Morgunblaðið - 25.07.1984, Síða 29
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLl 1984
EDWIN MOSES
Ólympíuleikar stjórn-
málum óviðkomandi
Edwin Moses á hreint ótrúlegan feril að
baki sem íþróttamaöur, hann hefur ekki
tapað í 400 metra grindahlaupi í rúm-
lega 100 síðustu hlaupum sem hann
hefur tekið þátt í. Sigurvegari á Ól 1976
og þar setti hann heimsmet, hljóp á
47,64 sekúndum en það met bætti hann
árið 1980 þegar hann hljóp á 47,13 sek-
úndum. Hann hafði þó ekki enn sagt sitt
síðasta því síðar á árinu, á 28 ára af-
mælinu sínu, bætti hann metið enn og
nú hljóp hann á 47,02 sekúndum. Moses
býr ásamt konu sinni, Myrella, í Kali-
forníu og jafnframt því að hann stundar
frjálsíþróttir leggur hann stund á verk-
fræði og vonast til að geta náð sér í
gráðu í lyfjafræði einnig. Hann á sæti í
Alþjóða Ól-nefnd íþróttamanna og þar
er hann mjög virkur, sérstaklega beitir
hann sér fyrir því að hægt sé að halda
leikana án þess að stjórnmáladeilum sé
blandað saman við þá svo og misnotk-
un lyfja en hann er alfarið á móti lyfja-
notkun íþróttamanna.
Takmarkiö hjá Moses núna er
aö sigra á Ól-leikunum í Los Ang-
eles og einnig er hann staðráöinn í
því aö hlaupa 400 metra grinda-
hlaupiö undir 47 sekúndunum og
þeir sem til þekkja segja aö ekki
d
liöi á löngu þar til hann stendur viö
þá fullyröingu sína.
í viötali viö Track & Field-tíma-
ritiö sagöi Moses aö þaö setti ekki
neina sérstaka pressu á sig aö
vera jafn sigursæll og raun bæri
vitni því ætíö þegar íþróttamenn
kepptu væri þaö markmiö þeirra
aö sigra, sama hvort þeir væru
frægir eöa ekki.
„Hið mikilvæga fyrir mig er aö ef
ég ætla aö halda áfram aö sigra
verö ég stööugt aö leggja meira á
mig viö æfingar þvi samkeppnin er
mun haröari núna en hún var á
árunum 1977—1978. Meðaltíminn
hefur fariö úr 49,2 í 48,5 sem þýöir
einfaldlega aö ég verö aö æfa bet-
ur til aö veröa bestur.“
Sp: Var frjálsíþróttaliö okkar
betra áriö 1980 en þaö er núna á
Ól-leikunum?
EM.Viö höföum mjög gott liö ár-
iö 1980. Renaldo Nehemiah var
meö okkur þá og einnig voru
margir góöir spretthlauparar og í
flestum greinum höfðum viö fram-
bærilega keppendur en ég vona
þó aö viö séum meö betra liö
núna.
Sp: Þegar þú ert á hlaupabraut-
inni, ertu þá aö hlaupa fyrir sjálfan
þig eöa ertu þér meðvitaöur um aö
þú ert aö keppa fyrir land þitt7
EM: Ég tel aö flestir keppi fyrst
og fremst fyrir sjáKan sig og þetta
segi ég vegna þess aö æfingar
okkar eru þannig aö viö erum í
sífellu aö keppa viö klukkuna,
sama hvernig búningi viö klæö-
umst. Þrátt fyrir þaö gera allir sér
Ijósa grein fyrir því aö viö erum aö
keppa fyrir Bandaríkin og þaö er
mikill þáttur á okkar ferli. Fögnuö-
urinn er eftir aö þú vinnur, ef þér
tekst þaö þá, og fram aö þeim
tíma tel ég aö íþróttamenn hafi
ekki tíma til aö hugsa um þjóöern-
ishyggju.
Sp: Á þetta líka viö um iþrótta-
menn frá öörum löndum?
EM: Já, alveg tvímælalaust. Þaö
er mjög alþjóölegt andrúmsloft á
öllum mótum og ég hygg aö flestir
reyni aö aölagast því eins mikiö og
þeim er unnt.
Sp: Þannig aö þaö er engin
óæskileg spenna milli keppenda úr
austri og vestri?
