Morgunblaðið - 18.07.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.07.1984, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 162. tbl. 71. árg. MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Franska stjórn- in sagði Pftrís, 17. júlf. AP. PIERRE Mauroy, forsætisráðherra Frakklands, baðst í gær lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt Francois Mitterand samþykkti lausnarbeiðn- ina og útnefndi um hæl Laurent Fabius iðnaðarráðherra sem forsæt- isráðherra og fól honum að mynda nýja ríkisstjórn. Tíðindin voru lesin fremur óvænt í franska sjónvarpinu í af sér gærkvöldi, hins vegar hafa verið vangaveltur í nokkra mánuði um hvort Mauroy myndi segja af sér eða ekki, sérstaklega fékk orðróm- urinn byr undir báða vængi er sósíalistar og kommúnistar guldu talsvert afhroð í kosningunum til Evrópuþingsins 17. júní síðastlið- inn. Sovétríkin: Hörð viðurlög við mútuþægni Moskvu, 17. júlí. AP. SOVÉSK dagblöð greindu frá því í dag að Yury Sokolov, verslunarstjóri vinsælustu matvöruverslunar Moskvuborgar, „Gastronom 1“ við Gorkystræti, hefði verið tekinn af lífi eftir að hafa verið sekur fundinn um spillingu. Að sögn blaðanna leiddi rann- sókn í ljós að Sokolov hefði mútað fólki og þegið mútur sjálfur í verulega stórum stíl í mörg ár, slik hafi sök hans verið að ekkert annað en dauðadómur kom til greina. Var Sokolov leiddur fyrir aftökusveit og skotinn. Fjórir ónafngreindir menn aðrir voru dæmdir til fangelsisvistar vegna „spillingar í minna mæli“, en mál þeirra tengdist máli Sokolovs. Aðgerðir þessar hafa verið sett- ar í samband við baráttuna gegn spillingu sem Yuri Andropov hleypti af stokkunum í valdatíð sinni og þær endurspegli vissa togstreitu meðal valdamanna í Kreml. „Gastronom 1“ nýtur sem fyrr segir mikilla vinsælda meðal Moskvubúa vegna hins mikla vöruúrvals sem þar er. Auk þess eru húsakynnin svo glæsileg, að ferðamenn gera sér far um að líta þar inn. Grófu göng undir landamæragirðingu MUncben, 17. júlí. AP. TVEIR austur-þýskir bræður flýðu frá Austur-Þýskalandi til Vestur- Þýskalands í nótt með ævintýra- legum hætti. Grófu þeir göng undir víggirðingu þar sem austur-þýski herinn hefur komið fyrir mörgum hríðskotabyssum sem skjóta sjálf- krafa ef komið er í námunda við þær. Nöfn flóttamannanna voru ekki gefin upp, en þeir voru sagðir 28 og 19 ára gamlir, rafvirki og lása- smiður. Atburðurinn átti sér stað á landamærunum í Bæjaralandi og sagði talsmaður lögreglunnar þar, að piltarnir hefðu grafið sem óðir væru alla nóttina, enda allar líkur á því að austur-þýskir landa- mæraverðir hefðu komist á snoðir um fyrirætlanir þeirra hefðu þeir þurft fleiri nætur til að ljúka göngunum. Aðeins einu sinni áður hafa flóttamenn gripið til þess ráðs aö grafa sér leið undir viggirðinguna í Bæjaralandi, en það gerði maður einn með berum höndum fyrir tveimur árum. Er upp komst um flóttaleið hans, hófu stjórnvöld í Austur-Þýskalandi að koma fyrir 50 sentimetra breiðum steypu- kubbum undir girðinguna. Á stuttum kafla er verkefninu eigi lokið enn sem komið er og þar grófu bræðurnir göng sín með einni skóflu. Símamynd AP. Walter Mondale kemur til þingsins ásamt varaforsetaefni sínu, Geraldine Ferraro. Undir handlegg Mondales má sjá Joan Mondale gægjast út úr flugvélinni. Símamynd AP. Röð vörubifreiða bíður í belgísku hafnarborginni Zeebruges eftir því að komast um borð í ferjur og sigla til breskra hafna til affermingar. Verkföllin í Bretlandi: „Stöndum í sömu sporum og fyrir viku“ Hæstiréttur ógilti verkalýösbann stjórnarinnar Lundúnum. 