Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 44
Opið alla daga frá kl. 11.45-23.30. AUSTURSTRÆTI22, INNSTRÆTI, SlMI 11633. Opiö öll fimmtudags-, föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. AUSTURSTRÆTI22, INNSTRÆTI, SÍMI 11340 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Þing- lausnir í dag EFTIR nokkurt málþóf í neðri deild Alþingis í gærkveldi náðist samkomulag milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að þing- lausnir fari fram í dag. Neðri deild Alþingis sat enn á fundum þegar Mbl. fór í prentun en efri deild lauk störfum um kvöldmatarleytið og sátu þingmenn kvöldverðar- veislu deildarinnar í gærkvöldi. í gærkvöldi héldu áfram um- ræður í neðri deild um þau mál sem stefnt er að að afgreiða fyrir þinglausnir og var reiknað með að fundir gætu staðið fram á nótt. Stefnt er að því að deild- arfundir hefjist kl. 11 árdegis á ný og sameinað þing komi sam- an kl. 14.00. Þar verða greidd atkvæði um þau mál sem lokið var umræðu um fyrir helgi, en ljóst er að a.m.k. 12 tii 14 þings- ályktunartillögur koma ekki til atkvæða. Þá verður kosið í stjórn kísilmálmverksmiðju við Reyðarfjörð. Einnig verður kos- inn maður í fjárveitinganefnd í stað Lárusar Jónssonar og sam- kvæmt heimildum Mbl. verður Halldór Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norður- landskjördæmi eystra kjörinn í fjárveitinganefnd Alþingis á fundi sameinaðs Alþingis í dag. 11■ 'v A m 1 ft, & \\ M W.,M f v rj m' v / ySFr }/ 1 Meö Snarfara í Viðey Á MILLI 60 og 70 börn á aldrinum 11 til 12 ára fóru ásamt foreldrum sínum til Viðeyjar síðastliðinn sunnudag og sáu félagar í Snar- fara, félagi smábátaeigenda, um flutningana milli Reykjavíkur og Viðeyjar. Poreldrafélag nemenda í Laugarnesskóla stóð fyrir skemmti- og skoðunarferðinni til Viðeyjar á sunnudag. Lagt var af stað í morgunsárið, um kl. 10, frá smábátahöfninni við Ell- iðaárvog, sem sumir nefna Elliðanaust. Siglt var norður Karlsvík og að bryggju Snarfara við austurenda Viðeyjar. Atta bátar tóku að sér flutningana og fóru sumir þeirra tvær ferðir. Fólkið skoðaði sig um á eynni í ágætu veðri og um eftirmiðdag- inn var svo haldið heim á leið. Að sögn eins félaga Snarfara, sem blm. Mbl. hafði tal af, voru állir sæfararnir vel búnir og klæddir björgunarvestum sem Slysavarnafélag íslands lét þeim í té. Á meðfylgjandi mynd, sem ljósmyndari Morgunblaðsins tók við smábátahöfnina við Elliða- árvog, má sjá nokkra nemendur Laugamesskóla stíga um borð í einn bátinn. Verslunum lokað á laug- ardögum í sumar TÆPLEGA 450 manna fundur í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, sem haldinn var á Hótel Esju í gærkveldi, samþykkti einróma sam- komulag um að verslanir skuli lok- aðar á laugardögum frá 20. júní til 1. september. „Það var mikil stemmning á fundinum og kom mjög greinilega fram í ræðum manna að fólk er mjög óánægt með þennan langa vinnutíma sem er við lýði hjá verslunarmönnum og það var ein- hugur um að snúa þessari þróun við,“ sagði Magnús L. Sveinsson, formaður VR, í samtali við Morg- unblaðið í gærkveldi. Skærur hjá símvirkjum LIKUR eru á að stór hópur sím- virkja, sem nú kallast rafeindavirkj- ar, hjá.Pósti og síma mæti ekki til vinnu í dag, á morgun og á fimmtu- dag. