Morgunblaðið - 24.05.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAl 1984
33
Krafa neytcnda: Afnám einokunar og ætar kartöflur.
FÆÐA
OG________
HEILBRIGÐI
rekstri og flækjast fyrir einka-
framtakinu.
Hlutverk ríkisvaldsins er fyrst
og fremst að marka langtíma-
stefnu og standa fyrir rannsókn-
um sem enginn einkaaðili getur
staðið undir, rannsóknum sem
eru undirstaða atvinnulífsins.
En þótt rfkisvaldiö hafi þvælst
fyrir einkaframtakinu á nánast
öllum sviðum hefur það engan
veginn sinnt því eina hlutverki
sem því ber með réttu að rækja.
Það er nefnilega ekki nógu ffnt
fyrir stjórnmálamenn að tala
um matvæli eða ull svo nærtæk
dæmi séu nefnd. Það skal vera
eitthvað meira spennandi, helst
með latneskum nöfnum.
Því miður er það svo að þorri
fslenskra stjórnmálamanna hef-
ur ekki ennþá áttað sig á því í
hvaða landi þeir búa, enda þótt
sérstaða landsins æpi á þá á öll-
um sviðum.
Sérstaða kallar á rannsóknir.
En því miður er fátt verið að
gera á rannsóknasviðinu um
þessar mundir sem mun koma
þjóðinni að haldi þegar lffsbar-
áttan hefst fyrir alvöru.
Flestar þær rannsóknir sem
munu skipta sköpum fyrir fram-
tiðina liggja í skrifborðsskúffum
og skjalabunkum ráðuneyta,
opinberra sjóða eða rannsókna-
stofnana. Og þannig mun það
verða þar til þjóðin tekur í
taumana.
Svarthol:
Síðustu sýningar
Geimskemmtistöðin Svarthol
verður starfrækt í Tjarnarbæ við
Tjarnargötu f síðasta sinn núna um
helgina. Meðal þeirra sem koma
fram á skemmtuninni er hljómsveit-
in Oxsmá. „Ferðir“ verða í kvöld,
föstudagskvöld og á sunnudagskvöld
og hefjast þær stundvíslega kl. 21.00,
en mæting f anddyri er kl. 20.00.
(Úr fréttatilkynningu.)
Illjómsveitin Oxraá er á meðal þeirra sem koma fram í Svartholi.
Námskeið í meðferð og
matreiöslu í örbylgjuofnum
í kvöld kl. 20 og nk. mánudags-
kvöld 28. maí kl. 20 í versluninni aö
Hverfisgötu 103.
Stjórnandi námskeiðsins er Ólöf
Guðnadóttir hússtjórnarkennari.
Þátttaka tilkynnist í síma 17244.
HLJOMBÆR
HLJOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI
HVERFISGÖTU 103
SÍMI 25999
17244
Félagar f Nirði ásamt forráðamönnum spftalans.
Háls-, nef- og eyrnadeild Borgarspítalans:
Stórgjöf frá Lions-
félögum í Nirði
Lionsklúbburinn Njörður
færði Háls-, nef- og eyrna-
deild Borgarspítalans nú ný-
verið stórgjöf. Er hér um að
ræða í fyrsta lagi svokallaðan
typanometer til mælinga á
þrýstingi í miðeyra og kok-
hlust, sjálfvirkt, afkasta-
mikið tæki, sem veitir upplýs-
ingar, m.a. um hinar ýmsu
tegundir eyrnabólga, bæði.
hjá börnum og fullorðnum.
Hin gjöfin er tölvutækjasam-
stæða sem samanstendur af sér-
stakri tölvu og skrifara ásamt
teiknara sem ásamt sérstökum
tengiútbúnaði tengist rannsókna-
tækjasamstæðu þeirri sem notuð
er við jafnvægisrannsóknir á
göngudeild Háls-, nef- og eyrna-
deildar Borgarspítalans, þannig
að öll úrvinnsla verður nákvæm-
ari og tekur styttri tíma en ella.
Þessar gjafir bætast við þær
fjölmörgu gjafir sem Lionsklúbb-
urinn Njörður hefur gefið sömu
deild undanfarin ár og hefur
stuðlað að því að búa deildina
tækjum til ýmissa rannsókna
sérgreinarinnar og þar með lagt
sitt lóð á vogarskálina til að gera
deildina jafn vel búna tækjum og
raun er.
Kunna forráðamenn sjúkra-
hússins Lionsfélögum bestu
þakkir fyrir gjafirnar.
(FrélUtilkynning)
fHatgttttftlhiMft
Áskriftarsínwm er 83033
Aquaseal
ÞaKpappiim.
-sé hugsaðtíl f ramtíðarinnar
Þegar hús er byggt, eöa þegar þak
húss er lekt, verður að hugsa málið
vel. Vanda vinnubrögðin og velja
rétt þakefni. Hvað þakpappa
varðar er valið einfalt:
Aquaseal þakpappinn ervandaður
tjöruríkur og sandborinn.
Þakpappinn er til í eftirtöldum
gerðum:
1 B 28 kg. 20x 1 m. undirpappi
f. bárujárn
1 B 36 kg. 20x 1 m. undirpappi f. asfalt
1 E 36 kg. 10x 1 m. yfirpappi f. asfalt
Einnig asfalt í 45 kg. pakkningum
og sterkir loftventlar úrtrefjaefni.
OLÍUVERSLUN ÍSLANDS HF.
HAFNARSTRÆTI 5-REYKJAVÍK
SÍMI SÖLUDEILD 24220 (RÁÐGJÖF)
SÍMI BIRGÐASTÖÐ 33533 (PANTANIR)