Morgunblaðið - 24.05.1984, Blaðsíða 37
Minning.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1984
37
Ingibjörg Gísla-
dóttir kaupmaöur
Nú þegar Bagga frænka er dáin
er jafnframt ákveðinn kafli í sögu
fjölskyldunnar á enda. Við hitt-
umst ekki lengur á Ránargötunni
17. júní og á öðrum hátíðisdögum
og við syngjum ekki saman lengur.
Og í ennþá blárri minningu eru
heimsóknir í búðina hennar Böggu
á Vesturgötunni.
Það er ekki hægt að rifja upp
heimsóknir á Ránargötuna, án
þess a minnast líka hennar Ebbu
frænku. Ef einhver sagði Bagga,
þá hugsaði hann llka Ebba og
öfugt. Verkaskipting þeirra var
hrein og klár, þegar var von á
gestum, rétt eins og hvunndags.
Bagga sá um að flóa súkkulaðið og
baka kökur. Hún gekk á eftir því
með hægð, en festu og þunga, að
enginn siægi slöku við veitingarn-
ar, samkvæmt gömlum og góðum
sið. Ebba lagöi til flatkökur og
auðvitað voru þær engum öðrum
flatkökum líkar. Hún flögraði um
meðan súkkulaðidrykkjan stóð
sem hæst, þær drukku ekki með
frekar en siður var fyrrum, og svo
var komið að henni að setjast við
píanóið. Hún hvatti gesti við söng-
inn, en Bagga hlustaði á. Og þegar
menn efldust og kættust við söng,
veitingar og félagsskap og urðu
háværari en ella, þá hélt Bagga
sinni venjulegu ró. Hennar kæti
kom ekki fram í hlátrasköllum og
háværu tali, aðeins í hæversku,
næstum feimnislegu brosi, sem
sýndi að hún kunni að meta þegar
gestir hennar skemmtu sér.
í litlu búðinni á Vesturgötunni
var allt í föstum skorðum. Hver
vörutegund á sínum stað og kaffi á
könnunni i litlu skonsunni á bak
við. Þar virtust vera haldin mörg
kaffigilli á dág, yfirleitt sat þar
einhver og gerði sér að góðu. Ebba
bauð upp á súkkulaðirúðu með.
Vinir, kunningjar, frændfólk og
nágrannar komu ekki aðeins til að
ná sér í nauðsynjar, heldur ekki
síður til að hittast og spjalla.
Þarna var bæði búð og samkomu-
staður. Bagga stýrði búðarrekstri
og meðfylgjandi samkvæmislífi
hávaðalaust með styrkri hendi.
Hún þurfti ekki að byrsta sig ef
henni mislíkaði. Fast og óhvikult
augnaráð hennar, lágvær röddin
með þungum undirtóni, meira
þurfti ekki til.
Fas hennar bar ekki aðeins vott
um festu og einurð, heldur einnig
viljastyrk sem jaðraði við hörku.
Hann hélt henni uppistandandi
seinustu árin í búðinni, þegar
heilsan var farin að bila fyrir al-
vöru. Og viljastyrkurinn hélt
henni einnig uppi nú í vetur, þegar
hún varð fyrir hverju áfallinu á
fætur öðru. Það var að minnsta
kosti erfitt að finna læknisfræði-
lega skýringu á úthaldi hennar og
styrk. Og svo hafði hlýleg, og
reyndar alveg fágæt umhyggja
starfsfólksins á deild B6 á Borg-
arspítalanum sitt að segja.
Allir sem þekktu Böggu vel
vissu líka að hún sótti styrk og
kjark í trú sína. Sunnudagsm-
orgnar í Dómkirkjunni tilheyrðu
lífsstarfi hennar, rétt eins og
virku dagarnir í búðinni, meðan
heilsan leyfði. Hún hafði ekki hátt
um trúmálin, talaði aðeins um þau
við þá sem deildu trú hennar. Þá
brosti hún lítillega og augun ljóm-
uðu eins og gerist hjá þeim sem
eru handan alls vafa og allrar efa-
hyggju. Hún taldi kjark I hrygga
og þjáða með guðsorði, ef henni
fannst þeir móttækilegir, rétt eins
Minning:
Oddrún Fríða
Guðmundsdóttir
Fædd 2. september 1931
Dáin 8. maí 1984
Það er árla morguns þann 8.
maí að síminn hringir. I símanum
er vinur okkur og lætur okkur vita
að eiginkona hans hafi látist
kvöldið áður. Svona er lífið, að
heilsast og kveðjast, en einhvern
veginn er dauðinn það sem maður
á ekki von á þegar fólk á besta
aldri er annars vegar. Hún hét
Oddrún Fríða en á milli vina og
vandamanna var ætíð notað nafn-
ið Dadda.
