Morgunblaðið - 22.07.1984, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
166. tbl. 71. árg.____________________________________SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ný prentvél
Þessi mjnd sýnir nýja prentvél, sem MorgunblaAið hefur tekid í notkun og befur verid sett upp í fyrsta áfanga nýs Morgunblaðshúss, sem er í
byggingu í nýja miðbænum við Kringlumýrarbraut. Prentun blaðsins í þessari vél hófst sl. þriðjudagskvöld en er enn i tilrannastigi og nokkur timi
mun líða þar til fyllstu gsðum er náð. Um prentvél þessa og þau áhrif, sem hún mun hafa á útgáfu Morgunblaðsins, er fjallað í Reykjavíkurbréfi f dag.
Samþykkt pólska þingsins:
Sleppa 660 pólitískum
föngum innan mánaðar
Nýjar upp-
götvanir á eöli
hvítblæöis
Lm Aageles, Bouton, 21. jálí. AP.
RANNSÓKNIR vísindamanna í Los
Angeles annars vegar og Boston
hins vegar á eðli hvítblæðis hafa
valdið þátttaskilum f þekkingu
manna á þessum sjúkdómi.
Hafa vísindamennirnir komist
að því hvernig hvítblæðisveira
stýrir erfðaþáttum blóðfruma og
telja að það kunni að útskýra að
einhverju leyti starfsemi skyldra
fruma, sem valda AIDS, áunninni
ónæmisbæklun.
Segja vísindamennirnir að veir-
ur þessar eyðileggi lykilþætti
hvítu blóðfrumanna og annað
hvort flýti fyrir frumufjölgun eða
stöðvi. Hvítblæðiveiran veldur
mjög örri frumufjölgun en AIDS-
veiran stöðvar fjölgun ákveðinna
hvítra blóðfruma og veldur jafnvel
dauða þeirra.
Rannsóknin er of skammt á veg
komin til að hægt sé að sjá fyrir
leiðir til að koma í veg fyrir
krabba af völdum veiru eða AIDS.
En niðurstöðurnar kunna að leiða
menn skjótar á áfangastað í leit-
inni að bóluefni sem dugar við
sjúkdómum þessum.
Þá uppgötvuðu vísindamenn i
Los Angeles að krabbavaldandi
gen framleiðir eggjahvítuefni,
sem kemur af stað og ýtir undir
ákveðna tegund hvítblæðis,
CML-hvítblæði, sem er krabbi í
beinmerg. Sérfræðingar segja
uppgötvunina „þáttaskil" í lækna-
vísindunum.
Eldflaug hæfði
sovéska
sendiráðið
Brirýt. 21. jUL AP.
DRÚSAR og kristnir falangistar
skiptust á fallbyssuskotum í fjöllun-
um suður af Beirút í nótt, þá þriðju í
röA sem ófriAur geisar þar, en þaA
eru síAustu forvöA, þvi báAir aAilar
hafa samþykkt aö stjórnarherinn yf-
irtaki stöðvar þeirra og er unnið að
því um þessar mundir. Sovéska
sendiráðið í Beirút varð fyrir eld-
flaugaárás í dag, en manntjón varð
ekkert
Eldflaug hæfði sendiráðið, er
óþekktur maður skaut henni af
húsþaki 100 metra frá sendiráðs-
byggingunni. Þaut eldflaugin inn
um glugga á þriðju hæð fjögurra
hæða hússins og urðu skemmdir
miklar, en manntjón ekkert. Áður
óþekkt samtök sem kalla sig
„Samtök beitta sverðsins" státuðu
af verknaðinum og vildu vara
stjórnvöld í Kreml við því að
blanda sér í innanríkismál Líban-
ons.
Varejá, 21. júlí. AP.
PÓLSKA þingið samþykkti í dag
með 365 atkvæðum gegn 4, að
náða hina 660 pólitísku fanga sem
sitja í fangelsum landsins. Þar á
meðal eru 7 af leiðtogum Sam- I
stöðu og 4 verkalýðsráðgjafar.
Náðanirnar ná m.a. til þeirra Jac-
ek Kuron og Adam Michnik og |
tveggja annarra Samstöðuráð-
gjafa, en réttarhöldum yflr þeim
var frestað í síðustu viku.
Eugenia Kempara, varaforseti
þingsins, greindi frá því að stjórn-
völd vildu með náðunum „gefa
þeim sem afvega hafa verið leiddir
ný tækifæri til að vera góðir og
gegnir borgarar". Sagði hún einn-
ig, að náðanirnar næðu ekki síður
til þeirra, sem hefðu áformað að
bylta pólska stjórnkerfinu með
valdi, en minni háttar pólitískra
fanga. Kuron og félagar voru ein-
mitt sakaðir um slík byltingar-
áform. Frú Kempara sagði á hinn
bóginn að landráðamönnum og
njósnurum yrði ekki sleppt, náð-
anirnar næðu hins vegar til þús-
unda venjulegra afbrotamanna
sem ekki teldust hættulegir og
yrði öllum sleppt „innan 30 daga“.
Það vakti athygli, að Jaruzelski
hershöfðingi var ekki til staðar til
að greiða atkvæði með eða á móti.
Vestrænir stjórnarerindrekar, svo
og pólskir stjórnarliðar fullyrða
þó að hann hafi verið hlynntur
náðununum. Haft var eftir Jaruz-
elski í Tass, að efnahagsþvinganir
Vesturlanda væru afar bagalegar
fyrir Pólverja. Sérfræðingar segja
ekki þurfa ríkt ímyndunarafl til
að sjá hvað Jaruzelski vill fá i
staðinn fyrir náðanirnar.
Sleppti öllu gíslum
Beirút, 21. júlí. AP.
FLUGRÆNINGI rændi Boeing
704-farþegaþotu á leið frá Abu
Dhabi til Beirút í morgun og hélt
151 farþegum og áhafnarmeðlim-
um í gíslingu í nokkrar klukku-
stundir uns hann sleppti öllum
I fyrstu var talið að ræningj-
arnir væru þrír, en hið sanna
kom í ljós eftir að lögreglumenn
i Beirút höfðu talið hann á að
sleppa gíslunum á Beirút-flug-
velli, en þar lenti þotan eftir að
yfirvöld í Sýrlandi höfðu synjað
um lendingarleyfi i Damaskus.
Vildi ræninginn þá halda til Abu
Dhabi, en vegna eldsneytisskorts
varð Beirút ofan á. Ekki hefur
verið látið uppi um þjóðerni eða
kröfur ræningjans, en hann veif-
aði molotof-sprengju ófriðlega
meðan á aðgerðum hans stóð og
stóð fólki mikill stuggur af þvi.