Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAl 1984 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Eru konur konum verstar? Vlagnþóra G. Magnúsdóttir skrif- ar: Kæri Velvakandi, þú sem veitir öllum áheyrn, Mig langar að senda þér nokkr- ar línur varðandi fræðslustjórann okkar hér í Reykjavík, Áslaugu Brynjólfsdóttur. Hvaða ráðabrugg er það sem þeir eru með núverandi borgarstjóri, formaður fræðslu- ráðs o.fl. gagnvart fræðslustjóran- um? Gæti ástæðan verið sú, að á þeim tíma sem embættið var veitt fékk Áslaug Brynjólfsdóttir 3 at- kvæði frá umsagnaraðilum um hæfni, Sigurjón Fjeldsted 4 at- kvæði, en hins vegar útilokuðu flokksbræður okkar Bessí Jó- hannsdóttur, sem var einn um- sækjenda, alveg. Hún fékk ekkert atkvæði! Ingvar Gíslason, þv. menntamálaráðherra, veitti As- laugu embættið og hafði til þess fullan rétt. Nú hefur mér verið sagt af þeim sem til þekkja, að Áslaug hafi rækt sitt starf með prýði. Getur það verið að borgar- stjórinn okkar og okkar flokks- menn í borgarstjórn þoli ekki að nokkur annar en flokksfélagi sitji í sæmilegri stöðu hér í Reykjavík? Ef svo er þá gæti yfirstjórn mála hér farið að minna á það stjórn- arfyrirkomulag sem sagt er að ríki í Sovétríkjunum. Ég hélt að borg- arstjórinn væri ekki aðeins borg- arstjóri okkar sjálfstæðisfólks, heldur allra borgaranna. Og ef ég man rétt þá fengum við ekki alveg 50% atkvæðamagn hér í Reykja- vík, svo að því miður eru þeir fleiri sem búa hér í borginni sem til- heyra öðrum flokkum. Það kann vel að vera að einhverjar breyt- ingar þurfi að gera á verkefna- skipun á fræðslustjóraskrifstof- unni, en ég held að sú starfsaðferð sem valin er af fræðsluráði í þessu máli sé vægast sagt vafasöm. Get- ur það verið að háttvirtur mennta- Áslaug Brynjólfsdóttir málaráðherra, Ragnhildur Helga- dóttir, ætli að dansa með og láta þessa aðför að fræðslustjóranum viðgangast, jafnvel þó svo að þess- ar aðgerðir gætu reynst ólöglegar? Og kannske er það rétt þegar allt kemur til alls, að konur séu konum verstar. Þessir hringdu . . . Ekki barlómur á þeim bænum Nöldrari hringdi og hafði eftir- farandi að segja: Nú þegar yfirvöld þjóðar vorr- ar kvarta sáran yfir peninga- leysi til heilbrigðis- og skóla- mála þótti mörgum furðuleg frétt í einu dagblaðanna, fyrir nokkru, um að ríkið ætlaði að kosta kennslu í andlitssnyrtingu með lögvernd í iðnskóla. Nám þetta á að taka þrjú ár og er það fullmikill tími í samanburði við að það þarf fjögur ár til að ljúka sveinsprófi í húsasmíði og sex ár í háskóla til að ljúka prófi í læknisfræði. í blaðinu stendur líka að það séu um 300 konur sem starfi að snyrtingu en hvað starfa margir karlmenn við þetta? Það munu aðallega vera kon- urnar sem sækja snyrtistofurn- ar en skyldi þurfa marga í viðbót til að sjá um þennan hóp. í sömu blaðagrein kemur einn- ig fram að lögverndun tíðkist ekki á Norðurlöndunum í þessari starfsgrein en þeir hjá iðn- fræðsluráði hafi fengið þessa hugmynd og sett nefnd strax í málið og menntamálaráðuneytið svari til með kostnað. Það er því ríkið sem á að standa undir kostnaði og er ekki að heyra að barlómur sé á þeim bænum. Þeir vona bara að reglugerð um málið nái fram að ganga með hraði. Hvað er á seyði, spyr fólk. Finnst þessum mönnum íslensk- ar konur svona miklu subbulegri í andlitinu en útlendar að það þurfi lögverndun á kostnað al- mennings til þess að kenna þessa grein. Kawasaki kr. 118.000 kr. 225.000 kr. 39.000 kr. 225.000 SVERRIR ÞÓRODDSSON Sími 91-82377 Garðhúsgögn í fjölbreyttu úrvali Góöir greiösluskilmálar Hagstætt verð Bláskógar Á.M/.IÍ fi o.mi QCOQO Armúli 8, sími 86080. VIÐGERÐAR OG VATNSÞÉTTINGAR- EFNI SEM GERA MEIRA EN AÐ DUGA. THORITE Framúrskarandi fljót- harðnandi viðgerðar- efni fyrir steypugalla. Þannig sparar það bæði tíma og fyrirhöfn. Thorite er til- valið til viðgerða á rennum ofl. ACRYL60 Íblöndunarefni í allar múr- blöndur eykur vatnsheldni. Eftir blöndun hefur efnið tvöfaldan þenslueiginleika, tvöfaldan þrýstieiginleika, þrefaldan sveigjanleika og áttfalda viðloðun miðað við venjulega steypu. WATERPLUG Sementsefni sem stöðvar rennandi vatn. Þenst út við höinun og rýrnar ekki. Þetta efni er talið alger bylt- ing. THOROGRiP Thorogrip er sementsefni, rýrnar ekki, fljótharðnandi. Þenst út við þornun og er ætlað til að festa ýmsa málmhluti í stein og stein- steypu. I j steinprýói B.B. BYGGINGAVÖRUR HE SUOURLANDSBRAUT 4 SlMI 33331 (H BEN HUSIÐ)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.