Við kynntumst fyrir rúmum
þrjátíu árum er við unnum báðar
hjá Mjólkursamsölunni í búð sem
þeir starfræktu á Barónsstíg. Hún
reyndist mér á þessum árum sem
móðir að mörgu leyti þó ekki væru
mörg árin sem skildu okkur að.
Hún hafði til að bera ríka til-
hneigingu til hjálpsemi við þá sem
hún tók tryggð við, en það var með
hana sem svo marga aðra, að hún
var ekki allra og átti ekki auðvelt
með að tjá sínar tilfinningar og
líðan við aðra. Hún og maður
hennar bjuggu í sambýli við móð-
ur hennar, Karitas, meðan hún
lifði og var aðdáunarvert hvað þar
ríkti ætíð gott samkomulag. Hún
kynntist á sínum yngri árum erf-
iðleikum og fátækt sem víða ríkti,
á þeim árum sem hún var að alast
upp og hún af þeim sökum lagði
sig fram um nýtni og eistaklega
handlagin var hún við allan
saumaskap og tók oft og iðulega
að sér að hjálpa öðrum í þeim sök-
um. Sundkona var hún góð á sín-
um yngri árum og hefði eflast náð
langt á þeim vettvangi, en þar
háði henni sá sjúkdómur sem hún
átti við að stríða frá unga aldri og
hún þjáðist mikið af seinni árin og
varð henni að aldurtila.
Þessa síðustu daga hafa runnið í
gegnum huga minn minningar frá
fyrstu búskaparárum Döddu og
Grétars og okkar hjónanna, allar
ánægjustundirnar sem við áttum
saman og deildum saman bæði
sorg og gleði. Þau hjón eignuðust
þrjú mannvænleg börn og vissi ég
að hún gladdist innilega að sjá hve
vel þau uxu úr grasi svo og barna-
börnin sem voru hennar yndi. Ég
vil ljúka þessum fátæklegum orð-
um mínum með þökk til hennar þó
seint sé fyrir allt sem hún var mér
og mínum og votta öllum ástvin-
um hennar innilega samúð okkar
hjóna. Megi minningarnar um
hennar góðu kosti lifa í hugum
ykkar um ókomna framtíð.
og hún hjálpaði bágstöddum á
áþreifanlegan hátt frá búðarborð-
inu. Það var ekki gengið fast eftir
því að nóturnar úr bláa reikn-
ingsheftinu væru greiddar, ef
hana grunaði að lítið væri til af
handbæru fé. En um þetta höfðum
við fjölskyldan aðeins óljósan
grun eftir orðum annarra. Hún
sjálf ræddi aldrei þessi mál. Hann
sem átti hug hennar og hjarta var
alsjáandi og alvitur, dauðlegum
mönnum kom þetta ekki við.
Við fjölskyldan höfum gert
okkur ljóst nú í vetur að hverju
stefndi með Böggu. Stundum er
dauðinn farsæl endalok. Söknuð-
urinn mildast þegar við gleðjum
okkur við ljúfar minningar og
margar slíkar eru bundnar henni
Böggu frænku.
Sigrún og Ólafur.
+ Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Þórufelli 4,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. maí kl.
15.00.
Siguröur Hauksson, Ása Kristjánsdóttir,
Sigrún Hauksdóttir, Steinþór Júlíusson,
María Hauksdóttir, Leifur fsaksson,
Guörún Hauksdóttir, Sigurbergur Sigsteinsson,
Ásrún Hauksdóttir, Einar Hafsteinsson
og barnabörn.
t
Jaröarför móöur okkar,
BRYNJÓLFÍNU JENSEN
frá Isafirói,
fer fram frá ísafjaröarkirkju föstudaginn 25. maí kl. 14.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Magnús Árnason,
Karl Árnason,
Hjalti Hjaltason,
Árni Guömundsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
FERDINANDS H. JÓHANNSSONAR,
Nóatúni 26.
Bára Lýösdóttir,
Ægir Ferdinandsson, Guörún Marinósdóttir,
Hallvaröur Ferdinandsson, Sesselja Jónsdóttir,
Kristín Ferdinandsdóttir, Oddur Jónsson,
Hafþór Ferdinandsson, Hrafnhildur Þorgeirsdóttir
og barnabörn.
HVITASUNNUHELGI
l HOLLANDl
8.-12. fúní
Af sérstökum ástæðum getum við nú í fyrsta sinn boðið stórkostlega
helgarferð, 8.-12. júní í hin eftirsóttu Sæluhús í Eemhof í Hollandi. (Fimm
dagar og aðeins tveir vinnudagar!)
Glæsileg gisting, og leik- og íþróttaaðstaða fyrir alla fjölskylduna sem á
fáa sína líka. Islensk fararstjórn.
verð aðeins kr. 7.960.
Miðað við 7 í húsi. Barnaafsláttur kr. 3
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR -27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727
sk