Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 48
 tcr\4 r' *i 26 » '■rt.* * » i/ ».»■. cti i ( nrr» 4 niA * MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAl 1984 íslandsmótið í lyftingum: Haraldur náði bestum árangri HARALDUR Ólafsson náði besta árangrinum á íslandsmótinu í lyftíngum sem haldið var í íþróttahúsinu Digranesi í Kópa- vogi um helgina. Haraldur, sem keppir í 75 kg flokki, lyfti samtals 275 kg. Það er þó nokkuð frá besta árangri Haraldar. Engin met voru slegin á mótinu. islandsmeistari í léttasta flokknum, 67.5 kg flokki, varð Þorkell Þóris- son úr Ármanni. Hann lyfti samtals 202.5 kg. Haraldur varö vitanlega íslandsmeistari í sínum flokki og í 82.5 kg flokki sigraði Helgi Auð- unsson úr Ármanni. Hann lyfti samtals 212,5 kg. Baldur Borgþórsson, KR, sigr- aði í 90 kg flokknum — lyfti 290 kg samtals og Guðmundur Sigurðs- son, Ármanni, margfaldur ís- landsmeistari hér á árum áöur, keppti nú á ný og sigraöi í 100 kg. flokknum. Hann lyfti samtals 307,5 kg. í 110 kg flokki varð islands- meistari Óskar Kárason úr KR. Hann lyfti samtals 290 kg. Torfi Ólafsson úr KR varð meistari í 110 + flokki — bæði í unglinga- og karlaflokki, en íslandsmót unglinga fór nú fram á sama tíma og mót hinna fullorðnu. Torfi lyfti alls 190 kg- Hjá unglingunum sigraöi Hilmar Garöarsson í 75 kg flokki, Bárður B. Olsen í 82,5 kg flokki og Ágúst Már Ólafsson í 110 kg. flokki. Sigurjón Magnússon Sauðkraekingur i Morgunblaöiö/Kristján Einarsson. akir að Jóni E. Ragnarssyni í leiknum á sunnudag. Stórsigur FH-inga FH-INGAR unnu stórsigur á Tindastóli frá Sauöárkróki í fyrsta leik liðanna í 2. deild í knattspyrnu ( Hafnarfiröi um helgina, 6:1. Jón E. Ragnarsson skoraöi þrjú, Ingi Björn Al- bertsson tvö og Pálmi Jónsson eitt. Sigurfinnur Sigurjónsson skoraði mark Tindastóls. Fjórir leikir fóru fram í 2. deild- inni um helgina. Isfiröingar unnu Skallagrím 3:2 í Borgarnesi. Guömundur Magnússon geröi tvö marka ÍBi og Kristinn Krist- jánsson eitt. Gunnar Orrason og Garðar Jónsson gerðu mörk Skallagríms. í Eyjum geröu iBV og Víðir jafntefli, 2:2. Sigurjón Kristinsson gerði bæði mörk ÍBV en fyrir Víöi skoruöu Grétar Ein- arsson og Guömundur Knútsson. Svavar Geirfinnsson skoraði eina mark leiksins er Völsungur sigraöi Njarövík 1:0 á Húsavík. Leik KS og Einherja varð aö fresta vegna lélegra vallarskil- yrða á Siglufirði. — SH/HBj/hkj. Asgeir er dýrlingur í augum aðdáenda Stuttgart Fré Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttamanni Mbl. í Bremen. „ÞETTA verður erfiöur leik- ur, þeir ætla sér sigur og við líka, en við gerum okkur ánægöa meö jafntefli. Við munum ekkert gefa eftir,“ sagði Ásgeir viö mig rétt áður en leikur Stuttgart og Breman hófst á laugardag- Ánægður með strákana" - en erfitt að skora þegar ellefu andstæðingar eru innan vítateigs“ - sagði Magnus Jónatansson þjálfari Breiðabliks pp „ÞAD ER ERFITT að skora þegar ellefu andstæðingar eru inni í vitateig," sagöi Magnús Jóna- tansson, þjálfari Breiðabliks, eftir að liðiö hafði gert markalaust jafntefli við Þrótt í 1. deildinni í knattspyrnu á Laugardalsvelli á sunnudagskvöld. „Við komum í leikinn til að ná í þrjú stig en mér sýndist Þróttarar ætla að halda einu stigi. Breiðabliksliðið virkaði gott í kvöld og ég var ánægður með strákana," sagði Magnús. Leikur liðanna var ekki sérlega skemmtilegur. Leikmenn börðust af miklum krafti úti á vellinum en liðin sköpuðu sér ekki mörg hættuleg færi. Blikarnir fengu þau bestu, en framlínumenn Þróttara voru mjög daufir. Þeir virtust á köflum hræðast það aö fara inn í vítateiginn — vítateigurinn var eins og bannsvæði fyrir þá og er varla hægt aö segja aö Þróttur hafi fengiö færi allan leikinn. Blikarnir hefðu átt sigur skilið í leiknum.