Morgunblaðið - 17.05.1984, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
111. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Er líf Sakharov-
hjónanna í hættu?
Parí.s, 16. maí. AP.
DÓTTIR og tengdasonur Yelenu
Bonner, eiginkonu sovéska nóbels-
verðlaunahörundarins Andrei Sakh-
arovs, sögðu í dag, að heilsa Sakharov-
hjónanna væri nú orðin svo slæm, að
það kynni aðeins að hlaupa á nokkrum
dögum hvenaer dauða þeirra bæri að
höndum.
Á blaðamannafundi í Paris sögð-
ust þau Tataniá, dóttir Yelenu Bonn-
er, og eiginmaður hennar, Efren
Yankelevitch, hafa beðið Mitterrand,
Frakklandsforseta, um að gera hvað
hann gæti til að hjálpa Sakharov og
konu hans. Sakharov hefur ekki
neytt matar síðan 2. maí sl. og vill
með því reyna að knýja stjórnvöld til
að leyfa konu hans að leita sér lækn-
inga erlendis. Sögðu þau Tatania og
maður hennar, að ástandið væri nú
svo alvarlegt, að Sakharov-hjónin,
annað eða bæði, gætu dáið einhvern
næstu daga.
Símamynd AP.
Á sigurbraut
Antonio Cabrini (t.v.) fagnar ásamt Beniamino Vignola eftir að sá
síðarnefndi hafði skorað fyrra mark ítalska liðsins Juventus í úrslita-
leik Kvrópukeppni bikariiafa í knattspyrnu í Sviss í gær. Juventus
sigraði portúgalska liðið Porto 2:1 í ieiknum. Sjá nánar á íþróttasíðu.
Panama:
Ardito-Barletta
kjörinn forseti
Panamaixirg, Panama, 16. maí AP.
YFIRKJÖRSTJÓRNIN í Panama lýsti
í dag yfir, að Nicolas Ardito-Barletta
hefði borið sigur úr býtum í forseta-
kosningunum 6. maí, þeim fyrstu i
Panama í 16 ár. Barletta naut stuðn-
ings herforingjastjórnarinnar en
stjórnarandstaðan hefur sakað hana
um víðtækt kosningasvindl.
Niðurstaða yfirkjörstjórnar var
sú, að Barletta hefði sigrað með 1713
atkvæða mun og hafði hún þá ógilt
þúsundir atkvæða af ýmsum ástæð-
um. Barletta fagnaði úrslitunum,
kallaði þau „vilja þjóðarinnar" og
kvaðst strax mundu hefjast handa
við að leysa gífurleg efnahagsvand-
ræði þjóðarinnar. Barletta naut
stuðnings hersins, sem er valdamik-
ill í Panama.
Stjórnarandstaðan hefur sakað
herforingjastjórnina um að hafa
keypt fylgi fólks sums staðar en fals-
að kjörgögn annars staðar og segist
munu reyna að fá kosningarnar
ógiltar. Frambjóðandi hennar var
Arnulfo Arias Madrid, sem þrisvar
hefur verið kjörinn forseti í Panama
og herinn jafn oft rekið frá völdum,
síðast eftir 11 daga í embætti árið
1968.
m
Rætt um varnir vestrænna ríkja
Árlegur vorfundur varnarmálaráðherra Atlantehafsbandalagsríkjanna
stendur nú í Briissel en eitt helsta umræðuefnið þar er efling venjulegra
varna bandalagsins. í gær deildu ráðherrarnir mjög hart á einurðarleysi
hollensku stjórnarinnar í eldflaugamálinu og kváðu því hvergi fagnað
nema í Moskvu. Sjá „Sovétmenn munu aldrei..." á bls. 23.
Sprengdu upp
hús í búðum
flóttamanna
Sidon, 16. maí. AP.
ÍSRAELSKIR hermenn réðust í
nótt, sem leið, inn í palestínskar
flóttainannabúðir, ráku íbúana út og
sprengdu í loft upp nokkur hús. Að
sjálfra sögn voru þeir að leita að
hryðjuverkamönnum.
Flóttafólkið í búðunum, sem eru
í jaðri Sidon-borgar í Suður-Líb-
anon, sögðu, að ísraelsku her-
mennirnir hefðu sprengt upp dyr
að sumum húsanna áður en þeir
fóru þar inn og önnur hús hefðu
þeir lagt alveg í rúst áður en þeir
yfirgáfu búðirnar. Segja íbúarnir,
að um 150 manns hafi verið hand-
teknir og starfsmenn á sjúkrahúsi
í nágrenninu segja, að þangað hafi
verið komið með 20 menn, sem
hafi meiðst í aðgerðum ísraela.
