Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 20
2Ö MORGUNÖLAÐIÐ, ÞRÍÐJUÚAGUR 22. MAÍ1904 Kaupmannahöfn: Sorp hleðst upp og bensín þverr Kaupmannahofn, 21. maí. Frá Ih Hjornhak fréllarilara Mhl. ALLT VAH við það sama í vinnustöðvun strætisvagna- og sorpbifreiðastjóra og bensín- og olíuútkeyrslumanna í dag og óvíst hvcnær deila þeirra við vinnuveitendur verður til lykta leidd. Vinnustöðvunin hefur staðið í nokkra daga og sorp hleðst upp í Kaupmannahöfn, auk þess sem bensín- og olíulaust er að verða víðast hvar. Stjórnmálamenn, verkalýðsleið- togar og talsmenn bílstjóranna sátu á fundum í dag, en árangur varð enginn sem heitið gat. Nýir fundir verða á morgun og er von- ast til þess að þá náist samkomu- lag í einhverri mynd. Annars veit danska þjóðin lítið um gang mála, því vegna eldsneytisleysis komst sjónvarpsfólk ekki á vettvang á fundarstað deiluaðila og danskir sjónvarpsskermar voru dimmir er fréttaþulur las nýjustu tíðindin, sem voru innihaldslítil. EBE vill engan kvóta á smásíld — og Norðmenn slitu viðræðum um síldveiðarnar Ósló, 21. maí. frá IVr A. Borclund, fríllarilara Mbl. ILLA horfir nú með samstarf Norðmanna og Efnahagsbandalagsins í fiskveiðimálum eftir að slitnaði upp úr samningaviðræðum um síldar- kvóta nú fyrir helgina. Trond S. Paulsen, fiskifræðingur og starfsmaður í norska sjávarútvegsráðuneytinu, var í fyrirsvari fyrir norsku sendi- nefndinni og ákvað hann að slíta viðræðunum þegar fulltrúar EBE heimtuðu, að ekkert tillit yrði tekið til veiða á 170.000 tonnum af smásíld í fyrra. Peronistar fagna Isabellu Um 2.500 manns með spilverk alls konar fognuðu Isabellu Peron, fyrrum forseta, þegar hún kom til Buenos Aires i sunnudag. Isabella Peron hefur búið á Spáni frá því að herforingjarnir leystu hana úr haldi árið 1981 en mun nú ásamt öðrum peronistum ræða við Raul Alfonsin, forseta, um gífurleg efnahagsvandræði Argentínu- manna. Alfonsin vill reyna að fá stuðning peronista og annarra flokka við nauðsynlegar ráðstafanir sem ekki geta lengur beðið. Erlendar skuldir þjóðarinnar eru gífurlega miklar og verðbólgan komin yfir 500%. „Þegar ljóst var, að EBE-full- trúarnir voru ákveðnir í að skilja smásíldina undan, fannst okkur Norðmönnunum engin ástæða til að halda viðræðunum áfram," sagði Paulsen, sem bætti því við, að mjög illa horfði nú með sam- starf Norðmanna og EBE-þjóð- anna í fiskveiðimálum. EBE-fulitrúarnir krefjast þess, að kvótinn nái aðeins til fullorð- innar síldar en Norðmenn vilja halda sig við fyrri reglur um að kvótinn taki til allrar síldar, smá- síldar sem fullorðinnar. Norð- menn hafa líka mótmælt við Efna- hagsbandalagið ofveiði á smásíld og ætla að bíða eftir svari við þeim mótmælum áður en nokkuð verður ákveðið með frekari viðræður. í lok sjöunda áratugarins og í byrj- un þess áttunda varð brestur í Norðursjávarsíldinni, sem fyrst og fremst var rakinn til gífurlegrar ofveiði á smásíld. „Herinn styður tilraunir okkar“ — segir Duarte, nýkjörinn forseti í E1 Salvador Washinglon, 21. maí. Al*. JOSE Napoleon Duarte, kjörinn for- seti í El Salvador, sagði í gær, sunnudag, að hann væri sannfærður um, að herinn í landinu, sem í hálfa öld hefði verið allsráðandi í stjórn- Hermenn Rússa frá Afganistan: Vilja frekar vera í Sviss en að fara heim Frá Önnu Hjarnadóllur, fréllarilara MM. Hern. 21. maí. TVEIR af þremur sovéskum her- mönnum, sem frelsissveitir í Afg- anistan handtóku og hafa verið í gæslu í Sviss síðan 1982 fyrir milli- göngu Rauða krossins, hafa kosið að vera um kyrrt í Sviss. Valery Didienko, sem er 21 árs, kaus að halda heim til Sovétríkjanna og flaug með Aeroflot-flugfélaginu til Moskvu á sunnudag. Sovésku hermennirnir tveir eru báðir 22ja ára og vilja ekki láta nafns síns getið. Þeir báðu um dvalarleyfi í lok apríl og hafa fengið það til eins árs. Sendi- Þórshöfn: Norröna hættir Kflarsiglingum hórshofn, 21. maí. Frá Jogvan Argt*. fréllarilara Mbl. í Færeyjum. Útgerðarfyrirtækið Smyril I.ine, sem gerir út Norrönu, hefur ákveðið að hætta siglingum skipsins milli Korsör í Danmörku og Kílar í Vestur-Þýska- landi. Siglingar hófust á þessari leið í október í fyrra en þykja ekki svara kostnaði. Oli Hammer, forstjóri fyrirtækis- ins, segir, að nú sé ljóst, að ekki verði af þeirri aukningu á farþegum, bílum og flutningabílum, sem búist hafði verið við í sumar, og að þess vegna hafi verið afráðið að hætta siglingum til Kílar. Norröna er nú í slipp en mun