Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984
57
Meö nýju sætuefni Nutra-Svveel
sem skilar sama gamla góöa
appelsínubragðinu
I án eftirkeims.
SALUR 1
frumsýnir nýjustu myndlna eft-
ir sögu Sidney Sheldon
í kröppum leik
ROGER MOORE
ROD
STEIGER
ANNE
ARCHER
íNAKED
FACE
Splunkuný og hörkuspennandl
úrvalsmynd, byggö á sögu eft-
ir Sidney Sheldon. Þetta er
mynd fyrir þá sem una góöum
og vel geröum spennumynd-
um. Aðahlutverk: Roger Mo-
ore, Rod Steiger, Elliott
Gould, Anne Archer. Lelk-
stjórl: Bryan Forbes.
Sýnd kL 5, 7,9, og 11.
Bönnuö börnum innan
16 ára.
Hækkaö verö.
SALUR2
HETJUR KELLYS
Hörkuspennandi og stór-1
skemmtileg stríösmynd frá |
MGM, full af grini og glensi.
Donald Sutherland og félagarl
eru hér í sínu besta forml og [
reyta af sér brandara. Mynd i
algjörum térflokki. Aöalhlut-
verk: Clint Eaetwood, Telly
SavalA, Donak) Sutherland,
Don Rickles. Leikstjóri: Brian |
G. Hutton.
Sýnd kl. 5, 7.40 og 10.15.
Hækkaö verö.
Frumsýnir teinni myndina:
EINU SINNI VAR í
AMERÍKU 2
OHCE UPOH AIKE
Aöalhlutverk: Robert De Niro.l
Jamet Woods, Burt Young.l
Treat Williams, Thuesdayl
Weld, Joe Pesci, Ellzabeth I
McGovern. Leikstjóri: Sergio|
Leone.
Sýnd kl. 5, 7.40 og 10.15.
Hækkaö verð. Bönnuö börn- |
um innan 16 éra.
EINU SINNIVAR í
AMERÍKU 1
(Once upon a time In Amerlca I
Part 1)
once uron a tirie
Aöalhlutverk: Robert De Nlro,
James Woods, Scott Tiler, I
Jennifer Connelly. Lelkstjórl: |
Sergío Leone.
Sýnd kl. 5, 9 og 11.
Hækkaö verö. Bönnuö böm-
um innan 16 ára.
TVIFARINN
Sýnd kl. 7.
Við sem heima sitjum með á nótunum
plotur
Arni Johnsen
Við sem heima sitjum hefur
alla þá kosti sem góð dægurlaga-
og vísnasöngsplata þarf að hafa,
hún býr yfir fallegum og góðum
lögum, hún er vel útsett með
mjög góðan hljóðfæraleik og all-
ir söngvararnir skila sínu hlut-
verki af mestu prýði þar sem
textinn fær að njóta sín eins og
vera ber. f stuttu máli, þetta er
listilega góð plata og ég hygg að
flestum fari á þann veg að þeir
finni sig knúna til að syngja með
þegar þeir hlusta á þessa ljúfu
plötu. Það er sérstæð reisn yfir
lögum Bjarna Hjartarsonar, tær
blær, en lögin eru mjög fjöl-
breytt og full að liprum takti og
fögrum hljómhleðslum. Falleg-
asta lagið finnst mér vera Meist-
ari sungið af Önnu Flosadóttur
og hennar ómþýða og fagra rödd
nýtur sín vel í þessu lagi.
Það er úrvalslið sem kemur
við sögu á þessari plötu og skal
þar fyrstan nefna Gunnar Þórð-
arson sem hefur útsett með sín-
um meistarahöndum tónlist
Bjarna Eggertssonar. Það er
satt að segja með ólíkindum hve
Gunnar getur sífellt útsett á
frumlegan og skemmtilegan hátt
þá tónlist sem hann tekur upp á
sína arma. Anna Flosadóttir og
Pálmi Gunnarsson bera hita og
þunga söngsins á plötunni, óað-
finnanlega, en einnig syngja
Bergþóra Árnadóttir, Þuríður
Sigurðardóttir og Ólöf Halla
Bjarnadóttir hver eitt lag, þær
tvær fyrstnefndu eins og við var
að búast af þjálfuðum og reynd-
um góðsöngvurum og ólöf Halla
stendur fyllilega fyrir sínu með
galsafenginni og skemmtilegri
túlkun á blússandi útsetningu
lagsins við Karl faðir minn eftir
Jóhannes úr Kötlum.
Lögin á plötunni eru allt frá
því að vera angurvær og blíð
eins og vorvindar og til þess að
vera eins og gneistandi fákar á
sléttum vestursins eða taktfast
tjútt. Sigurður Bjóla Garðarsson
stjórnaði hljóðritun en stjórn
upptöku var í höndum Gunnars
Þórðarsonar, Pálma Gunnars-
sonar og Bjarna Hjartarsonar og
allir þeir listamenn sem leika á
plötunni eru kunnir fagmenn. í
heild er platan Við sem heima
sitjum heillandi og hugljúf
plata, skemmtileg og vel gerð.
Það er eins og iögin á þessari
plötu líði áfram svo látlaust og
eðlilega, hún kemur skemmti-
lega á óvart að því leyti að það er
óþekkt fólk sam lagði grunninn
að henni og fylgir henni fram af
festu, þau Bjarni og Anna, en
fyrst og síðast er fengur að þess-
ari plötu.
-c