- Þeir sóttu mun meira og aöeins nokkrum sekúndum fyrir leikslok munaði minnstu aö Sigur- jón Kristjánsson tryggöi liöinu sig- ur. Hann fékk boltann rétt utan vítateigs, sneri sér snöggt viö og skaut föstu skoti sem stefndi efst í markhornið. En Guömundur mark- vörður Erlingsson í Þróttarmarkinu var ekki á þvi að láta skora hjá sér — hann sveif eins og köttur og sló boltann í horn. Þarna komust Blik- arnir næst því að skora — þeir fengu ekki afgerandi færi utan viö þetta. Jón Oddsson átti að vísu þrumuskot strax á fyrstu mínút- unni sem Guðmundur varöi en þrátt fyrir mikla pressu á stundum og aö varnarmenn Þróttar væru allt annað en sannfærandi ollu ÞrótturrUBK 0:0 Blikarnir Guðmundi markverði ekki oft vandræðum. Jón Oddsson hefur verið þekktur fyrir sín löngu innköst á undanförnum árum og hann sýndi að hann kann enn aö kasta langt — nokkrum sinnum skapaöist talsverð hætta viö Þrótt- armarkiö eftir hans löngu innköst. Þau lengstu eru eins og hættulegar hornspyrnur! Blikaliöiö veröur greinilega í toppbaráttunni í sumar ef svo fer sem horfir. í liðinu eru sterkir ein- staklingar — Friörik var öruggur í markinu, Loftur Ólafsson miðvörö- ur, sem kom úr Fylki, er einnig góöur og Jón Oddsson var ógnandi frammi. Allt eru þetta ný- liöar hjá UBK og falla vel inn í liðið. Þróttarar veröa heldur betur aö heröa sig ef þeir ætla aö standa sig í sumar. Framlínan var bitlaus eins og áður sagöi og vörnin var ekki örugg þó liðið léki með þrjá miðverði. „Þaö er ekki gaman að standa í þessu þegar svona illa gengur,“ sagði Páll Ólafsson, Þróttari, eftir leikinn. „Þetta var afskaplega lé- legt hjá okkur. En viö ætluöum að ná i þrjú stig í leiknum eins og viö munum gera í öllum leikjum sumarsins," sagði Páll. I stuttu mali: Laugardalsvöllur 1. deild Þróttur—Breiöablik 0:0 Dómari var Kjartan Olafsson. Hann notaói spiöldin ekkert og dæmdi vel. „Þetta er besta dómgæsla sem ég hef séó i vor,“ sagöi Magn- us Jonatansson. þjálfari UBK, eftir leikinn. Ahorfendur: 1.004. Einkunnagjöfin. ÞRÓTTUR: Guómundur Erl- ingsson 7, Nikulás Jónsson 6. Björn Björnsson (vm. á 80 min. lék of stutt), Kristján Jónsson 6, Jóhann Hreiöarsson 5, Ársæll Kristjánsson 6, Asgeir Eliasson 6, Þorvaldur Þorvaldsson 6, Pétur Arnþórsson 5, Daöi Haróarson (vm. á 67. min.) 4, Páll Ólafsson 5, Sverrir Pétursson 6 og Haukur Magnússon 6. BREIÐABLIK: Friörik Friöriksson 7, Benedikt Guömundsson 7, Ómar Rafnsson 6, Loftur Ólafsson 7, Ólafur Björnsson 6, Trausti Ómarsson 6, Þorsteinn Geirsson 7, Jóhann Grétarsson 6, Vignir Ðald- ursson (vm. á 70. mín.) 4. Jón Einarsson 5. Guömundur Baldursson (vm. á 77. mín. lék of stutt), Jón Oddsson 7 og Sigurjón Kristjáns- son 6. — SH. inn. Rétt var það hjá Ásgeir aö Stuttgart gaf aldrei eftir og í hörkuleik tókst þeim að sigra. Strax eftir leikinn þegar sigurinn var í höfn virtust leikmenn Stuttgart ekki al- veg átta sig, en þegar til- kynnt var að Hamborg hefði tapað, 0—2, fyrir Frankfurt braust sigurgleöin út. “Super, super,“ hrópaði Ásgeir og hljóp meö félögum sínum aö giröingunni þar sem áhangendur Stuttgart voru. Ásgeir fór úr skyrtu sinni númer 10 og veifaði henni til áhorfenda. Liðinu var gífurlega vel fagnað. Eftir leikinn ræddi ég við nokkra stuöningsmenn Stuttgart og fer það ekki á milli mála að Ásgeir er dýr- lingur í þeirra augum. — ÞR. • Þorbergur Aöalsteinsson Þorbergur meiddur ÞORBERGUR Aðalsteinsson, handknattleiksmaöur úr Vík- ingi, meiddist á landsliösæfingu á dögunum. Hann tognaði illa á ökkla. í fyrstu var taliö aö lið- bönd hefðu slitnaö en svo reyndist ekki. Þorbergur þjálf- aöi og lék meö Þór í Vest- mannaeyjum síðastliðinn vetur sem kunnugt er, en er nú fluttur á ný til Reykjavíkur og leikur með Víkingum næsta vetur. Hann ætti aö verða oröinn góö- ur af meiðslunum eftir hálfan mánuö og geta þá farið að æfa aftur. Morgunblaðiö/Kristján Einarsson. • Loftur Ólafsson, nýliöinn í Breiöabliksliöinu, átti góðan leik gegn Þrótti. Hér sést hann í baráttu ui knöttinn við Hauk Magnússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.