EM: Yfirleitt ekki — en viö reyn-
um alltaf aö sigra Sovétmenn og
Austur-Þjóöverja og leggjum
meira kapp á þaö en ef viö værum
aö keppa viö einhverjar aörar
þjóöir. Flestum er þó Ijóst aö
íþróttamenn frá öllum ríkjum
heims geta, eöa gætu, unnið viö-
komandi greinar þannig aö þaö
má ekki leggja þaö mikiö kapp á
aö veröa bara á undan Rússum og
gleyma þá um leiö keppendum frá
öörum ríkjum. í frjálsíþróttum geta
hlutirnir breyst frá undankeppni til
riölakeppninnar, frá riölakeppni til
undanúrslita og ekki síst frá und-
anúrslitum til úrslitakeppninnar.
Þannig aö mér er óhætt aö segja
aö hverjum íþróttamanni er fyrir
bestu aó einbeita sér frekar aö
sjálfum sér en þjóöernishyggju eöa
einhverju ööru. Ef þú vinnur hefur
þú tækifæri til aö sýna þjóöernis-
hyggju og ættjaröarást þína á
verölaunapallinum.
Sp: Þér finnst sem sagt ekki aö
Ólympíuhugsjónin sé aö dofna fyrir
tilstuðlan þjóöernishyggju og
stjórnmáia?
EM: Ekki frá sjónarhóli íþrótta-
mannsins. Ég var einu sinni spurö-
ur aö því á blaöamannafundi hvaö
mér þætti um kjarnorkuuppbygg-
inguna í Evrópu og annaö í þeim
dúr. Ég neitaói aö svara spurning-
unni vegna þess aö ég kæri mig
ekkert um aö stjórnmálamenn líti á
mig sem íþróttamann sem notar
aöstööu mína til aö virkja einhverj-
ar ákveðnar pólitískar stefnur. Ég
óttast aö ef óg geröi eitthvað í
þessa áttina þá gætu stjórnmála-
frömuöir komiö á Ól-leikana og
haft áhrif á þá og þaö kæri ég mig
ekki um.
Sp: Áttu þá viö aö Ól-leikarnir
veröi geröir aö pólitískum vett-
vangi?
EM: Já. Ég veit ekki hvort fólki
er kunnugt um yfirlýsingu sem gef-
in var út í vor vegna þess aö aust-
antjaldslöndin ætluöu aö dragasig
út úr leikunum. Þetta var einhliða
yfirlýsing sem allir samþykktu sem
sæti eiga í nefndinni, einnig Sov-
étmenn og Búlgarir. Þetta var yfir-
lýsing sem ég lagöi fyrir Alþjóöa
Ól-nefnd íþróttamanna sem ég á
sæti í og þar segir orörétt:
„Ástæöa þessarar yfirlýsingar er
síendurtekin afskipti stjórnmála-
manna af Ól-leikunum. Sem meö-
limir í Ólympíuhreyfingunni er
okkur Ijóst aö það eru margir
óþekktir og óviöráöanlegir þættir í
nútíma þjóöfélögum. Engu aö síö-
ur teljum við aö meirihluti þeirra
íþróttamanna sem keppa í íþrótt
sinni séu þeirrar skoöunar aö hver
einn og einasti íþróttamaöur eigi
rétt á því aö fá tækifæri til aö njóta
ánægjunnar af erfiöum æfingum
og keppa án þess að nokkur sé
beittur pólitískur þrýstingi. Nefndin
Moses gerir sig kláran fyrir eitt af sínum mörgu sigurhlaupum,
aö þessu sinni á móti í Þýskalandi.
Edwin Moses hefur átt hreint ótrúlegan feril sem íþróttamaður.
Hann hefur ekki tapaö í 400 metra grindahlaupi í mörg ár.
samþykkir einróma aö allir fái
tækifæri til aö keppa á Ól-leikun-
um, eins og reglur leikanna segja
til um. Einnig aö öllum ríkjum sem
hafa starfandi Ól-nefnd sé boöin
þátttaka og aö ríkiö sem ieikana
heldur hafi ekki rétt til aö útiloka
einn eöa neinn, sem á annaö borð
er í Ól-nefndinni. Viö krefjumst
þess aö engin einkasamtök, póli-
tísk samtök, þar meö taldar Ól-
nefndir viökomandi landa, stjórn-
völd eöa einstaklingar geti haft
áhrif á eöa hindraö þátttöku
ákveöinna einstaklinga, liöa eöa
þjóöa almennt."
Þessa yfirlýsingu samþykktu all-
ir sem í nefndinni eiga sæti — þar
með taldir Sovétmenn.
Sp: Hvern telur þú aöalkeppi-
naut þinn hérna í Bandaríkjunum?