17. júlí. AP. VERKFALL hafnarverkamanna í Bretlandi var í dag á áttunda degi og sá ekki fyrir endann á því þrátt fyrir viðræður deiluaðila. Talsvert er farið að bera á skorti á innfluttum ávöxtum og grænmeti. Hæsta- réttardómstóll í Lundúnum úrskurðaði í dag, að bann Thathcher- stjórnarinnar við því að starfsfólk leyniþjónustunnar væri í stéttar- félögum, væri ólöglegt og stæðist ekki. Er það mikið áfali fyrir Margreti Thatcher mitt í verkalýðserfiðleikunum sem nú steðja að. „Þetta verkfall mun leika al- þýðu manna afar grátt og auka atvinnuleysi í landinu fremur en hitt,“ sagði Margret Thatcher við þingheim í dag, en gaf að öðru leyti ekki í skyn hvað ríkis- stjórnin myndi gera næst. Þetta var strembnasti dagur frú Thatchers á þingi frá því hún settist í forsætisráðherrastólinn fyrir 5 árum. Var mikið deilt um verkfallsmálin og hitnaði mörg- um svo í hamsi að um tíma leit út fyrir upplausn. Einn þing- maður stjórnarandstöðunnar var rekinn út eftir að hafa verið dónalegur við frú Thatcher. John Connolly, einn af verka- lýðsleiðtogunum, sagði um stöðu mála: „Við stöndum í sömu spor- um og síðasta þriðjudag, ekkert hefur þokast til samkomulags." Drjúgum var rætt um úrskurð dómstólsins varðandi leyniþjón- ustuna og verkalýðsfélögin og stjórnarandstöðuliðar hvöttu frú Thatcher hástöfum til að viðurkenna einu sinni að hafa haft rangt fyrir sér. Það gerði ráðherrann ekki, en sagði á hinn bóginn að úrskurðinum yrði áfrýjað og myndu stjórnvöld fara í einu og öllu eftir úrskurði áfrýjunardómstóls. Yfirdómari áfrýjunardómstólsins lofaði úr- skurði innan fjögurra vikna. Það horfir illa í Bretlandi nú, mikill hluti námuverkamanna er enn í verkfalli og hefur svo verið í 4 mánuði. Kennarar hafa verið í skyndiverkföllum og ætla sér ekki að láta af því í bráð og þess má einnig geta, að þúsundir starfsmanna sjúkrahúsa í Bret- landi hafa verið hvattir til að leggja niður vinnu í eina klukkustund á morgun til að sýna samstöðu með ræstinga- fólki stofnana. Flokksþing demókrata: • • Oldurnar að San Franciscó, 17. júlf. AP. TALIÐ er að öldurnar kunni að vera að lægja á flokksþingi demó- krata í San Franciscó eftir fund keppinautanna þriggja að útnefn- ingu flokksins sem forsetaefni. Fundurinn var haldinn að frumkvæði Walters Mondale og að fundi loknum sögðu Mondale, Gary Hart og Jesse Jackson, að þótt þá greindi enn á í ýmsum veigamiklum atriðum, væru þeir nú meira sammála en nokkru sinni fyrr, ekki síst hvað varðaði utanríkisstefnu flokksins, en þeir þremenningarnir hafa deilt hvað mest um þetta mál í kosn- ingabaráttunni. Jesse Jackson sagði að bæði hann og Hart myndu keppa að lægja? útnefningunni fram á síðustu stundu, en satt væri þó að æ meiri þörf væri á samstöðu flokksins. Gary Hart tók í sama streng, en gat þess þó að ef hann yrði valinn frambjóðandi flokksins, myndi hann kjósa Geraldine Ferraro sem varafor- setaefni sitt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.