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hefur hópur símvirkja síðustu daga hvatt félaga sína til að tilkynna fjarvistir þessa þrjá daga til að leggja áherzlu á kaup- og réttindakröfur. Óljóst er hver áhrif af þessum skærum veröa, það fer eftir fjölda símvirkja, sem mæta ekki, og tíðni bilana m.a. Álverð lækkar á frjálsum markaði ÁLVERÐ á hinum frjálsa markaði eða samkvæmt svonefndum London Metal Exchange Barometer hefur farið lækkandi að undanförnu og er nú lægra en það hefur verið í um það bil ár. Þegar verðið var hæst var það talsvert yfir 1100 pundum tonnið, en hefur nú lækkað um nálega 10% miðað við þegar það var hæst. Þessi verðlækkun kemur ekki til með að hafa áhrif á afkomu Ál- versins í Straumsvík nema um viðvarandi lækkun sé að ræða, þar sem framleiðsla álversins er ekki seld á þessum frjálsa markaði, enda einungis lítill hluti álfram- leiðslunnar í heiminum seldur á honum, heldur samkvæmt föstum samningum. Breytingar á álverði til hækkunar eða iækkunar koma því ekki strax fram og þetta fyrir- komulag seljendum í hag sé um lækkun að ræða, en kaupendum sé um hækkun á álverði að ræða. Það er ekki óþekkt fyrirbrigði að álverð lækki á þessum árstíma Efnahagsbandalagið ráðgerir að senda skip til loðnuveiða á hafsvæð- inu norður af fslandi í sumar. Að sögn Ólafs Egilssonar, sendi- herra og formanns íslenzku sendi- nefndarinnar í viðræðum við EBE og Norðmenn í Bergen fyrir skömmu, gerir EBE tilkall til veiði- að sögn kunnugra og hefur þeirri skýringu verið varpað fram að kaupendur haldi að sér höndum við kaupin á vorin vegna sumar- fría sem framundan eru. réttinda á umdeilda hafsvæðinu milli Jan Mayen og Grænlands, en um það er ágreiningur milli þeirra og Norðmanna. Norðmenn telja, að miðlína eigi að gilda milli Jan May- en og Grænlands, en Danir, fyrir hönd Grænlendinga, telja að Grænland eigi rétt á 200 mílna lögsögu á þessu svæði. Ólafur sagði, að í kröfum EBE fælist 105.000 lesta veiði, eða sama magn og Norðmenn fá, þar með taldar bætur vegna þess, að engin skip frá EBE stunduðu þessar veið- ar síðastliðið sumar. Yrði af því, kæmu aðeins 90.000 lestir í okkar hlut miðað við núverandi tillögur fiskifræðinga um 300.000 lesta heildarafla, sem allir sæju að væri allt of lítið. Ólafur sagði, að margir teldu að þessar veiðar yrðu skipum EBE óhagkvæmar og nánast útilokað að stunda þær án einhverra styrkja. Gerðardómur skipaður í flugmannadeilunni HÆSTIRÉTTUR ákvað í gær leiða fyrir 15. júní nk. Guðmund- hverjir skuli skipa gerðardóm ur Skaftason hæstaréttarlög- þann, sem samkvæmt lögum maður er formaður gerðardóms- þeim sem sett voru í sl. viku til ins, en aðrir gerðardómsmenn þess að koma í veg fyrir verkfail eru þeir Bárður Daníelsson arkí- fiugmanna skal úrskurða um tekt og Þórður Einarsson pró- kaup og kjör flugmanna Flug- fessor. EBE ráðger- ir loðnuveiðar Ásgeir og félagar í beinni út- sendingu ALLT bendir til að knattspyrnu- leikur Stuttgart og Hamburger SV í v-þýzku Bundesligunni verði sýndur beint í sjónvarpinu á laug- ardag. Leikurinn er úrslitaleikur um v-þýzka meistaratitilinn og á Ásgeir Sigurvinsson góða mögu- leika á að vinna titilinn með fé- lögum sínum í Stuttgart. „Sjónvarpið hefur fengið heimild frá V-Þýzkalandi um að leikurinn verði sýndur beint hér á landi og hefur pantað línu um gervihnött. Svar fæst væntan- lega í dag,“ sagði Bjarni Felix- son, íþróttafréttamaður sjón- varps, í samtali við Mbl. „Þetta er búið að vera mikið þref, svo vægt sé til orða tekið,“ sagði Bjarni Felixson og bætti við: „Ástæðan f^rir því að lína um gervihnött var ekki pöntuð í siðustu viku er sú, að kollegar mínir í V-Þýzkalandi töldu það allt of mikla bjartsýni að ætla að leikurinn yrði sýndur beint hér á landi. En sem betur fer hefur það nú fengizt í gegn." Bjarni sagði að upptöku- og réttindakostnaður við sýningu leiksins væri 40 þúsund íslenzk- ar krónur, en við bættist leiga á sjónvarpslínunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.