Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984 SIMAR 21150-21370 SOIUSTJ LARUS Þ VALOIMARS LOCM JOH ÞOROARSON HDL Til sölu og sýnis auk annarra eigna: í reisulegu steinhúsi í gamla Austurbænum 4ra herb. ibuð á 3ju hæð um 100 fm í 20 ára steinhúsi við Njálsgöfu. Tvennar svalir. Sér hitaveits. Agæt sameign. Verð aðeins kr. 1,9 millj. Suðuríbúð við Hraunbæ 3ja herb. á 1. hæð i suðurenda. Gott skáparými. Sér hitaveita. Teppi. Þvottahús é hæðinni. Ágæt sameign fullgerð. Sanngjarnt verð. Besta verð á markaðnum í dag 5 herb. úrvals ibúö í Seljahverfi, á 1. hæð i suöurenda. 127 fm (innan- mál). Sér þvottahús, stór geymsla. rúmgott herb. meö sér inngangi og snyrtingu. íbúöip er fullbúin nú þegar undir tréverk. Öll samegin fullgerð þar með talið bílhúsi og frágangur á lóð Teíkning og nánari uppl. á skrifstofunni. Góð hæð með sér hitaveitu 2ja herb. hæð um 50 fm i ágætu steinhúsi í gamla bænum. Sér hita- veita. Teppi. Nýleg eldhúsinnrétting. Skuldlaus eign. Verð aðeins kr. 1.050 þús. 2ja herb. íbúöir viö: Austurbrún 8. hæð, suðuríbúö 56 fm frábært útsýni. Blikahóla 2. hæð 60 fm. Nýleg. Bílskúr getur fylgt. Alfhólsveg Kóp. 2. hæð 75 fm. Stór og góð, sér þvottahús. Asparfell 5. hæð um 55 fm. Lyftuhús, suðuríbúð. Gott verö. Hátún 2. hæð háhýsi, 40 fm. Skuldlaus eign. 3ja herb. íbúöir við: Hraunbæ 3ja hæð 90 fm. Góð sameign. Verð kr. 1550 þús. Kjarrhólma 1. hæð 90 fm. Sér þvottahús. Suður íbúö. Sörlaskjól í kj. um 80 fm. Góð samþykkt. Nokkuð endurbætt. Barmahlíð rishæð 75 fm, sér hiti. Kvistir. Verð aöeins kr. 1350 þús. 4ra herb. íbúöir viö: Fífusel 1. hæö um 110 fm sér þvottahús, suöur íbúð. Hraunbæ 1. hæð 110 fm , teppi, haröviður, danfosskerfi. Góð sameign. Engihjalla Kóp. 6. hæð t háhýsi 110 fm. Haröviöur, feppi, tvennar svalir. Útsýni. Ágæt sameign. Nýlegt steinhús við Reynihvamm Kóp. Ein hæð um 130 fm. 4 svefnherb. (innb. skápar). Sólrík stofa. Rúmgott eldhús með borðkrók. Þvottahús og bað. I kjallara: föndur eða vinnu- herb. um 30 fm. Stór bílskúr 50 fm. (nú íbúð). Ræktuð lóð. Útsýni. Eitt besta verð á markaðnum í dag. Ódýr einstaklingsíbúð Við Karlagötu í kjallara. Rúmgóð stofa, litiö eldhús, gott sturtubað. Verð aóeins 500—600 þús. Glæsilegt timbuhús í smíöum Á úrvalsstað í Garðabæ. 1 hæö um 100 fm, rishæð rúmir 70 fm. Frágengiö aö utan með gleri í gluggum og einangraö innan. Bílskúr fylgir. Góð lán, hagstæð greiðslukjör. í lyftuhúsi við Sólheima eða Ljósheima óskast góð 3ja—4ra herb. íbúö. Skiptamöguleiki á raðhúsi í nágrenni. Húseign með tveimur íbúðum óskast til kaups: í vesturborginni, í smáíbúöahverfi eða nágrenni. Fjársterkir kaupendur. í gamla bænum í Hafnarfiröi á vinsælum stað við Reykjavíkurveg, 4ra herb. nokkuð endurnýjuð íbúð á hæð og rishæð, samt. um 106 fm. Verð aóeins kr. 1,5 millj. Opíð í dag laugardag kl. 1 — 5 síðd. Lokað á morgun, sunnudag. AIMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 SIMAR 21160-21370 43307 Opid kl. 1—4 laugardag og sunnudag Holtsgata Góð 2ja herb. ca. 60 fm íbúð á 4. hæð. Gott útsýni. Espigeröi Mjög góð ca. 70 fm 2ja herb. ib. á 6. hæð. Hamraborg Góð 2ja herb. 60 fm íbúð á 2. hæð. Verð 1350 þús. Furugrund Góð 3ja herb., 87 fm íb., á 2. hæð. Verð 1650 þús. Lundarbrekka Góð ca. 90 fm 3ja herb. íbúö á 3. hæö. Hamraborg Mjög góð 3ja herb. íb. Suður- svalir Gott útsýni. Hvassaleiti Vönduð 4ra