hefja sumarsiglingar á laugardag. Norröna mun í sumar sigla á milli íslands, Færeyja, Hjaltlandseyja, Noregs og Danmerkur. herra Sovétríkjanna í Sviss hef- ur mótmælt ákvörðun yfirvalda um að senda hermennina ekki heim og segir þau hafa haft áhrif á ákvörðun þeirra um að biðja um dvalarleyfi. Sendiherrann hefur ekki gagnrýnt samkomulag Rauða krossins við Sviss um að gæta fanganna. Þeir voru í tvö ár á Zugerberg í miðhluta Sviss. Sjö Grænland: Tvennar kosningar Raupmannahofn, 21. mai. Frá NJ. Hruun, Gramlandsfréllarilara MM. Grænlenskir kjósendur munu innan skamms ganga aó kjör- borðinu og ekki aðeins einu sinni heldur tvisvar og það með átta daga millibili. 6. júní nk. verða almennar þingkosningar á Græn- landi en 14. sama mánaðar verð- ur fulltrúi þeirra á þingi Efna- hagshandalagsins kosinn. Búist hafði verið við, að flokkarnir létu sér nægja einar kosningar og að sá, sem nú sit- ur á EBE-þinginu, Finn Lynge frá Siumut, sæti þar áfram út þann tíma, sem Grænlendingar eiga eftir í bandalaginu, þ.e. út þetta ár. Stjórnarandstöðu- flokkurinn Atassaut hefur nú hins vegar tilkynnt mótfram- boð og býður fram Konrad Steenholdt. sovéskir hermenn frá Afganistan eru nú í haldi á Zugerberg. Annar sovésku hermannanna, sem verða um kyrrt, fékk hrað- bréf frá móður sinni í Sovétríkj- unum nú í vikunni, samkvæmt upplýsingum talsmanns svissn- eska utanríkisráðuneytisins. Hún bað hann endilega að snúa aftur heim. Ræðismaður Sovét- ríkjanna hitti hermennina síðast 1. maí sl. Hjálparstofnun svissn- eskra verkamanna hefur nú verið falið að aðstoða hermennina. Duarte, nýkjörinn forseti El Salva- dor. málunum, væri nú tilbúinn til að taka við fyrirmælum frá borgara- legri stjórn. Duarte er nú í heimsókn hjá Reagan í Washington og mun á morgun, þriðjudag, ávarpa þing- heim. „Herinn og stofnanir hans hafa breyst mikið," sagði Duarte þegar hann sat fyrir svörum í sjónvarp- inu. „Herinn er nú reiðubúinn að styðja tilraunir okkar til að treysta lýðræðið í landinu." Sumir hafa dregið í efa, að her- inn í E1 Salvador fengist til að beygja sig fyrir borgaralegri stjórn og ekki viljað trúa því, að Duarte héldist uppi að draga dauðasveitir hægrimanna fyrir lög og dóm. Duarte, sem tekur formlega við embætti í næsta mánuði, segir hins vegar, að það sýni best þá breytingu, sem orðin er, að herinn skyldi engin afskipti hafa af kosningunum í maíbyrjun. Duarte hefur látið í ljós mikla óánægju með tregðu sumra bandarískra þingmanna til að veita E1 Salvador hernaðaraðstoð og segist vera af þeim sökum að velta fyrir sér að koma upp vopnaverksmiðjum í landinu. Fyrir Bandaríkjaþingi liggur nú tillaga um 62 milljóna dollara aukaaðstoð við stjórnvöld í E1 Salvador. í Bandaríkjaferðinni hefur Duarte lagt mikla áherslu á, að eitt af hans' fyrstu verkum í embætti verði að fyrirskipa rann- sókn á dauðasveitunum svokölluðu og ýmsum hryðjuverkum, sem framin hafa verið í landinu, t.d. morðinu á Oscar Romero, fyrrum erkibiskupi, sem var skotinn til bana í dómkirkjunni í San Salva- dor. E1 Salvador: Biskupinn fordæmir mannrán skæruliða 50 ungum mönnum rænt sl. föstu- dag og frekari mannrán boðuð San Salvador, 21. maí. Al*. ARTIJRO Rivera y Damas, erkibiskup í El Salvador, fordæmdi í gær mjög harðlcga aukin mannrán vinstrisinnaóra skæruliða, sem virðast nú eiga í miklum erfiðleikum með að fá nýja menn til liðs við sig af fúsum og frjálsum vilja. Sl. föstudag var 50 ungmennum rænt í þorpi fyrir norðan San Salvador. „Æ fleiri fréttir fara af því, að skæruliðar ræni fólki og neyði það til að berjast með þeim,“ sagði Damas í messu í dómkirkju höfuð- borgarinnar í gær, „og það gerist á sama tíma og æ færri fréttir fara af pólitískum mannránum örygg- issveitanna." í gær, sunnudag, komu til San Salvador rúmlega 500 flóttamenn, sem flúið höfðu til Honduras vegna átakanna í landinu og voru í þeim hópi 35 ungir menn, sem sloppið höfðu frá skæruliðum. Síðastliðið föstudagskvöld kom ótiltekinn fjöldi skæruliða í þorpið San Jose de las Flores, sem er um 18 km fyrir norðan San Salvador, og byrjuðu þeir á því að reka fólk- ið út úr húsum sínum og á fund, sem haldinn var á aðaltorginu. Þar var fólkinu lesinn boðskapur skæruliða, sem síðan hurfu á braut og höfðu með sér 50 ung- menni. Kváðust þeir hafa fyrir- skipanir um að ná í 200 „liðs- menn“ og að þeir munu koma aft- ur eftir þeim fjölda, sem á vant- aði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.