Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 45
 ÞÝSKA KNATTSPYRNAN MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1984 Stuttgart nær öruggt Essen er úr leik Allt stefnir nú í það aö v-þýska handknattleiksliöið Grosswallstadt nái aö vinna þrjá titla á keppnistímabilinu. Liðið sigraði 2. deildar liðið Hamel í undanúrslitum í bik- arkeppninni 24—16. í hinum leiknum kom á óvart að Ess- en, liö þaö sem Alfreð Gísla- son leikur með, tapaði fyrir Berlin 16—22. Það verða því Grosswallstadt og Berlin sem leika til úrslita. Grossvallstadt hefur sigrað í deildakeppninni og IHF Evr- ópukeppninni í ár. — ÞR „Sástu markió!“ — sagði Benthaus og fórnaði höndum Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttaritara Mbl. í Bremen. STRAX að leik loknum á laug- ardaginn átti ég þess kost aö spyrja þjálfara Stuttgart um leikinn og frammistöðu Ás- geirs. Það fyrsta sem hann sagði var: „Sástu markið!" og svo fórnaði hann höndum: „Svona gera ekki nema snill- ingar.“ — Mig vantar orð ég er hrærður yfir_ þessum sigri. Ég haföi notað alla síöustu viku til þess aö byggja lið mitt upp andlega og líkamlega. Ég lagði á það ofurkapp við leikmenn mína alla vikuna að við yrðum að skora í Bremen. Annað kæmi ekki til greina. — Það sem ég lagði tii grundvallar var að Bremen hefur skorað mark í öllum heimaleikjum sínum í tvö og hálft ár. Ef við myndum ekki skora væri tap óumflýjanlegt. Mörkin okkar voru því kær- komin, sagði Benthaus. Þjálfari Bremen sagði eftir leikinn að sigur Stuttgart hefði verið sanngjarn. Liðið heföi leikiö frábæra knattspyrnu og Bremen hefði ekki átt svar við stórleik þeirra. — ÞR Staðan Staðan í 1. deíldinni í knatt- spyrnu er þannig eftir fyrstu um- feröina: Þór, Ak. ÍA Víkingur KR Valur ÍBK Þróttur UBK Fram KA 1 1 0 0 2:1 3 1 1 0 0 1:0 3 1 0 1 0 1:1 1 1 0 1 0 1:1 1 1 0 1 0 0:0 1 1 0 1 0 0:0 1 1 0 1 0 0:0 1 1 0 1 0 0:0 1 1 0 0 1 0:1 0 1 0 0 1 1:2 0 Næsti leikur er í kvöld, þá leika Víkingur og Valur á Laugardals- velli kl. 20. • Páll Ólafsson og félagar hans í landsliöinu hafa æft mjög vel aö undanförnu. Þaö kemur sér vel núna þegar allt bendir til þess að liðið keppi í Los Angeles í sumar. Pétur Rafnsson: „Tel mig geta unnið hreyfingunni mikið gagnM EINN af núverandi stjórnar- mönnum í HSÍ, Pétur Rafnsson, hefur ákveöið að gefa kost á sér í framboð til formanns á árs- þingi HSÍ. Mbl. innti Pétur eftir því af hverju hann færi í fram- boð til formanns. — Það er vegna þess að ég tel mig geta unnið hreyfingunni mikið gagn meö öflugu starfi. Ég tel að það sé stórt og mikiö atriði að þeir sem eru öllum hnútum kunnugir og hafa verið að starfa að málum landsliðsins aö undan- förnu sitji áfram í stjórninni og taki þátt í þeim mikla undirþún- ingi sem framundan er hjá lands- liðinu. Stærsta verkefnið er Ólympíuleikarnir. Fram að þeim tíma veröur landsliðið aö fá marga landsleiki. Við höfum ver- ið að vinna að þeim málum og í samráði við hin Norðurlöndin ætti okkur að takast að fá leiki. — Nú, þaö eru ótal mörg verkefni sem ég hefði áhuga á að segja frá en það yrði alltof langt mál, sagði Pétur. Jón Hjaltalín gefur kost á sér til , formennsku í HSI „ÁSTÆDAN fyrir því aö ég gef kost á mér í framboð til for- mennsku í HSÍ er sú að fjöl- margir, bæði hér í Reykjavík og úti á landi, sem starfa að málum handknattleiksins hafa farið þess á leit við mig. Ég hef líka sjálfur áhuga á því að koma inn í handknattleikinn aftur og reyna að gera hreyfingunni gagn,“ sagði Jón Hjaltalín Magnússon í spjalli við Mbl. í gær. Jón var hér á árum áður kunnur handknattleiksmaður og lék marga landsleiki. Að sögn Jóns er hann búinn að fá trausta menn til að starfa með sér i stjórn HSÍ, og verði hann kjörinn formaður þá má bú- ast viö nokkrum breytingum á stjórninni frá þvi sem nú er. Þá sagöi Jón að Friðrik Guð- mundsson núverandi formaður HSÍ, sem þúinn var að gefa kost á sér til endurkjörs myndi draga framöoð sitt til þaka og styöja sig í formannssætið. — ÞR Næsta öruggt að íslenska landsliðið í handknattleik keppir í Los Angeles í sumar Samkvæmt öruggum heim- ildum Morgunblaðsins mun ís- lenska landsliðið í handknatt- leik taka þátt í Ólympíuleikun- um í Los Angeles í sumar. ís- land fær þátttökurétt í leikun- um þar sem svo margar Aust- ur-Evrópuþjóðir hættu vió þátttöku. íslenska ólympíu- nefndin heldur í dag blaöa- mannafund um mál þetta og kynnir afstöðu sína til þess. Mjög líklega myndu 14 til 16 leikmenn fara á leikana auk 4 aðstoðarmanna og þjálfara. Kostnaöur við þennan hóp. myndi nema nálægt tveimur mílljónum króna og þann erfiða vanda verður einhvern veginn að leysa. Sex efstu þjóðirnar í hand- knattleikskeppni Ólympíuleik- anna fá sæti í A-riðli heims- meistarakeppninnar og hefur ís- land alla möguleika á aö vera í þeim hópi. Fari íslenska liöiö ekki á Ólympíuleikana þá veröa mótherjar þeirra í næstu B-keppni öll Austur-Evrópu-liðin og búast má viö erfiðum róöri þá og jafnvel myndi ísland falla niður í C-riðil. Þaö er því mikið í húfi fyrir íslenskan handknattleik aö taka þátt í leikunum í Los Angeles. — ÞR. Íþróttír á sex síóum í dag: 23, 24, 25, 26, 36 og 37 '1 Llð vlkunnai r 'ií 1 Þorvaldur Jónsson KA Sigurður Halldórsson Jónas Róbertsson ÍA Þór Benedikt Guðmundsson UBK ÓskarGunnarsson Þór Sveinbjörn Hákonarson ÍA Ómar Ingvarsson KR Guömundur Torfason Fram Jón Oddsson UBK Guðbjörn Tryggvason ÍA Guðmundur Þorbjörnsson Val

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.