Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984 19 og raunverulega baráttu hugs- andi ungs manns. Þeir Þorsteinn og Pálmi njóta þess hve margar persónur leikritsins eru í lausu loftu. Enginn dregur það í efa að Guðrún Ásmundsdóttir er ein af okkar bestu leikkonum. Hún ger- ir mjög sterka hluti í Fjöregginu. En á köflum dettur hún út eins og ofspiluð hljómplata. Það er ekki hennar sök heldur þess sem hefur valið sér það erfiða hlut- skipti að blása persónunni lífs- anda í nasir. Það er hlutverk sem er einna best frá gengið af hendi höfund- ar er tvímælalaust dóttirin Sig- ríður, kölluð Sísí. Lilja Þórisdótt- ir glansar í því, skilar því á sann- verðugan hátt. Guðrúnu S. Gísla- dóttur verður ekkki kennt um vandræðaskap Heiðu. Minni hlutverk eru í góðum höndum. Margrét Helga Jóhannsdóttir lýsir átakanlega Guðbjörgu, Val- gerður Dan Gerðu, Soffía Jak- obsdóttir Sigurveigu og Aðal- steinn Bergdal Loft. Jóhann Sig- urðarson er uggvænlegur í hlut- verki glataða sonarins Sigfúsar. Meiri áhersla á þátt hann hefði ekki sakað til að dýpka verkið. Um leikmynd Steinþórs Sig- urðssonar er ekki mikið að segja, en yfir henni verður ekki kvart- að. Sama er að segja um lýsingu Daníels Williamssonar. Það kom á daginn að áhorfendur fagna hverri nýrri tilraun íslensks leik- ritahöfundar til að kveðja sér hljóðs. Það hefur Sveinn Ein- arsson gert með Fjöregginu. En að lokum er þess óskað að hann gæti minna hófs næst. Hin raunsæilega aðferð er að vísu góð og gild, en meira þarf til að vekja áhorfandann til um- hugsunar. Leikrit sem sýnir okkur hvernig unnt er að byggja á gömlum grunni en höfða samt til áhorfenda er ekki út í bláinn. Það er meðal annars vitnisburð- ur um lífseiga hefð. XJöföar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! TOYOTA Við kynnum ÁRNA JÓNSSON og GUÐNÝJU JÓNU EINARSDÓTTUR sölumenn Toyota bifreiða. Líttu við hjá þeim í Hafnarstrætinu, þar sem við höfum opnað nýjan sýningarsal, - ekki stóran að vísu, en stórglæsilegan. Opið virka daga frá kl. 11:00-19:00og laugardaga í maífrá kl. 10:00-15:00. TOYOTA - þjónustan er í sama gæðaflokki og bílarnir. TOYOTA Söludeild Hafnarstræti 7 101 REYKJAVÍK Sími 91 25111 Avaxta- og \inkyiming Kynnum í dag kl. 11—16 frábæru kanadísku rauðu Delicious eplin, ’ EINNIG FRA SPANI FEIKNAVINSÆLU „Cosas“ appelsínurnar og frá Rínarhéruöum Þýzkalands „Jungs“ óáfengu rauðvínin, hvítvínin og kamapvínin KYNNINGARVERÐ HAGKAUP Skeiftinni 15 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.