herb. ca. 110 fm íbúð á 3. hæð. Verð 1950 þús. Fiskakvísl 4ra herb. íbúð ásamt bilskúr. Afh. fokh. Efstihjalli Góð 4ra herb. ca. 117 fm íb. á 1. hæð. Verð 2,1 millj. Goðheimar Góð ca. 160 fm 6 herb. sérhæð ásamt 30 fm bíl- skúr. Verð 3,2 millj. Fellsmúli Mjög góð 125 fm endaíbúð. Verð 2,4 millj. Hlíðarvegur Mjög góð 120 fm efri sérhæð, ásamt 30 fm bílskúr, í skiptum fyrir gott einbýli. Reynihvammur 160 fm einbýlishús á einni hæð. Verð 3,3 millj. Digranesvegur Góð ca. 130 fm 5 herb. sérhæö. Gott útsýni. Verð tilboð. Heiðarás Glæsilegt ca. 300 fm einbýlis- hús tilb. undir tréverk. Hægt að hafa tvær íbúöir. Möguleiki á aö taka minni eign uppí. Kópavogur Vantar 200—300 fm íbúöar- húsnæði fyrir opinberann aöila. Vantar Höfum fjársterka kaupendur að 4ra herb. íbúöum í Kópavogi. Einnig vantar okkur einbýlishús á einni hæð. KIÖRBÝLI FASTEIGNASALA Nýbýlavegi22 III hæð (Dalbrekkumegin) Sími 43307 S&lum.: Sveinbjörn Guómundsson. Rafn H. Skúlason, lögfr. iöaisDsö aiáD Umsjónarmaður Gísli Jónsson 242. þáttur Árni Halldórsson á Egils- stöðum sendir mér langt bréf og merkilegt. Hann er mikill áhugamaður um íslenskt mál, ekki síst stafsetningu. Ég hef löngu tekið fram að stafsetning muni sniðgengin í þáttum þess- um, enda hefur svo verið og mun enn um sinn. Ég geri því ekki bermileg skil þeim þætti í bréfi Árna, sem um stafsetn- inguna fjallar. Honum er ekki hlýtt til stafanna y og ý, og því mun ég ekki nota þá, þar sem ég tek orðrétt úr bréfi hans. Hann minnir mig á, að í einu hefti af Nýju stúdentablaði, málgagni Félags róttækra stúdenta, hafi á háskólaárum okkar ekki verið haft „ufsílon" (ypsilon). Ég man eftir þessu, og ég get glatt Árna Halldórs- son með því að rifja upp að margfrægir Fjölnismenn og dr. Björn M. Ólsen, svo að dæmi séu tekin af góðum enda, not- uðu um hríð i og í, þar sem nú er regla að hafa y og ý. Gefum svo Árna orðið alveg: „Það hefir lengi þótt við hæfi að príða mál sitt með gömlum orðtökum og málsháttum, sér- staklega í hátíðlegri ræðu. Árangurinn getur þó stundum orðið þvengmjór, enda ekki nema von að slíkt fari úr bönd- unum, þegar orðtökin vísa til verklags sem löngu er dáið drottni sínum, og þar við bæt- ist svo að á okkar hraðfleygu stund vinnst mönnum ekki tími til að aga mál sitt, allt verður að ske á „nóinu". Misferli með orðtök munu ekki ní af nálinni. Dæmi: Firir rösklega hálfri öld voru karli einum hér eistra sögð tíðindi er honum stóð ekki á sama um, og satt að segja varð honum ekki um sel er hann heirði þau. Varð karli þá að orði: „Nú stendur mér ekki á sel.“ Þetta þótti afkáralegt þá. Skildi slíkt orðafar teljast til tíðinda nú? Þótt okkur standi ekki á sama, þegar við rekumst á soddan fjólur, væri sennilega tekið of djúpt í árinni, ef við segðum að okkur stæði ekki á sel.“ Hér grípur umsjónarmaður fram í fyrir Árna. Hann er hér að lýsa alkunnum málglöpum sem þrásinnis hafa verið tekin dæmi af í þáttum þessum. Kallast þetta samruni (con- tamination). Þegar maðurinn segir það, sem Árni hefur eftir honum, blandar hann saman tveimur orðtökum sem hafa svipaða merkingu: Að standa á sama og að verða (ekki) um sel og útkoman verður það sem fyrr og síðar mundi teljast af- káraskapur í máli. Hitt er svo annað mál að menn leika sér oft að þess konar samruna og segja til dæmis: það er of seint að byrgja barinn, þegar þarnið er dottið í