sagði að sín mál ættu aö skýrast á næstu vikum. „Ég vonast til aö þetta veröi komiö á hreint áður en ég fer í frí i byrjun júní.“ Pétur hefur ekki fengið nýtt tilboö frá Dusseldorf, en samningur hans rennur út nú í vor, enda sagðist hann ekki munu taka þeim samn- ingi. Hann vildi komast burt. — SH.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.