Morgunblaðið - 11.05.1984, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.05.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1984 3 ístak hf. byggir annan áfanga flugstöðvarinnar UNDIRRITAÐUR hefur verið samn- ingur milli varnarmáladeildar utanrík- isráðunejtisins og ístaks hf. um að ís- tak taki að sér uppsteypu annars áfanga flugstöðvarbyggingarinnar á Keflavíkurflugvelli. Samningsupphæð er tæpar 211 milljónir króna, sem er rúmum 100 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Skal verkinu lokið 1. október á næsta ári. Að sögn Sverris Hauks Gunn- laugssonar, deildarstjóra varna- deildarinnar, skal uppsteypu lokið 1. júní á næsta ári, en glerjun og end- anlegum frágangi 1. október. Þá verður aðeins eftir bygging glervirk- is og stefnt er að útboði þess verks fljótlega á næsta ári. Ætlunin er að flugstöðin verði tekin í notkun árið 1987 og sagði Sverrir Haukur að hér væri um mikinn framkvæmdahraða að ræða, en hann væri bjartsýnn á ganginn. Hagvirki hefði staðið sig mjög vel við fyrsta áfangann og treysti hann ístaki í hvívetna til að standa við sinn hlut. Páll Sigurjónsson, framkvæmda- stjóri ístaks, og Loftur Árnason, verkfræðingur, sögðu í samtali við blm. Morgunblaðsins, að tímaáætl- unin væri mjög ströng, en ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að við hana yrði staðið. Þetta væri nánast hefðbundin húsbygging, þó þetta væri súluhús og með miklu af plöt- um. Þá væri miklu af útveggjum lok- að með áli og gleri og reiknuðu þeir með að um 10 milljónir rúmmetra af steypu færu í bygginguna. Aðspurðir sögðu þeir, að þeim væri mögulegt að vera svona langt undir kostnað- aráætlun, þar sem stórir verktakar hefðu mikla möguleika umfram aðra á hagkvæmum efniskaupum og út- boðum minni verkþátta, ættu mik- inn tækjakost og réðu yfir velþjálf- uðu starfsfólki auk fleiri þátta, sem þarna skiptu máli. Þeir reiknuðu með því, að um 80 manns ynnu við bygginguna, þegar flest yrði, og sögðust hafa mikinn áhuga á þvi, að fá heimamenn í vinnu. Fyrirtækið yrði með aðstöðu fyrir starfsfólk í Keflavík og reiknað væri með því, að steypuvinna hæfist í júní næstkom- andi. Afrek 5 ára drengs í Garðabæ: Bjargaði tveggja ára dreng frá drukknun FIMM ára drengur í Garðabæ, R. Páll Ragnarsson, vann það afrek á þriðjudag að bjarga tveggja ára frænda sínum frá drukknun í lækn- um, sem rennur sunnanmegin byggðakjarnans í bænum. Litli drengurinn féll ofan í læk- inn neðan við Lækjarfit á meðan Páll brá sér aðeins frá, þar sem hann var að leik með tveggja ára bróður sínum og frændanum. Þeg- ar hann kom til baka sá hann hvar frændinn hafði dottið í lækinn. Hann óð þegar út í lækinn, náði taki á frænda sínum og hélt hon- um á meðan bróðir hans hljóp eft- ir hjálp. Móðir bræðranna kom síðan og dró þá báða í land. Frá undirskrift byggingarsamningsins. Við borðsendann sitja Páll Sigurjónsson og Sverrir Haukur Gunnlaugsson, en þeir undirrituðu samninginn fyrir hönd ístaks og varnarmáladeildar Morminbu«i4/Einiifa Bjttrg. BLAÐ MANAÐARINS NEWS FROM HHAHD Mánaðarlegt fréttablað á ensku gefið út af Iceland Reviewv Eintakið kostar aðeins kr. 25. Flytur auk almennra íslandsfrétta það helsta um viðskipti, efnahagsmál, stjórnmál, sjávarútvegsmál, iðnað, menningar- og ferðamál. Og svo auðvitað sitthvað um fólk í fréttum hérlendis. Það er auðvelt fyrir vini þína og viðskiptamenn í útlöndum að fylgjast með íslandsfréttum ef þeir fá NEWS FROM KEIAND Sendu þeim gjafaáskrift. Greiði sem kostar þig sáralítið. Leitaðu frekari upplýsinga og hringdu í síma okkar 84966. ___ lcelandReview Höföabakka 9, Reykjavík IWfoKARNABÆR I V LAUGAVEGI 66 - GLÆSIBÆ - AUSTURSTRÆTI 22 SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 45800 .imort ./>..<5 naviv .aifcii.1 jiitics ijjimjiAi ua iuójs Umboösmenn okkar úti á landi eru: í Reykjavík: Austurstræli 22 — Laugavegi 20 — Laugavegi 66 — Glæsibæ. Úti á landi: Eplið — isafirði, Eyjabær — Vestmannaeyjum, Fataval — Keflavik, Álfhóll — Síglufirði, Nína — Akranesi, Ram — Húsavik, Bakhúsið — Hafnarfiröi, Austurbær — Reyðarfirði, Kaupfél. Rangæinga — Hvolsvelli, Sparta — Sauðárkróki, Skógar — Egilsstööum, ísbjórninn — Borgarnesi, Lindin — Selfossi, Patróna — Patreksfirði, Báran — Grindavík, Þórshamar — Stykkishólmi, Hornabær — Höfn Hornafiröi — Nesbær Neskaupstað — Verslunin Norðurfell, Akureyri. 'IWiIUi Oí> uil íiUlIií 1 8E USH .fcjjfiHl EIUU] Iiniidsu Iiuul nsiv oum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.