það, eða: sjaldan er á botninum betra nema úlfur í undanrennu! Árni segir lika, að hægara sé um að tala en í að komast og væri rétt að nota orðtök og málshætti með gát og þá því aðeins að tími sé til að íhuga hvort rétt sé með far- ið. Sjálfsagt er að taka undir þetta. Æðibunugangur leiðir helst af sér rassbögur, eins og þegar krakkinn sagði í flýti við leikbróður sinn: Rannstóð? í staðinn fyrir rennóðstu? Þá tek ég undir með Árna í því að ekki hafi verið nógu snjallt málfarið á þingfréttun- um, þegar sagt var frá því að tekið hefði verið til umræðu frumvarp til laga um fiskveið- ar í neðri deild. Um þetta segir Árni orðrétt, og lýkur þá máli hans um sinn: „Nú er það víst og satt að margur hefir reint að komast þar í skiprúm og má vera að þar sé þorsk og þorsk að fá, en „lög um fiskveiðar í neðri deild" hljómar eitthvað an- kannalega, ekki satt, þótt slíkt orðafar riðji sér stöðugt til rúms i fjölmiðlum." ★ Lýsing á einstökum hlutum meinlæsingar Á meðfylgjandi mynd, sem er af ígreyptri meinlæsingu, eru sýndir einstakir hlutir læs- ingarinnar og heiti þeirra. Læsingin er bæði með hlaup- og læsingarjárni. Hlaupjárnið sem er með sniði að framan- verðu (45°) er notað þegar loka á dyrum en ekki læsa þeim. Gikk- og hlaupjárnsfjaðrirn- ar halda hlaupjárninu í réttum skorðum. í gegnum ferstrenda gatið á gikknum gengur þollur sem á eru fest handföng eða húnar. Þegar þollinum er snúið dregst hlaupjárnið inn og það stríðkar á fjöðrunum, en þegar létt er á takinu á þollinum þrýsta fjaðrirnar hlaupjárninu út aftur. Breiðfirðingur, sem ekki vill láta nafns síns getið, skrifar mér afskaplega notalegt bréf og segist bíða með óþreyju eftir Mogganum hvern laugardag til þess að lesa um íslenskt mál. Breiðfirðingi finnst að í þess- um þáttum sé hæfilega bland- að saman fróðleik og skemmt- un, hið fróðlega gert skemmti- legt og hið skemmtilega fróð- legt. Eg þakka Breiðfirðingi kærlega. Hann segir síðan: „Þessar línur eru hripaðar vegna 239. þáttar, ísl. mál, en í þeim þætti var rætt um „allt af létta", og veldur það fram- hleypni minni að senda þættin- um vísu, er þetta kemur fyrir í: Heyrðu Metta, hvað er að frétta? Höndina réttu út frá þér. Taktu þetta, þyldu af létta, þýða, netta sprundin, mér. Þessi vísa er eftir Elínu Blöndal, en hún var dóttir Jóns Thoroddsens skálds." Að lokum er svo aftur myndskreytt bréf frá Haraldi Ágústssyni í Reykjavík, með bestu kveðjum á báða bóga: Læsingarjárninu er læst með lykli sem snúið er í læsingunni, en við það lyftir neðri hluti lykilskeggsins viðhaldsgikkn- um upp úr fremra viðhaldshak- inu (a). Samtímis nær innsti hluti lykilskeggsins taki á læs- ingarjárninu og færir það út á við þar til skeggið á lyklinum sleppir taki sínu og viðhalds- gikkurinn fellur ofan í við- haldshakið (b). Það eru til læsingar sem engin læsingarjárn eru í, en í þess stað er hægt að læsa hlaupjárninu. P.s. í síðasta þætti laumaðist inn orðmyndin þessarri fyrir þess- ari. í beygingu orðsins þessi eru aldrei tvö r. Tilboð sem verður ekki endurtekið Gildir til 19. maí ’84. 30% staðgreiðsluafsláttur af öllum vörum verzlunarinnar OPIÐ: alla daga frá kl. 9—6 laugard. 12.5 og 19.5 opið frá kl. 10—3 e.h. K.M. Húsgögn Langholtsvegur 111 — Símar 3701 0— 37144 — Reykjavík. ATH: Tilboöið veröur ekki endurtekiö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.