ísraelar viðurkenndu í dag að
hafa sprengt upp tvö hús og sögðu,
að tveir menn hefðu slasast „þegar
þeir reyndu að hindra handtöku
grunaðra manna".
franir sakaðir um að hafa ráðist á risaolfuskip frá Saudi-Arabfu
Nikósíu, Tókýó, 16. maí. AP.
OLÍUFLUTNINGAR um PersaBóa
stöðvuðust í dag eftir að ráðist var á
olíuflutningaskip frá Saudi-Arabíu.
Talið er víst, að franir hafi verið þar að
verki og í dag sagði Rafsanjani, tals-
maður íranska þingsins, að ef olíuút-
flutningur írana yrði stöðvaður, myndu
þeir koma í veg fyrir olíuútflutning frá
öllum öðrum ríkjum við Persaflóa.
Orrustuflugvélar réðust í dag á
saudi-arabískt olíuskip, sem var með
210.000 lestir af olíu frá Kuwait og
Saudi-Arabíu. Kom upp eldur f skip-
inu en fljótlega tókst að ná tökum á
honum og urðu engin slys á mönn-
um. Ríkisstjórnin í Kuwait hefur
sakað írani um árásina og segir, að
þeir hafi einnig verið að verki á
sunnudag og mánudag þegar ráðist
var á tvö olíuskip frá Kuwait.
Kvaddur hefur verið saman
skyndifundur olíuríkjanna við
Persaflóa, sem lúta forystu Saudi-
Araba, og verður hann í Riyadh á
fimmtudag. Varnarmálaráðherra
Saudi-Arabíú hvatti í dag til, að
þessi ríki brygðust við árásunum „af
skynsemi og með hernaðarmátt sinn
að bakhjarli".
íranir hafa ekki kannast við árás-
irnar en í dag sagði Rafsanjani, tals-
maður íranska þingsins, að „ef flutn-
ingar til og frá Kharg-eyju verða
ekki öruggir munu engir aðrir flutn-
ingar um Persaflóa verða það held-
ur“.
Japönsk olíufélög, sem eru meðal
helstu viðskiptavina trana, hafa nú í
hyggju að hætta að kaupa olíu frá
Iran eða krefjast að öðrum kosti
verðlækkunar á olíunni þaðan. Árás-
ir á olíuskip i Persaflóa hafa valdið
því, að vátryggingargjöld hafa
hækkað mikið og er írönsk olía nú
rúmlega einum dollar dýrari en áð-
ur.
E1 Salvador:
Skæruliðar farnir
að stunda mannrán
Su Salvador, 16. maí. AP.
SKÆRULIÐAR vinstrimanna í El
Salvador hafa að undanförnu rænt
fjölda ungra manna og kvenna og
reynt að neyða fólkið til að taka
upp vopn við hlið þeirra. Þykir það
til marks um, að skæruliðar eigi nú
erfitt með að fá menn til liðs við
sig og að áróður þeirra eigi minni
hljómgrunn með þjóðinni en áður.
Vinstrisinnaðir skæruliðar
rændu sl. mánudag um 80 ungum
mönnum og konum í bænum E1
Limon, sem er skammt frá höfuð-
borginni, og er haft eftir Franc-
— til að efla liðsstyrkinn
isco A. Fuentes, yfirmanni al-
mannavarna í bænum, að liðsbón-
ir skæruliða fari nú fram með
þessum hætti og að fólkið muni
verða neytt til að taka upp vopn
gegn stjórnvöldum. Foreldrar og
aðrir ættingjar unga fólksins, sem
var rænt, hafa beðið yfirvöldin
um aðstoð við að hafa uppi á ást-
vinum sínum.
Vinstrisinnaðir skæruliðar
virðast nú eiga í miklum erfiðleik-
um með að fá nýtt fólk í sínar
raðir og hafa þess vegna tekið upp
á að beita aðferðum við liðsöflun-
ina, sem minna mest á aðferðir
glæpaflokka. Ræna þeir fólki og
hafa í hótunum við það ef það vill
ekki ganga í flokk með þeim.
I gær hafnaði yfirkjörstjórnin í
E1 Salvador þeirri kröfu Arena-
flokksins, að kosningarnar 6. maí
yrðu ógiltar vegna mistaka við
talningu. I kosningunum beið
formaður flokksins, d’Aubuisson,
ósigur fyrir Duarte, leiðtoga
kristilegra demókrata.
Olmflutningar um
Persaflóa stöðvast