EM: Andre Phillips hefur hlaupiö
á 47,7 eða 47,78 og Þjóöverjinn
Harold Schmidt en hann hefur
hiaupiö á 47,48 en þeir hafa aöeins
einu sinni hlaupiö á þessum tímum
en ég hef komist undir 48 sekúnd-
urnar 25 til 30 sinnum.
Sp: Þú misstir af Ól-leikunum
1980 vegna þess að Bandaríkin
ákváöu aö taka ekki þátt í þeim.
Hvaö fannst þér um þá ákvöröun?
EM: Ég var tilbúinn að keppa.
Þaö var auövitaö mesta tilhlökkun-
in aö reyna aö sigra í Sovétríkjun-
um. Leikarnir voru haldnir í
Moskvu og þetta voru áróðursleik-
ar, eða þannig heföi almenningur
hér heima aö minnsta kosti litiö á
þá. Ég var mjög vonsvikinn en
keppnistímabiliö var mjög gott hjá
mér og þaö dró aöeins úr von-
brigöunum.
Sp: Telur þú aö Ól-leikarnir eigi
aö vera opnir öllum iþrótta-
mönnum, hvort heldur hann er
áhugamaöur eöa atvinnumaöur?
Heldur þú aö áhugamennskan sé
aö deyja út?
EM: Þaö held ég ekki. Atvinnu-
mennirnir hafa það fram yfir okkur
aö þeir geta aflaö tekna meö því
aö keppa án þess aö þurfa aö
tengja þaö einhverju ööru og ég
hygg aö þaö sé ekki hægt fyrir
okkur aö keppa viö þá á þessum
grundvelli. Þetta má tengja beint
viö þaö aö geta æft áhyggjulaust,
en viö þurfum oft aö leggja míkiö á
okkur til aö afla tekna, á meöan
þeir eru aö æfa.
Sp: Mörg riki hafa þannig kerfi á
hlutunum aö þau styrkja íþrótta-
menn sina. Er þaö ókostur aö slíkt
er ekki viöhaft hér i Bandaríkjun-
um.
EM: Á heildina litiö tel ég þaö
ókost. Ef viö tökum frjálsíþrótta-
menn sem dæmi þá getur einhver
ákveðinn maöur haft tekjur á ein-
hverju ákveönu tímabili og bestu
vinir hans njóta góös af því og ef til
vill komast í hóp þeirra bestu.
Meirihluti íþróttamanna hefur ekki
slíkan stuöning en samt sem áöur
æfa þeir svipaö og hinn sem komst
á toppinn vegna þess aö frændi
hans eöa einhver sem á peninga
studdi viö bakiö á honum.
Þaö kostar miklar fjárhæöir aö
halda sér í æfingu — og þá á ég
viö mjög góöri æfingu. Þú gefur ef
til vill frá þér starfsferil þinn, eöa
hluta af honum, — átt síöur kost á
aö vinna þig upp í starfi þínu, og
þetta er tímabil í lífi manns sem
ekki er hægt aö endurtaka þó viiji
væri fyrir hendi.
Þú eyöir fimm eöa sex árum
sem áhugamaöur og þá hefur þú
tapaö fimm eöa sex árum á vinnu-
markaðnum. Þetta hefur áhrif og
kemur til meö aö hafa áhrif á þig
alla tíö.
Sp: Hvernig ferö þú aö þvi aö
sjá fyrir þér og fjölskyldu þinni
jafnframt því sem þú æfir mjög
mikiö?
EM: Ég er mjög heppinn vegna
þess aö í gegnum samtök okkar,
IAAF og TAC, getum viö gert svo
til hvaö sem er. Viö höfum í raun-
inni hertekiö auglýsingamarkaöinn
og erum oft eins og gangandi aug-
lýsingaskilti. í augnablikinu hef ég
samning viö Adidas og Kodak
þannig aö ég er sæmilega settur,
— mjög vel miöaö viö fjölda ann-
arra stráka og stúlkna hér í landi.
Fólk segir viö mig: „Þér gengur
allt í haginn og þú rakar inn pen-
ingum núna.“ Ég vil segja við þetta
fólk aö ég er í þeim 5 til 10 pró-
sentum sem hafa þaö gott, hin
90—95% hafa þaö alls ekki eins
gott. Þrátt fyrir aö mér gangi mjög
vel um þessar mundir þá hef ég
ekki gleymt hinum sem eru sífellt
aö reyna. Ég tel aö þetta sé mjög
mikilvaBgt. Þaö mun alitaf vera til
fólk sem nær toppnum — en því
miður þá geta ekki allir veriö þar.