Morgunblaðið - 24.05.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1984
27
Myndaframköllun
á 2 klukkustundum
Á undanfornum misserum hefur færst mikil samkeppni í framköllun
Ijósmynda hér á landi. Þetta er bæði eðlileg og sjálfsögð þróun, enda
hefur tækni við framköllun litmynda fleygt mjög fram hin síðari ár,
segir í fréttatilkynningu frá Ljósmyndaþjónustunni hf.
Þar segir ennfremur:
„Erlendis hefur svokölluð
hraðþjónusta náð nokkrum vin-
sældum. Hún hefur farið fram
eftir ýmsum leiðum. Að vísu hef-
ur sú þjónusta stundum komið
niður á gæðum myndanna, en
viðskiptavinir kjósa oft hraðann
fremur en gæðin.
Nú hefur Ljósmyndaþjónust-
an í samvinnu við Litsýn ákveðið
að veita svonefnda „tveggja tíma
þjónustu". Hún er fólgin í því, að
viðskiptavinurinn fær myndirn-
ar tilbúnar í hendur tveimur
tímum eftir að hann kemur með
filmurnar.
Tækjakostur framköllunarfyr-
irtækisins Litsýn er einhver sá
fullkomnasti og hraðvirkasti
sem til er í heiminum í dag. Þar
eru ávallt mjög hæfir starfs-
menn, m.a. tveir ljósmyndarar
sem stöðugt fylgjast með gæð-
um. Mun þetta vera í fyrsta
skipti sem framköllunarfyrir-
tæki af þessari stærð býður upp
á tveggja tíma afgreiðslu en áð-
ur hafa einungis svokölluð „Mini
Labs“ séð um svo fljóta þjón-
ustu.
Miðstöð þessarar þjónustu
verður í nýja húsinu við Lækj-
artorg. Þangað verða filmurnar
sóttar reglulega og myndunum
skilað aftur tilbúnum eftir tvær
klukkustundir.
Margir gætu ályktað sem svo,
að þessi þjónusta yrði dýrari en
sú, sem nú er veitt. Það er ekki,
heldur mun verðið lækka.
Ljósmyndaþjónustan vill
bjóða þessa þjónustu, jafnhliða
fyrri þjónustu, sem þegar nýtur
mikilla vinsælda vegna gæða,
valkosta milli stærða mynda og
áferðar. Nýja þjónustan hófst
þriðjudaginn 22. maí. Hún mun
nefnast „Filmuþjónusta með
feiknarhraða“.“
Rallökumenn spretta úr spori
Kallökumenn munu um áttaleytið
í kvöld keppa í svokölluðu „sprett-
ralli“ á tveim leiðum, stuttum sér-
leiðum, við Keflavíkurveginn, sunn-
an Straumsvíkur við Hvassahraun.
Verða þessar leiðir eknar fram
og til baka, en einstakir keppend-
ur geta skipst á að aka sömu
keppnisbílum, ef svo ber undir. Er
„sprett-rallið" viðleitni Bifreiða-
íþróttaklúbbs Reykjavíkur í þá átt
að halda rallökumönnum í æfingu
ásamt því að kynna áhuga-
mönnum rallakstur í einföidu
formi. Hefur verið rætt um að
bjóða þeim sem áhuga hafa að si-
tja í með keppendum, en aðeins
einn keppandi er í hverjum bíl. Er
þar með komið kjörið tækifæri
fyrir þá að kynnast þessum mál-
um betur án tilkostnaðar. Ætlun-
in er að halda „sprett-rallkeppni"
með jöfnu millibili á fimmtudags-
kvöldum í sumar.
Leiðrétting
í frétt um Sparisjóð Kópavogs í
gær, var sagt að Jósafat J. Líndal
hefði verið sparisjóðsstjóri frá
upphafi. Það er ekki rétt, Hrólfur
Ásvaldsson var sparisjóðsstjóri
fyrstu starfsár Sparisjóðs Kópa-
vogs.
Elín Bruusgaard gestur
Friðarhreyfingar kvenna
ELÍN Bruusgaard frá Noregi er
væntanleg til íslands í boði Frið-
arhreyfingar islenskra kvenna og
Norræna hússins og flytur erindi á
aðalfundi hreyflngarinnar í Nor-
ræna húsinu á aðalfundi samtak-
anna á laugardag.
Elín Bruusgaard er þekkt kona
í sínu heimalandi og víðar fyrir
störf sín í kvennahreyfingum, að
þróunarhjálp og sem fulltrúi í
norsku sendinefndinni á allsherj-
arþingi SÞ.' Hún hefur verið
formaður Húsmæðrasamtakanna
í Noregi og Alþjóðasambandi
húsmæðra. Bók sem hún skrifaði
um reynslu sína á þessum vett-
vangi kom í vetur út í íslenskri
þýðingu Sigríðar Thorlacius und-
ir nafninu Augliti til auglitis.
Segir þar á bókarkápu að þetta sé
fyrst og fremst bók um það þegar
konur hittast. Og íslenskar konur
mun hún einmitt hitta á aðal-
fundinum á laugardaginn.
Friðarsamtök kvanna hafa
starfað í eitt ár og er þetta fyrsti
aðalfundurinn. Verða þar almenn
aðalfundarstörf, rætt um skipu-
lag og framtíðarverkefni í
starfshópum. En fundurinn er
opinn öllum konum sem áhuga
hafa á friðarmálum.
Elín Bruusgaard
Fariö veröur í helztu undirstööuatriöi
knattspyrnunnar, en einnig veröur boöiö
upp á knattspyrnumyndir af myndbönd-
um og ýmislegt fleira.
Allir krakkar á aldrinum 6 til 12
ára eru velkomnir. Þátttöku-
gjald er kr. 500 ffyrir hvert nám-
skeið.
Leiðbeinendur verða lan Ross,
ffyrrum leikmaður Liverpool,
Aston Villa o.ffl., og Jóhann
Þorvarðarson, kennari og leik-
maður 1. deildarliðs Vals.
Innritun á fyrstu námskeiöin veröur nú á
fimmtudag og föstudag í síma 687704
milli kl. 11 og 13.30, og í íþróttahúsi Vals,
s. 11134, kl. 17—18.
Knattspyrnufélagiö Valur veröur í sumar meö
knattspyrnuskóla á félagssvæöi sínu aö Hlíö-
arenda. Skólinn verður í formi tveggja vikna
námskeiða og hefst þaö fyrsta mánudag 28.
maí nk. og síðan 12. júní, 25. júní, 9. júlí, 23.
júlí, 7. ágúst, 20. ágúst.
Heimilisverslunin Habitat gengst
ffyrir ffjórum tveggja kvölda nám-
skeiðum í austurlenskri matar-
gerð nú í byrjun júní.
.-■Kv
Kennd verður einföld matargerð í hin-
um kínversku Wok pottum, sem farið
hafa eins og eldur í sinu um landiö.
Kennari verður thailensk kona, Kesara
Jónsson, sem búsett er hér á landi og
rómuð er fyrir snilld sína í matargerð.
Verð fyrir tveggja kvölda nám-
skeið er kr. 950.-
Námskeiöin fara fram dagana:
4. og 5. júni, 6. og 7. júní, 11. og 12. júní
og 13. og 14. júní.
habitat
Laugavegi 13, 8. 25808.